Alþýðublaðið - 09.11.1976, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 09.11.1976, Blaðsíða 5
Þriðjudagur 9. nóvember 1976 IÞROTTIR 5 VALSMENN TÖPUÐU SÍNUM FYRSTU STIGUM Björgvin Björgvinsson, aldrei betri en nú. Heil umferð var leikin í 1. deild íslandsmótsins í handbolta um helgina. óvæntustu úrslitin voru þau/ að Valsmenn töpuðu sínum fyrsta leik í islandsmótinu/ fyrir Vik- ingum, sem sigruðu 23-22. Valur-Víkingur: 22-23. Vikingar byrjuðu leikinn vel, komust i 3-1. Þá náðu Valsmenn að sýna afbragðs góðan leik, harðir og ákveðnir i vörninni og sóknin beitt. Komust þeir i 10-5, stórsigur i aðsigi. 1 hálfleik var staðan 11-8. Vikingar komu tviefldir til leiks i seinni hálfleik, Jón Karls- son færður i yfirfrakka, auk þess sem Rósmundur fór að verja afburða vel. Ekki voru liðnar nema 8 minútur, þegar Vikingar jöfnuðu 14-14. Vals- menn komust aftur yfir, og þegar staðan var 18-16, var Viggó Sigurðssyni visað af leik- velli i 5 minútur. Bjuggust nú allir við öruggum Valssigri. En það var öðru nær. Þrjú næstu mörk skoruðu Vikingar, þeir héldu höfði og spiluðu skynsam- lega, annað en hægt var að segja um Valsmenn. A þessum leikkafla átti Björgvin Björg- vinsson snilldarleik, skoraði m.a. með langskoti. Siðustu minúturnar upphófst mikill darraðardans, til dæmis má nefna, að siðustu 45 sekúnd- urnar voru skoruð 3 mörk, Vals- menn tvö og Vikingur eitt. Leik- urinn endaði sem fyrr sagði með sigri Vikings, 23-22. Vikingsliðið var ekki sérlega sannfærandi i þessum leik. Þeir léku þó af skynsemi, er mest reið á. Langbezti maður vallar- ins var Björgvin Björgvinsson. Hann skoraði einnig flest mörk Vikinga, ásamt Ólafi Einars- syni, 7. Valsliðið lék ágætlega á köfl- um, sérstaklega um miðbik fyrri hálfleiks. En þegar á móti blés, héldu þeir ekki höfði og einstakir leikmenn ætluðu sér greinilega að gera allt einir. Það virtist og hafa slæm áhrif á sóknarleik Valsmanna þegar Jón Karlsson var tekinn úr umferð. Þorbjörn Guðmunds- son var markhæstur Valsmanna með 8 mörk. iR-Fram: 23-19. Ekki var það handbolti á heimsmælikvarða, sem 1R og Fram sýndu áhorfendum á sunnudagskvöldið. IR-ingar voru þó miklu friskari og áttu sigurinn fyllilega skilið. IR-ing- ar voru yfir allan timann og sig- ur þeirra aldrei i hættu. 1 hálf- leik var staðan 11-9, IR-ingum i vil. Frekar litið er um þennan leik að segja. Undir lokin var þó gaman að fylgjast með sýnikennslu i þvi, hvernig á að misnota opin marktækifæri. Markhæstir IR-inga voru að venju þeir Brynjólfur og Ágúst með 5 mörk hvor. Sigurbergur og Arnar voru markhæstir Framara meö 4 mörk hvor. Haukar-Þróttur: 22-11. Haukarnir fóru létt með slakt lið Þróttar á sunnudaginn. Ef frá eru dregnar 15 fyrstu minút- urnar, en þá hélzt leikurinn nokkuð jafn, (5-4 fyrir Hauka eftir 15 minútur) voru Haukarn- ir minnst tveimur gæðaflokkum yfir Þrótturum. Samt var leikur Haukanna ekkert til að hrópa húrra fyrir. Að venju var Hörður Sigmarsson langmarkhæstur Haukanna með 10 mörk, þar af 8 úr vitum. Þess ber að geta, að Hörður var klæddur i yfirfrakka strax i upphafi leiks og frakkinn látinn vera vel hnepptur allt .til loka leiksins. Markhæstur Þróttara var Konráð Jónsson, með 3 mörk. FH-Grótta/ 29-19. Það eina sem yljaði áhorfend- um i þessum leik (annað en úrslitin fyri FH-inga), var góður leikur Geirs Hallsteinssonar. en hann skoraði 11 mörk i þessum leik. Leikurinn var sem sagt léleg- ur. Gróttuliðið var alveg á núllpunkti, með þessu áframhaldi blasir ekkert annað en 2 deild við þeim, enda búnir að leika fimm leiki og tapa þeim öllum. —ATA MARGIR SKEMMTILEGIR LEIKIR Á AKRANESI ÍA með opið unglingamót í badminton A iaugardaginn fór fram opið unglingamót i badminton. Fór það fram á Akranesi'. Var þarna samankomið mikið af efnilegu badmintonfólki, sem á framtiðina fyrir sér. Það hefur nefnilega vantað mikið hingað til, að bad- mintonfólk byrji snemma að æfa, en núna virðist ekki skorta áhugann, enda er hér um bráð- skemmtilega iþrótt að ræða, sem alltof litill gaumur hefur veriö gefinn i fjöimiðlum. Helztu úrlit mótsins á Akranesi voru sem hér segir: Crslit. Einliðaleikur pilta: Viðir Bragason, 1A, sigraði Björgvin Guðbjörnsson, KR. 15-4 og 15-3. Einliðaleikur sveina: Gunnar Jónatansson, Val, sigr- aði Þorgeir Jóhannsson, TBR, 11- 1 og 11-0. Einliðaleikur drengja: Jón Bergþórsson KR, sigraði Björn Björnsson, 1A, 11-3 og 11-8. Einliðaleikur hnokka: Þórhallur Ingason, 1A sigraði Arna Hallgrimsson, 1A, 11-4 og 11- 5. Tviliðaleikur pilta: Viðir Bragason og Björn Björnsson, 1A, sigruðu Björgvin Guðbjörnsson og Reynir Guðmundsson, KR, 15-5 og 15-6. Tviliðaleikur drengja: Jón Bergþórsson og Agúst Jónsson, KR, sigruðu Agúst Sigurðsson og Gylfa Óskarsson, Val, 15-10 og 15-3. Tviliðaleikur sveina: Gunnar Jónatansson og Þorsteinn Jónsson, Val, sigruðu Skarphéðinn Garðarsson og Gunnar Tómasson, TBR, 12-15, 15-3 og 15-9. Tviliðaleikur hnokka: Þórhallur Ingason og Arni Þór Hallgrímsson, 1A, sigruðu Gunn- ar Mýrdal og Harald Gylfason, 1A, 15-9 og 15-6. Einliðaleikur meyja: Kristin Magnúsdóttir, TBR sigraði Sif Friðleifsdóttur, KR, 11-3 og 11-2. Tviliðaleikur meyja: Hrefna Guðjónsdóttir og Ragnheiður Jónsdóttir, IA, sigr- uðu Sif Friðleifsdóttur og örnu Steinsen, KR, 3-15, 17-14 og 18-14. —ATA/MJA Ég er kannski of ungur ennþá til að fá að taka þátt I móti, en eftir nokkur ár skal ég svo sannarlega „bursta" alla þessa karla. (Ab-myndir: MJA) . Ef tii vill eru þetta tslandsmeistarar framtfðarinnar.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.