Alþýðublaðið - 09.11.1976, Side 16
Þótt það fyndist ekki á bæjarfógetaskrifstofum Hafnarfjarðar:
LEYFI VEIH 1969 -
EN ALDREI ENDURNÝJAÐ
Rekstur safnins er því fyllilega ólöglegur
— Ég veit meira
núna heldur en þegar
ég talaði við þig siðast,
sagði Hörður
Zophaniasson stjórnar-
formaður Sædýra-
safnsins, þegar blaðið
hafði samband við
hann i gær. Ástæðan
var frétt sú, sem birtist
i laugardagsblaði AI-
þýðublaðsins um að
Sædýrasafnið væri rek-
ið utan við lög og rétt.
— Við fundum um
helgina skriflegt leyfi
frá Einari Ingimundar-
syni þáverandi bæjar-
fógeta til reksturs
safnsins. Leyfiðerdag-
sett 14. april 1969 og er
veitt samkvæmt lögum
nr. 21 frá 1957, um
dýravernd, og er háð
þeim skilyrðum að far-
ið verði i einu og öllu-
eftir lögum um dýra-
vernd.
Hins vegar hefur það bersýni-
lega ekki veriö athugað eftir að
reglugerðin frá 1971 var sett, aö
sækja um endurnýjun þessa-
leyfis, þannig að þarhafa okkur
oröið á mikil mistök, sem nú
verður að sjálfsögðu kippt i lag.
Hörður sagði einnig, að sött .
hefði verið um meðmæli frá
Dýraverndarfélagi Hafnar-
fjarðar- og heföu þau fengizt.
Þetta staöfesti Þórður Þórðar-
son þáverandi forseti • Dýra-
verndunarfélags Hafnfirðinga,
þegar'blaðið ræddi viö hann i
gær. Las hann fyrir okkur eftir
farandi bókun: „Fimmtudaginn
27. marz 1969 kom stjórn félags-
ins saman á fund eftir að hafa
skoðað fugla- og sæöýrasafn
sem áhuga félagsskapur er að
rejsa fyrir sunnan Hvaleyri
skammt frá sjónum. Tilefni
ferðarinnar var bréf sem hafði
borizt frá bæjarfógetanum i
Hafnarfirði, sem óskaði um-
sagnar dýraverndunardeildar-
innar á staðnum um álit stjórn-
arinnar um þetta efni. Eftir að
hafa séð og skoðaö byggingar
þar og aðstöðu alla, sjáum 'við
ekki neitt þvi til fyrirstöðu að sú
starfsemi sem h'afin er og.lofar
góðu, veröi byggö, enda verði
hún undir eftirliti dýralæknis og
þeirra sem eiga þar hlut aö máli
og rekstur fyrirtækisins verði i
samræmi við rekstur -annarra
slikra stöðva sem starfræktar
eru hér á landi. Hafnarfirði 27.
marz 1969.” Úndir þessa bókun
rita Þóröur Þórðarson, Jón
'Gestur Vigfússon, Sigurður
Þóröarson, Jón Sigurgeirsson
og Erna Friða Berg.
Þarna virðist augljóst, áö þótt
ekki hafi fundizt af þvi tangur
eða tetur, þá hafi bæjarfógetinn
i Hafnarfirði Veitt leyfi til starf-
semi Sædýrasafnsins. Hins veg-
arer það jafnaugljóst, að safnið
er eftir sem áður rekiö i leyfis-
leysi, þar sem skýrt er fram
tekjö i reglugeröinni frá 1971, að •
leyfið skuli endurnýjað ekkj
sjaldnar en á þriggja ára fresti.
Þaö hefur ekki verið gert. Auk
þess hefur aldrei verið feitað
álits Dýraverndarnefndar, sgm
en opinber nefnd, enda hefur
hún aldrei fjallað um málefni
safnsins. Páll A. Pálsson yfir-
dýralæknir hefur staðfest það i
samtali við blaðið. Slikt álitá þó
að liggja fyrir.
1 annan stað er það enn
óhagganleg staðreynd, aö ráð-
herra hefur aldrei skrifað up.p á
lög félagsins og það er þvi ékki
löglegt sem sjálfseignastofnun.
— hm.
Málmiðnaðarmenn á Akranesi á ferð í Noregi og Danmörku
Sitt sýndist hverjum um málm-
biendiverksmiðju
sveinafélag málmiðnaðar-
manna á Akranesi lagði upp i
kynningarferð til Noregs i lok
októbermánaðar. Fræösluferð
þessi var farin til aö kynnast
stöðu járniðnaöarmanna á
Islandi, m.a. skipasmiði sem
mikið hefur verið um rætt hér á
siðustu árum. Þátttaka i ferðinni
var mjög góð, úr um 85 manna
félagi fór um helmingur félaga,
þar af 28 frá skipasmiðastöð
Þorgeirs og Ellerts. Eiginkonur
félaga fengu einnig tækifæri til að
vera með og fóru 28 eiginkonur i
feröina. Þeir sem greiddu götu
málmiönaðarmanna og undir-
bjuggu heimsóknir hjá umboðs-
fyrirtækjum sinum erlendis voru
Vélasalan, Islenzka járnblendi-
félagið, Aðalskipasalan,
Eimskipafélag Islands og
Sementsverksmiðja rikisins."
Einnig veitti Iðnþróunarsjóður
ágæta fyrirgreiðslu og ségjast
málmiðnaöarmenn mjög þakk-
látir þessum aðilum.
1 Kristiansand var Elkem
Spiegerverket heimsótt og þar
fengu málmiðnaðarmenn aö
kynnast gangi vinnslunnar hjá
fyrirtækinu. Skoðuð var verk--
smiðjan og var þar margt
forv itnilegt að s já, sýndist þar sitt
hvérjum um þessa nýju verk-
smiðju sem væntanlega mun risa
hér á landi innan skamms. Verk-
smið'ja sú sem hér mun risa mun
verða mun fullkomnari en sú er
skoðuð var i Kristiansand.
.1 Flækkefjord var . skoðuð
skipasmiðastöð, sem hefur smið-
að mörg skip fyrir okkur Islend-
inga.
27. okt. var haldið til Máridal en
þar voru skoðaðar þrjár skipá-
smiðastöðvar og nýlegt fyrirtæki
sem hefur sérhæft sig í smlði ál-
báta til fólksflutninga sem var að
mestu leyti nýtt fyrir tslending-
ana.
1 Alaborg tóku á-móti tslend-
ingunum menn frá Alborg værst
en það fyrirtæki hefur smiðað
mörg af skipum Eimskip og tvö
ný varðskip okkar sem kunnugt
er.
Morguninn eftir var svo skoðað
fyrirtækið F.L. Smith, en þaö
fyrirtæki hefur séð um allan véla-
búnað fyrir Sementsverksmiðju
rikisins. Var tslendingunum sér-
-staklega kynntur öryggisútbún-
aður sem er á mjög háu stigi hjá
Dönum.
Eru málmiönaðarmenn á
Akranesi mjög ánægðir rneð
árangur ferðarinnar og telja til-
gangi hennar vera fullkom-
lega náð. Sfeoðaðar voru margar
nýjungar sem að gagni mega
koma i framtiöinni.
. —AB
Samtök um náttúruvernd á Norðurlandi
Mótmæla eindregið álveri í Eyjafirði
Stjórnarmenn Sam-
taka um náttúruvernd
á Norðurlandi og full-
trúar samtakanna i
Eyjafirði, hafa sent frá
sér samþykkt þar sem
þeir lýsa yfir eindreg-
inni andstöðu við
framkomnar hug-
myndir um byggingu
álbræðslu við Eyja-
fjörð. Láta þeir jafn-
framt i ljós furðu sina á
þeim undirbúningi,
sem þar virðist vera í
gangi, án þess að við-
komandi aðilar hafi
fjallað um málið.
I greinargerð samtakanna
segir, aö á árunum 1965—1970
hafi orðið töluverðar umræöur
úm stóriðju á ' íslandi, vegna
nýrra hugmynda um virkjun
fallvatna og stofnunar ál-
bræðslu i Straumsvík viö
Hafnarfjörö. Eri.þá heföi jafnvel
komiö til greina að sú verk-
smiðja yrði reist i Eyjafirði.
I tilefni þeirra umræðna
samþykkti aðalfundur SUNN
ályktun 1970 þar sem bent var á
þá ,, miklu hættu lofts og lagar,
sem stafa kann af álverksmiðju
við Eyjafjörð”.
Síðar segir, að hljótt hafi ver-
ið um þetta mál, þótt ýmislegt
bendi til að unnið hafi verið að
þvi á bak við tjöldin. 1 ljós hafi
komið, aö könnunarviðræður
hafi farið fram milli svonefndr-
ar stóriðju annars vegar og
norska iðnfyrirtækisins „Norsk
Hydro” hins vegar, og hafi það
látið f ljó's eindreginn áhuga á að
reisa hér álverksmiðju.
Nýlega hafi svo þessir aðilar
fariö þess á leit viö
Rannsóknarstofnun landbúnað-
arins og Veöurstofuna aö þær
hefji umhverfisrannsóknir
vegna fyrirhugaðrar álbræðslu i
Eyjafirði.
Telja samtökin allan
aðdraganda þessa máls mjög
einkennilegan og nefna sem
dæmi aö ekkert samráö hafi
verið haft viö eigendur viökom-
andi jarða, sem hafi frétt um
fyrrgreindar fyrirætlanir á
skotspónum-
Enn fremur hafi viökomandi
sveitarstjórn og sýslunefnd ekki
borizt nein erindi varöandi þetta
mál, né heldur hafi verið leitað
til Náttúruverndarráðs eða
Heilbrigöiseftirlits rikisins með
umsögn.
Mengunarhætta.
Samkvæmt þeim up'plýsing-
um, sem féiagið hefur aflað sér
er ekki hægt að .fyrirbyggja, að
eitthvert magn úrgangsefna frá
álverum sleppi út i andrúms-
loftið.
Séu þau hreins.uð með vatni
eða sjó, eins og viöa tiðkast
berst mikiö magn þessara sömu
efna i sjóinn, og valda spjöllum
þar. Þá má gera ráð fyrir
óhöppum ýmiskonar, sem valda
þvi að hreinsun mistekst i lengri
eða skemmri tima, segir enn
fremur i greinagerðinni.
Er siðan vitnað til upplýsinga
frá álverinu Lista i Noregi en
framleiðslugeta þess er um
50.000 tonn á ári. Þar eru viður-
kenndar aðferðir notaðar við
hreinsun, en samt sem áöur
fara um 50 tonn á ári af flúor-
samböndum út I andrúmsloftið,
og um 450 tonn I sjóinn.
Siðan benda samtökin á þá
staöreynd, að gróðursæld sé
•mjög mikil i Eyjafirði og rækt-
unarskilyrði góð. Úppbygging
stóriöju i firðinum geti haft
ófyrirsjáanlegar afleiðingar
fyrir búskap og hið félagslega
umhverfi, sem óhjákvæmilega
muni raskast mjög með tilkomu
álvers.
Helstu niðurstöður.
1 niðurstöðum samtakanna
segir m.a. að veðurfar i Eyja-
firöi mótist mjög af landslagi og
staðháttum, og sé þvi þannig
háttað að hætta sé á hægri
dreifingu og jafnvel samsöfnum
mengunarefna i lofti. Gæti jafn-
vel hin minsta loftmengun haft
alvarlegar afleiöingar I för með
sér, vegna hins rikulega gróðurs
er þar vex.
Ennfremur að sú rótfesta sem
einkennt hefur mannlifiö i Eyja-
firði hljóti að vera i hættu éf þar
verði byggt álver og íangur timi
geti liöiö þar til jafnvægi kæmist
á að nýju.
JSS
ÞRIÐJUDAGUR ■
9. NÓVÉMBER 1976
alþýðu
Jblaöið
HÉYRT,
SÉÐ 0G
HLERAÐ
Tekið eftir: Það vakti tals-
verða athygli hve margir
forystumenn Sjálfstæðis-
flokksins, þar á meðal for-
sætisráðherra, heimsóttu
sovézka sendiráðið á föstu-
dag' i tilefni byltingaraf-
mælisins 7. nóvember.
Þetta hefði kannski ekki
vakið verulega athygli
nema vegna þess aö i sið-
ustú viku gerði -Morgun-
blaðið þvi rækileg skil. að
20' ár voru liðin frá innrás
sovézka hersins i Ung-
verjaland. Þar var þess
sérstaklega ninnzt, að
islenzkir kommúnistaleið-
togar hefðu orðið sér til
skammar með þvi að heim-
sækja sov'ézka sendiráðiö á
meðan sovézki herinn var
að 'brjóta á bak aftur
byltinguna i Ungverja-
landi. A 20 ára afmæli þess-
arar byltingar gengu for-
ystumenn Sjálfstæðis-
flokksins inn i sama hús til
að fagna með húsráðend-
um.
o
Lesið: í Alþýðumarininum
á Akureyri: „Sjálfstæðis-
menn hafa mikinn áhuga á
breyttri skipan kjördæma
um þessar m.undir og þá
helzt á fjölgun þingmanna
i Reykjavik og á Reykja-
nesi en eins og öllum er
kunnugt er t.d. Reykjavik
svo sterkt sjálfstæöisvígi
að ýmsir Sjálfstæðismenn
telja það mundu verða
meira áfall fyrir flokkinn
aö missa Reykjavik en
stjórnarráðið. Þessar hug-
myndir um breytta kjör-
dæmaskipun eiga þó mis-
jöfnu fylgi að fagna á-
Framsóknarheimilinu og
er hugsanlegt talið að Mad-
daman gæti.gerzt nokkuð
tannhvöss þegar þessi mál
koma til umræðu.
o
Séð: Að Póst og simamála-
stjórnin ætlar að gefa út
nýtt- frimerki 2. desember
næst komandi i tilefni 60
ára afmælis Alþýðusam-
bands Islands. Verðgildi
merkisins verður 100'krón-
ur og höfundur myndarinn-
ar er Edda Sigurðardóttir.
Þegar Alþýðusambandið
(Alþýðuflokkurinn) var
stofnað 1916 voru félagar
600, — nú eru þeir 43
þúsund. (Sjá mynd af