Alþýðublaðið - 07.12.1976, Page 8
8
Þriðjudagur 7. desember 1976 ^SXíd’:
BURSTAFBl
Sími
38840
Aðalfundur Sambands
dýraverndunarfélaga íslands:
Skorar á
yfirvöld
að loka
Sædýra-
safninu
Margar gerðir.
Ullargólfteppi kr. 5.550,- 6.300,- 6.900,-
6.960,- ferm.
Teppi úr gerfiefnum kr. 1.800.- 2.200.-
2.600,- 3.300.- 5.200,-
Hagstæð greiðslukjör. Staðgreiðsluaf-
sláttur.
Við gerum föst verðtilboð.
Ath. Opið til kl. 10 i kvöld
TEPPABÚÐIN,
Reykjavíkurvegi 60, Hafnarfirði, sími 53636
Áskriftarsími Alþýðublaðsíns
er 14900
Jórunn Sörensen
endurkosin
formaður
Aðalfundur Sambands dýra-
verndunarfélaga tslands var
haldinn 5. des. 1976.
A fundinum skýrði formaöur
frá þvi að forseti tslands dr.
Kristján Eldjárn hefði veitt sam-
bandinu þann heiöur að gerast
verndari þess. Stjórn S.D.t. er
forsetanum ákaflega þakklát
fyrir þennan mikla heiöur og veit
að þetta verður dýravernd á
tslandi til framdráttar. Lýstu
fundarmenn mikilli ánægju með
þann heiður og viröingu er dýra-
vernd er veitt á þennan hátt.
A fundinum var siðan rakin
skýrsla stjórnarinnar og kom þar
fram að mjög mörg og margvis-
leg mál hafa veriö á dagskrá
stjórnarinnar þetta ár.
T.d. var sagt frá trúnaðar-
mannakerfi því er stjórnin er að
koma á. öllum oddvitum lands-
ins var ritaö og þeir beönir að til-
nefna trúnaðarmann fyrir S.D.t. i
sinum hrep'pi. Stjórninni til mikill
ar ánægju eru svarbréf oddvit-
anna óðum að berast og taka þeir
allir mjög vel i þessa bón.
Formaður skýrði frá tillögum
þeim er stjórn S.D.Í. hefur sent
fulltrúa sinum i dýraverndun-
arnefnd rikisins, en nefndin fékk
það hlutverk i sinu skipunarbréfi
að endurskoða lögin um dýra-
vernd.
Jórunn Sörensen.
Einnig flutti fulltrúi S.D.Í.
Sigurður Richter, i fuglafriðunar-
nefnd rikisins erindi um störf
nefndarinnar.
Einnig samþykkti aðalfundur-
inn að skora á yfirvöld að loka
Sædýrasafninu tafarlaust og
aflifa þau dýr sem þar eru á
mannúðlegan hátt.
Eftirfarandi menn voru kosnir i
stjórn S.D.l. Formaður Jórunn
Sörensen, meðstjórnendur:
Gunnar Steinsson, Ólafur Jóns-
son, Hilmar Norðfjörð, Gauti
Hannesson, Kristleifur Einarsson
og Paula Sörensen.
Varamenn: Skúli Ólafsson, Alf-
heiður Guðmundsdóttir, Sverrir
bórðarson, Sólveig Theódórs-
dóttir.
Fyrirframsala af afurðum komandi
vertíðar:
Rússar kaupa
13.700 tonn
af loðnumjöli
S.l. föstudag var undirritaöur i
Reykjavik samningur við sov-
ézka fyrirtækiö Prodintorg V/O
um sölu á 13.700 lestum af loðnu-
mjöli og 1.000 lestum af fiskmjöli
til afgreiöslu á fyrra helmingi
næsta árs. Er hér um aö ræöa
fyrirframsölu á afuröum kom-
andi vertiðar og munu flestallar
loðnuverksmiöjur landsins fram-
leiða upp i samninginn. Seljendur
eru Sjávarafuröadeild Sambands
isl. samvinnufélaga og Haukur
Björnsson, en samningurinn er
geröur i samráði við Félag isl.
fiskmjölsframleiðenda og I sam-
vinnu við nokkra helztu útflytj-
endur fiskmjöls eins og fyrri
mjölsamningar við Sovétrikin. Er
heildarverðmæti samningsins um
1300 milljónir króna.
Af hálfu sovétmanna önnuðust
samningsgerðina hr. Shchekin,
viðskiptafulltrúi Sovétrikjanna á
Islandi -og fulltrúar Prodintorg,
hr. Survonov og hr. Zevakin.
Samingsgerðina af Islands hálfu
önnuðust þeir Siguröur Markús-
son framkvæmdastjöri og Ólafur
Jónsson aðstoðarframkvæmda-
stjóri hjá Sjávarafurðadeild
Sambands isl. samvinnufélaga,
svo og Haukur Björnsson. Mun
Sjávarafurðadeildin sjá um
framkvæmd þessa samnings á
sama hátt og fyrri mjölsamninga
viö Sovétrikin.