Alþýðublaðið - 13.04.1977, Qupperneq 2
2 STJORNMÁL
Miðvikudagur 13. apríl 1977
alþýöu-
Útgefa.idi: Alþýðuflokkurinn.
Reksiur: Reykjaprent hf. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Arni Gunnarsson.
Aðsetur ritstjórnar er i Síðumúla 11, simi 81866. Augiýsingadeild, Alþýðuhúsinu Hverfisgötu 10 — simi 14906.
Askr ftarsfmi 14900. Prentun: Blaðaprent h.f. Askriftarverð: 1100 krónur á mánuði og 60 krónur i lausasölu.
Við seljum ekki heilsuna
Hvort sem fólk dvaldist
heimavið eða var á ferð-
um í fersku lofti um
páskahelgina, munu þús-
undir taka vel eftir þeim
umskiptum sem það er að
koma aftur á vinnustað.
Sérstaklega munu þeir,
sem vinna erfiðustu
störfin, taka eftir, hve
óvistlegir vinnustaðirnir
eru, hve víða er mengað
loft eða óhóf legur hávaði,
ef ekki bein óhollusta.
Sjaldan hefur fyrir.
spurn á Alþingi vakið eins
mikla athygli og spurning
Jóns Ármanns Héðins-
sonar um vinnuskilyrði í
álverinu í Straumsvík.
Skýrsla heilbrigðisyf ir-
valda kom eins og köld
gusa yfir þjóðina, og
mörgum varð Ijóst, að
þarna hafði veigamikill
þáttur í kjarabaráttu
launþega verið vanrækt-
ur. Auðvitað er þessum
málum áfátt á f leiri stöð-
um en í álbræðslunni og
vinnustaðir þurfa ekki að
vera sérlega stórir til
þess að þeir geti verið
bæði óvistlegir og var-
hugaverðir hvað hollustu
snertir.
Alþýðuf lokkurinn hef-
ur flutt á undanförnum
þingum og flytur enn í
vetur tillögu þess efnis,
að sett verði fullkomin
löggjöf um vinnuvernd og
starfsumhverfi. Flokkur-
inn hefur bent á, að vist-
legir og heilbrigðir vinnu-
staðir séu sjálfsögð krafa
hjá þjóð, sem býr við svo
góð lifskjör sem íslend-
ingar.
Tillaga þingmanna
Alþýðuf lokksins er á þá
lund, að með nýrri lög-
gjöf skuli tryggja öllum
landsmönnum starfsum-
hverfi, þar sem ekki er
hætta á líkamlegu eða
andlegu heilsut jóni, en
vinnuskilyrði eru í sam-
ræmi við lífskjör þjóðar-
innar og tæknilega getu,
stuðla að virðingu vinn-
unnar og starfsgleði. Þá á
ný löggjöf að gera ráð
fyrir eðlilegum íhlut-
unarrétti vinnandi fólks
varðandi starfsumhverfi
sitt, en stefna að því, að
verkefni og vandamál á
þessu sviði verði sem
mest leyst í vinsamlegu
samstarfi verkafólks og
vinnuveitenda.
Núgildandi löggjöf um
öryggi á vinnustöðum er
rúmlega aldarf jórðungs
gömul, en hefur verið
mjög góð á sínum tíma,
enda vafalaust samin
eftir norrænum fyrir-
myndum. Hins vegar hef-
ur alla tíð skort mikið á,
að þessi löggjöf væri
framkvæmd til hlítar, og
hefur vinnandi fólk því
ekki notið þeirrar vernd-
ar, sem það á kröfu á
samkvæmt henni. Sem
dæmi má nefna, að ekki
eru nema örfá ár síðan
sett var mikilvæg reglu-
gerð, sem lögin gerðu ráð
fyrir, um atvinnuhús-
næði. öryggiseftirlit
ríksins er skipað ágætum
og áhugasömum mönn-
um, en það hefur aldrei
fengið þann stuðning
ríkisvaldsins, sem það
þurfti.
Þetta verður að breyt-
ast. Alþýðuf lokkurinn
stefnir að vakningu með-
ai alls verkafólks í þess-
um efnum og nýrri sókn
til þess aðgera vinnustaði
í hinum ýmsu starfs-
greinum sem bezt úr
garði og fjarlægja alla
óhollustu, sem þar fyrir-
finnst. Þetta er stórmál.
Það sjá allir aðilar í sam-
bandi við iðnað eins og ál-
bræðsluna eða hina fyrir-
huguðu járnblendiverk-
smiðju. En vandamálið
er til í f jöldamörgum öðr-
um iðngreinum, þótt
smærri séu. Atvinnusjúk-
dómar eru mun útbreidd-
ari og alvarlegri hér á
landi en fólk gerir sér
grein fyrir, enda hefur
legið i landi sú trú, að við
þeim sé ekkert að gera,
þá verði að umbera í
brauðstritinu. Þetta er
hrapalegur misskilning-
ur. Launþegar selja at-
vinnurekstrinum vinnu
sína, en ekki heilsuna.
Málefni járnblendi-
verksmiðjunnar á
Grundartanga í Hvalfirði
verða til umræðu á
Alþingi í þessari viku. Þá
munu þessi mál koma
frekar til umræðu og
munu þingmenn Alþýðu-
flokksins í því sambandi
leggja fram tillögur um
að lögbinda íhlutunarrétt
verkafólks um þessi mál
og leggja til, að kerfi
trúnaðarmanna verði á
vinnustöðum til að
fylgjast sérstaklega með
þessum málum.
Mikilvægast er þó, að
tillaga alþýðuf lokks-
manna um gagngera
endurskoðun á löggjöfinni
um vinnuvernd og
starf sumhverf i verði
samþykkt, og slík endur-
skoðun hafin hið fyrsta.
Allan þennan áratug hef-
ur verið unnið að nýrri
löggjöf á þessu sviði á
hinum Norðurlöndunum,
en íslendingar eru langt á
eftir.
Það mun koma í Ijós á
næstu vikum, hvort þing-
lið ríkisstjórnarinnar
hefur skilning á þessu
máli og samþykkir tillögu
Alþýðuf lokksins — eða
hvort málið verður svæft
i nefnd, eingöngu af því
að það er flutt af stjórn-
arandstæðingum. Þau ör-
lög hafa mörg góð mál
hlotið á Alþingi, nú eins
og áður.
BGr
Hér sjást Þörunn Vaidi-
marsdóttir formaöur Verka-
kvennafélagsins Framsóknar
(t.h.) og Ragna Bergmann vara-
formaöur (t.v.) á aöalfundi Kven-
réttindafélagsins. (Mynd: Kr.
Ben.)
Kvenréttinda-
félagid:
25. þús.
kr.
A aöalfundi Kvenréttinda-
félags tslands, 16. marz s.l. aö
Haiiveigarstööum afhenti
Þórunn Valdima rsdóttir,
formaöur Verkakvenna-
félagsins Framsókn, KRFl 25
þús. kr. aö gjöf I tilefni 70 ára
afmælis félagsins 27. janúar.
Þórunn sagöi m.a.: „Framsókn
á KRFl tilveru sína aö þakka og
vill sýna þakklætisvott fyrir lif-
gjöfina.” Verkakvennafélagiö
var stofnaö fyrir tilstuölan
Kvenréttindafélagsins 25. okt.
1914.
Sólveig Olafsdóttir var endur-
kjörin formaöur, aðrar i stjórn
eru Björg Einarsdóttir, vara-
formaður, Asthildur
ólafsdóttir, Aðalheiður Bjarn-
freösdóttir, Brynhildur Kjart-
ansdóttir, Erna Ragnarsdóttir,
Geröur Steinþórsdóttir, Kristin
Guðmundsdóttir, Guðrún Gísla-
dóttir, Þóra Brynjólfsdóttir,
Júliana Signý Gunnarsdóttir, og
Guðrún Sigriður Vilhjálms-
dóttir.
Guöný Helgadóttir, fyrrv.
formaöur og Anna Sigurðar-
dóttir, forstöðumaður Kvenna-
sögusafns Islands, voru kjörnar
heiöursfélagarj fluttar voru
skýrslur frá norrænni ráðstefnu
og alþjóðaþingi kvenna, er tveir
stjórnarmenn höfðu setið;
söfnun til minningar um
stofnanda félagsins fór
myndarlega af stað og mun
standa út árið og siðan renna i
Menningar- og minningarsjóð
kvenna; viðstaddir voru þrir af
fjórum fyrrverandi formönnum
KRFl. 10 manns gengu i félagið,
átta konur og tveir karlar, flutt
var sérstök afmælisdagskrá i
umsjón önnu Sigurðardóttur,
Valborgar Bentsdóttur, Ernu
Ragnarsdóttur og Elfu Bjarkar
Gunnarsdóttur og var gerður
góður rómur aö.
Framundan er mikið starf hjá
félaginu, sérstaklega er brýnt
aö bæta starfsaöstöðuna að
Hallveigarstöðum og mun
nauösynlegt aö gera sérstakt
fjáröflunarátak i þvi skyni.
Ársrit KRFl „19. júni” kemur
út I vor.
Næsti félagsfundur veröur
væntanlega 26. april og mun
fjallaö um: Jafnrétti innan fjöl-
skyldu —jafnrétti á vinnustað.
Trimmað
í Blá-
fjöllum
Skíðafélag Reykjavíkur
gekkst fyrir trimmgöngu í
Bláfjöllum(í fyrradag,
annan dag páska. Alls tóku
þátt í þessari göngu um 100
manns á aldrinum 6-74 ára.
Skíðafæri var ágætt, en
gengnir voru rúmlega 3
km. Páll Kristmannsson,
hjá Skíðafélagi
Reykjavíkur og Magnús
Guðjónsson hjá Skíðadeild
Fram, lögðu brautina og
sáu um framkvæmd göng-
unnar, sem heppnaðist í
alla staði eins og bezt
verður á kosið. —GEK