Alþýðublaðið - 13.04.1977, Síða 7
Miðvikudagur 13. apríl 1977
iUSTIB^MttHWC 7
Nemendaleikhúsið sýnir:
Tvo ein
þáttunga
eftir Brecht
Úrræðið í
fyrsta skiþti
hér á landi
Þann 18. april næst komandi
mun Nemendaleikhúsið frum-
sýna tvo einþáttunga eftir Bert-
hoit Brecht, úrræðið og Undan-
tekningin og reglan. Svo sem
kunnugt er standa að Nemenda-
leikhúsinu, fjórða árs nemendur
Leiklistaskóla tslands, hverju
sinni, og þetta skiptið saman-
stendur hópurinn af niu nem-
endum sjö stúlkum og tveimur
körlum.
Bæði leikritin eru þýdd af Er-
lingi Halldórssyni, en tónlistin
sem flutt er, er samin af Fjólu
ólafsdóttur, sem einnig annast
undirleik og nýtur þar ágætrar
aðstoöar ungs trymbils, Kormáks
Geirharðssonar.
Leikstjóri Nemendaleikhússins
er aö þessu sinni, Petr Milcka,
tékkneskur að ætt, en hefur siðan
1961 verið búsettur i Banda-
rikjunum. Micka sem lokið hefur
.masterprófi i listfræöi (master og
fine arts) kom gagngert hingaö til
lands til að stjórna þessari upp-
færslu Nemendaleikhússins.
Undantekningin og reglan
hefur áður verið flutt á sviði hér-
lendis, en þetta mun hins vegar i
fyrsta skipti sem islenzkur leik-
flokkur ræðst i að setja Úrræðið á
svið. A þeim tæpu fimmtiu árum
sem liðin eru frá þvi Brecht
skrifaði Úrræðið hefur það ein-
ungis verið sett á svið innan viö
tiu sinnum, þar af hefur það einu
sinni verið sýnt i Bandarikjunum.
Ekki veröur fariö út i þá sálma
hér að rekja efnisþráð þessara
verka, heldur eru menn eindregið
hvattir til að láta ekki þessa at-
hyglisverðu sýningu Nemenda-
leikhússins fram hjá sér fara.
1 leikskrá getur að lesa eftirfar-
andi hugleiðingu:
„Spurningin er:
Geturðu lifað, starfað og fengið
einhverju áorkað annarsvegar
eingöngu með tilfinningum —
ástriðum, eða hinsvegar með
skynsemi og rökum?
Spurningin er:
Standast kenningarnar þegar
út í framkvæmdina er komið og
hversu mikið er þá hægt að styðj-
ast við þær?
Úrræðið er skrifað upp úr
gömlu japönsku No-leikriti. Þar
var málsstaðurinn ekki
kenningarnar — flokkurinn,
heldur trúarlegs eðlis. Þar sam-
þykkti ungur maður dauða sinn
fvrir trúnn 1 Undantekningunniog
-lr.eglunni er aftur á móti maður
drepinn gegn vilja sinum. Það
sem er óraunverulegt i þessu
raunverulega leikriti Úrræöinu
er, aö að lokum samþykkir
stjórnarkórinn úrræði áróðurs-
mannanna, það er að segja iflát
eins ungs félaga þeirra, stað þess
að dæma þá morðingja eða loka
þá inni, eins og iðulega gerist
þegar valdhöfum er sýnt fram á
að kenningar þær sem veldi
þeirra er byggt upp á veröa ekki
svo auðveldlega framkvæmdar
og að ýmsu þarf að kosta til...”
—GEK