Vísir - 20.08.1971, Page 1
jiíltn ■.jrf Átóy.
VISIR
Er hægt að stjórna Geysi?
— Var látinn gjósa tv'ivegis i gær
„Ég tel að allt bendi til að við
getum ráðið við Geysi,“ sagði
Hallgrímur Björnsson, verkfræð
ingur í viðtali í morgun vió
Vísi, en í gær tókst enn að láta
Geysi gjósa, meira að segja tvi
vegis sama daginn. ,Gos?ð i
gærkvöldi um hálftólfleytið var
stórkostlegt,“ sagði Hallgrímur.
„Gossúlan myndaðist tvívegis
og naut gosið sín vel, uppljómað
í bílljósunum þar sem það bar
við stjörnubjartan himin.“
Sogpipur úr plasti voru settar 'i
Geysi og vatnið sogað þannig úr
skálinni, taldi Hailgrímur þessa að-
ferð góða og að með tímanum gæti
svo farið að mönnum tækist að
Ekki dregið úr évissunni
segrr Jóhannes Nordal, seðlabankastjóri, eftir fundinn i Stokkhólmi
„Óvissan er mikil, og
ekki hefur úr henni dreg
ið við fund fjármálaráð-
herra Efnahagsbanda-
lagsins,“ sagði dr. Jó-
hannes Nordal seðla-
bankastjóri í morgun,
en hann kom heim í gær-
kvöldi frá fundi seðla-
bankastjóra og fjármála
ráðherra Norðu**anda.
Dr. Jóhannes taldi lík-
legast, að gjaldeyris-
markaðir hér og á öðr-
um Norðurlöndum
mundu opna á mánudag
inn, eí EBE-Iönd og
Bretlaná opnuðu, eins og
líklegt er talið.
„t>að kemur væntanlega ekki
í ljós fvrr en seinni hluta helg
arinnar, hvort opnað verður og
þá með hvaða hætti," sagði seðla
bankastjóri. Eftir að fundur
EBE „sprakk“ í nótt, er útséð
um sameiginlegar aðgerðir EBE,
ög fer nú hver að leita að lausn
í sínu horni. Algjör vafi er um
endanlega niðurstöðu, eftir að
samkomulag tókst ekki milli
V.-Þjóðv., og þeirra er þá studdu,
annars vegar og Frakka hins
vegar. Margar tillögur hafa
komið fram um, að gengi
„fljóti" eöa séu tvöföld“, eins
og nánar er fjallað um á bls. 3.
Dr. Jóhannes sagði um Norð-
urlandafundinn, aö menn hefðu
skipzt á skoöunum um ástandið
og afráðið að fylgjast að um
aðgerðir, eftir því sem unnt
reyndist. Ástand væri enn of
óljóst til þess, að unnt hefði ver
ið að ákveða neitt endanlega
um afstöðu og viöbrögð.
Ef opinber gengisskráning
hæfist að nýju hér á landi á
mánudag, mundu seðlabanki og
rfkisstjórn þá aö sjálfsögðu hafa
ákveðið, með hvaða hætti geng-
isskráning og gjaldeyrisviðskipti
færu fram. Þetta væri ekki unnt
að gera, fyrr en séð yrði, hvað
aðrar þjóðir gerðu um helgina.
—HH
Koma hey-
kögglarnir i
stað erlends
kjarnfóðurs?
I sumar er von á ai'lt upp
undir 2000 lestum af heyköggl-
um frá verksmiöjunum á Rang-
árvöllum. Rannsóknir sýna að
fóðurgildi graskögglanna jafn-
gildi erlendu kjamfóðri til
fóðrunar kúa. Gæti hér orðið
verulegur gjaldeyrissparnaður
af framleiðslunni.
— sjá bk. 7
Ást / meinum
Nautabaninn heimfrægi, E1
Cordobes, er orðirm ástfangkm
af 15 ára skólastúlku f Hollandi.
Þetta sam'band hefur vitaskuid
^haft í för með sér ýmis vamd-
kvæði.
Sjá bls. 2
//
Síldveiði aftur mikilvæg við ísland
— Norski sjávarútvegsráðherrann telur út-
færslu landhelginnar geta skaðað Norðmenn
Norska ríkisstjórnin fylgist
gaumgæfilega með þróun
landhelgismála íslendinga eft
ir ákvörðunina um útfærslu í
50 mílur. Norski sjávarútvegs
málaráðherrann, Knut Hoem,
lætur í Ijós nokkrar áhyggjur
um afleiðingar útfærslu ís-
lendinga í viðtali við blaðið
Finnmark.
Norski ráðherrann segir, að
sem stendur hafi norska stjórn-
in ekki gert neitt ákveðið í
málinu og hún muni bíða meö
að taka endanlega afstöðu, þar
tij alþjóðaráðstefan, sem er fyr-
irhuguð árið 1973, hefur „fjallað
um þjóðréttarlegan grundvöll
slíkrar útfærslu".
Á þessari ráðstefnu á að taka
fyrir á breiðum grundvelli rétt
þjóða tii útfærslu fiskveiðilög-
sögu sinnar, og verða 80 þjóðir
þátttakendur í ráðstefnunni,
segir ráðherrann.
Hann segir ennfremur, aö
væntanleg útfærsla fiskveiðilög-
sögu íslands f 50 sjómílur muni
koma við „mjög verulega fisk-
veiðahagsmuni Norðmanna".
Norskir fiskimenn stundi veiðar
á því svæði, sem útfærsla Is-
lendinga tekur til, og norskir
togarar veiði á miðum þarna.
Hins vegar sé það síldveiðin,
sem útfærslan komi þyngst við,
segir ráðherrann. Að visu skipti
þetta ekki mjög miklu nú vegna
minnkunar síldarstofnsins, en
með þeim aðgerðum, sem nú séu
gerðar til að byggja upp sildar-
stofninn muni Islandsveiðin aft
ur geta oröiö mjög mikilvaeg
fyrir Norðmenn eftir nokkur ár.
Veruleg útfærsla fiskveiðilög-
sögu Islands muni því „þýða,
að norskir síldveiðimenn veriS
útilokaðir frá sínum hefðbundnH
veiðisvæðum," segir Kn»t
Hoem, sjávarútvegsráðherra t
viðtalinu. ' — HH
framkalla gos nokkuð regluiega.
I gær rétt upp úr þrjú gaus
Geysir stuttu og litlu gosi. Hverinn
var mjög heitur að söign Hall-
gríms, — 97 gráður á yfirborði og
um 123 gráður á 10 metra dýpi.
Þá hafði yfirborðið lækkað um eina
25 sentimetra og greiniiegt að gos
ið vat á hverri stundu.
Um kvöldið var greinilegt um
8-leyt,ið að Gevsir var ekki búinn
að ljúka sér af og vildi giósa á nv.
Þeir Hallgrímur og Þórir Sigurðs-
son voru við skálina og voru með
kassa fullan af sápu, þegar hver-
inn ræskti sig. „Við rétt komumst
upp úr skálinni og Þórir brenndi
sig líti'lsháttár, en sápuna tók hver
inn frá okkur," sagði Hallgrímur.
Þetta var kl. 11.15 og gaus Geys-
ir tignarlegu gosi í 35—40 minútur
og var tafevert af fólki viðstatt og
fólk sótt á næstu bæi til að sjá
gösið.
Hallgrímur sagði í morgun, að
samkvæmt útreikningum Sigurðar
Hal'issonar efnaverkfræðings væri
ekki fjarri lagi að Geysir ryddi úr
sér einum 170 t.il 180 tonnum af
vatni í fu'Mkomnu gosi. —JBP
Það er dýrt að ferðast um Is-
land, segja margir þeirra ferða-
manna sem sett hafa svip á bæjar
lifið að undanförnu. Það er ekki
sízt unga fólkið, námsfólk og bak-
pokaförumenn, sem kvarta undan
verðlaginu. Margir reyna þó að
bjarga sér á ódýrasta máta. Hún
hefur til dæmis ekki verið mjög
dýr máltíðin hjá þessum ungu
mönnum, sem fengu sér miðdegis-
verð í Austurtræti nú á dögunum.
Þeir fóru ekki inn á Hressó, eða
Nautið, heidur snæddu máltíð sína
í miðri „traffikinni“ á gangstéttinni
og máltíðin var ein mjólkurhyrna,
sem þeir sjást hér vera að bisa
við að opna.
Sökin ekki
öll okkar,
segja kaup-
menn
Að undanfömu hefur Visir
gert athuganir á geymslu græn
metis og ávaxta í búðum héri
Reykjavík. Niðurstaðan var lé
leg fyrir búðirnar, og þá vitan-
lega neytendur. En við eigum
ekki alla sökina, segja kaup-
menn, og benda á ýmislegt um
þessi mál í grein i biaðina i
dag.
S/ó bls. 13
Raunveruleg
gengislækkun
Þorsteinn Thorarensen fjallar
um aðgerðir Nixons Bandaríkja
forseta í dag í föstudagsgrein
sinni í blaðinu.
Sjá bls. 8