Vísir - 20.08.1971, Page 3
3
Ví SIR. Föstudagur 20. ágúst 1971.
í MORGUN UTLONDI MORGUN UTLÖND I MORGUN UTLOND I MORGUN UTLOND
Gjaldeyrismarkaðir opna á mánudag:
Umsjón: Haukur Helgason
Frakkar neituðu að hækka frankann
— Slitnaði upp úr fundi EBE i nótt — Sumir
fíjóta, aðrir með tv'ófalt gengi? — Japanir
ánægðir og telja sig ekki þurfa að hækka
Tilraun Efnahagsbanda-
latgsríkjanna til að komast
Stóri Minh vill ekki „vera með
í skrípaleik“.
að samkomulagi um stefnu
í gengismálunum fór al-
gerlega út um þúfur, og er
Frökkum kennt um. Frakk
ar neituðu að hækka gengi
franska frankans gagnvart
dollar.
Fundurinn rann út 1 sandinn
klu'kkan t-vö í nótt eftir 16 kilukku
stunda setu manna. Blaðamenn
gátu strax lesið þar af andlitum
fjármálaráðherranna og sérfræðing
anna, að aílt hefði mistekizt. Sum
ir fuMtrúanna töluðu um „hrun“.
Japanska rikisstjómin er sögð
hafa látið i ljós ánægju með þessi
mistök Efnahagsbandalagsins, því
að nú séu betri möguleikar fyrir
«&r-
THIEU EINN
I FRAMBOÐI
— „Stóri" Minh dregur sig til baka
Minh, sem var
ekti keppinautur Thieus
forseta Suður-Víetnam í
forsetakosningunum, hef-
ur nú afturkallað framboð
sitt. „Stóri" Minh, eða
Duong Van Minh hershöfð
ingi var eitt sinn forseti, og
hann hefur alla tíð átt mik
ið fylgi í landinu. Nú segir
hann, að Thieu beiti brögð
um í kosningabaráttunni.
Minh ritaði hæstarétti Suður-
Víetnam og sagði, að sá ótti hafi
ekki reynzt ástæðulaus, að Van
Thieu mundi beita svikum og
falsa kosningarnar. Hann drægi
sig til baka af því að hann vildi
ekki eiga neinn þátt í skrípaieik
sem þessum.
Áður haföi Ky núverandi vara-
forseti Suöur-Víetnam oröiö að
hætta við framboö í forsetakosn-
ingunum, af þvi að honum tókst
ekki að fá nægilega marga meðmæl
endur úr röðum sveitastjórnar-
manna. Kosningalög krefjast á-
kveðinna meðmælenda úr þeim
hópi. Ky segir, að Thieu hafi
beitt kúgun til að hindra, að
menn mæltu með andstæðingum
hans.
„Stóri“ Minh hafði hins vegar
fengið nægilega meðmælendur.
„ . . OG EFTIR VAR ÞA EINN“. Thieu er nú einn um hituna
— Ky varaforseti hans (með yfirskeggið) og stóri Mlnh saka
Thleu báðir um svindl.
Japani að komast hjá að hækka
gengi jensins.
Þrátt fyrir margendurteknar yfir-
lýsingar um, að EBE yrði bæði af
stjórnmálaiegum og efnahagslegum
orsökum að ná samkomulagi iim
afstöðu til aðgerða Nixons, þjUpitu
fjármálaráðherrar EBE, þegar á
hóiminn kom, ekki orðið sammála
um annað en að gjaldeyrismarkað-
urinn f EBE-löndum skyldi opnað-
ur að nýju á mánudag. Annars eru
Efnabagsbandalagslöndin óbundin
og getur hvert farið sína eigin leið
í gengismálunum.
Þau lönd, sem kunna að kjósa
að láta gengið „fljóta“ geta gert
það að viil’d. Frakkar vilja hafa
„tvöfalt gengi“, annað til að greiða
venjuleg vöruskipti, hitt fyrir önn
ur viðskipti, sem bera meir keim
spákaupmennsku.
Það var almennt talið í Briissel
að fundur fjármálaráðherra EBE
hefði verið sögulegur viðburður og
einstætt tækifæri ttl að taka for
ystuna í tilraun til að koma nýrri
skipan á peningamálin í heimin-
um. Jafnframt hefði hann átt að
vera tækifæri fyrir EBE til að kom
ast nær stofnun eigin gjaldeyris
bandalags. Þetta tækifæri hefurnú
fariö út um þúfur, að minnsta kosti
er kominn hnútur sem ekki leys
ist um sinn. Flestir kenndu í morg
un Frökkum um aðhafarofið sam
komuílag. ítalski fjármálaráðherr-
ann Ferrari-’Agvradr sagði é - blaða
mannafundi, að ekki væri efi á, að
Frakkar hefðu tekið afstöðu, sem
hefði verið algerlega frábrugðin af
stöðu annarra þjóða.
Hinir fimm bandamenn Frakka
í EBE gátu komið sér saman um
afstöðu, sem byggist á tillögum
Vestur-Þjóðverja, em gengu f aö-
alatriðum út á það, að gjaldmiðl-
ar EBE-ríkja skyldu ekki iengur
miðaðir við dollar í gengi, heldur
hver við annan og meiri sveigjan-
leiki skyldi vera við gengisskrán-
ingu dollarans gagnvart öðrum ríkj
um en verið hefur Þetta kerfi
yrði því ,,hál.ffljótandi“.
Fjármélaráðherrar EBE voru sam
mála um, að þeir skyldu hittast
aftur 13. september.
Japanir óttuðust, að
árangur yrði
Ríkisstjórn Japans er sögð hafa
óttazt, að árangurinn yrði góður
og samkomulag næðist á fundi EBE
í Brtlssel. og jafnframt mundi verða
samkomulag á fundi fulltrúa 10
helztu iðnaðarríkja Vestur-Evrópu
um málið. Nú varpa ráðherrar í
Tðkíó öndinni léttar. Þeir telja,
að hinn misheppnaði fundur muni
nú gera kleift, að Japanir og Banda
ríkiamenn semji sín á milli um
málið, en út úr því gera Japanir
sér betri vonir. Stjórnvöld í Japan
vi'lja ekki hækka gengi jensins eða
láta það f'ljóta frjálst.
10-landa fundurinn
september.
verður 19.
Gjaldeyrismarkaðir opna
eftir helgi
Gjaldeyrismarkaðir f ríkjum
Efnahagsbandalagsins opna á mánu
dag. Jafnframt sagði brezki fjár-
málaráðherrann Anthonv Barber
eftir Brusselfundinn, aö gjaldeyris
markaðir á Bretlandi mundu vænt
anlega opna á mánudag.
Gjaldeyrismarkaðir lokuðu eftir
ræöu Nixons og yfirlýsingar hans
um aðgerðir í efnahagsmálum í
byrjun vikunnar.
„Yið höldum, að hér
séu brezkir hermenn44
— sögðu árásarmennirnir og hleyptu af
Grímuklæddir og vopnaðir menn
brutust i gær inn í hús í kaþólska
hluta Belfast og skutu á þrjá menn.
Tveir hinna særðu munu hafa ver
ið brezkir hermenn. Mennimir særð
ust alvarlega, einkum einn þeirra.
Þeir höfðu setið og horft á sjón
varp þegar vopnaðir menn brutu
upp dyr og hrópuðu: „Við höldum,
aö hér séu brezkir hermenn“.
Hleypt var af, og síðan hurfu á-
rásarmennirnir brott.
_@,Torrez er valtur.
Neyðarástand í Bólivíu
— eftir uppþot hægri manna
Hin vinstri sinnaða rík-
isstjórn í Bólivíu lýsti yfir
neyðarástandi í landinu í
gærkvöldi eftir átök í bæn
um Santa Cruz.
Jorge Gallardo innanrikisráö-
horra sagði, þegar liann tilkynnti
um nevðarástand, að hægri menn f
bænum hefðu staðið bak við upp
þot, sem þar urðu. Santr r’’-uz er
miðstöð G'líuvinnslu í ' dl
ardo sagði í útvarpsr; rík
isstjórn Juan Torrez he.ó. engu
að síður fulla stjórn á málunum.
Stjórnvöld höfðu áður skýrt frá
því, að einn hefði beðið bana og
tveir særzt, þegar lögreglan dreifði
hópi stjórnarandstæðinga, sem
höfðu ráðizt á útvarpsstöðina 1
Santa Cruz. Eftir árásina á út-
varpsstöðina, handtók lögreglan 30
manns. Fjórtán hinna handteknu
var seinna sleppt, en íyrrverandi
yfirmaður herskólans í La Paz,
Hugo Banzer hershöfðingi, var
fluttur til höfuðborgarinnar, og hin
ir fimmtán eru 1 fangelsum í Santa
Cruz. Þeir hafa al'lir verið ákærð
ir fyrir neðanjarðarstarfsemi gégn
ríkisstjórninni.