Vísir - 20.08.1971, Blaðsíða 4
4
V í S IR . Föstudagur 20. ágúst 1971
áfc,
SKIPAUTGCRB RÍKÍSllTs
Ms. Hekla
ffef austur um land til Akureyrar
25. þ.m. Vörumóttaka fimmtudag,
föstudag, mánudag til Homafjarð-
ar, Djúpavogs, Breiðdalsvikur,
Stöðvarfjarðar, Fáskrúðsfjarðar, —
Reyðarfjarðar, Eskifjarðar, Norð-
fjarðar, Seyðisfjarðar Borgarfjarð
ar, Vopnafjarðar, Bakkafjarðar,
Þórshafnar, Raufarhafnar Húsavík-
ur og Akureyrar.
r Nútíma .
í skrautmumr,
I menoghálsfestar.
SKÓLA^ÖRÐUSTÍG13.
Hreint
vatn
Gott sumar fyrir
þær líka.
Það eru ekki bara þið mann
fólkið, sem hafið fagnað góðu
sumri, segir hún þessi. Við hitt
um hana niður á Tjörn í gærdag.
Hún sagði að endurnar, stöllur
hennar, hefðu líka átt náðuga
daga í sól og sumri. Síðustu dag
ar hafa verið heldur votir við-
urkenndi hún, en rétt um það
bil brutust sólargeislar fram úr
skýjunum og nú lítur út fyrir
að sumarið haldi áfram í sama
„stíl“ og fyrr i sumar.
Tekjuöflun sveitar-
félaga
Félagsmálaráðherra, Hanniba!
Valdimarsson, hefur hinn 16. þ.
m. skipað nefnd til að endur-
skoða gildandi löggjöf um tekju
stofna sveitarfélaga og er nefnd
inni falið að lokinni þeirri endur
skoðun, að semja frumvarp ti!
laga um þær endurbætur á tekju
öflunarkerfi sveitarfélaganna,
sem hún telur rétt og nauðsyn-
legt að gera. j. nefndinni eig'a
sæti;
Alexander Stefánsson, oddviti,
Ölafsvík,
Jóhann Hermannsson, bæjarfull
trúi. Húsavík,
Steinunn Finnbogastóttir, borg-
arfulltrúi, Reykjavík,
Ólafur Jónsson, framkvæmda-
stjóri Kópavogi.
Hjálmar Vilhjálmsson, ráðuneyt
isstjóri, sem jafnframt er for
maður nefndarinnar.
Biskup vísiterar
Biskup íslands visiterar Barða
strandarprófastdæmi dagana 24.
ti! 29. ágúst n.k. Verður visitazi
unni hagað sem hér segir:
Þriðjudaginn 24. ágúst kl. 3
e. h Flatey, miðvikudaginn 25.
ágúst kl. 2 e. h. Gufudalur, —
sama dag kl. S e.h. Skálmar-
nessmúli, fimmtudaginn 26.
ágúst kl. 1 e.h. Brjánslækur, —
sama dag k!. 5 Hagi, föstudag-
inn 27. ágúst kl. 1.30 Sauðlauks-
dalur, — sama dag kl. 5 Breiða
v’ik, laugardaginn 28. ágúst kl.
2 e.h. Selárdalur, — sama dag
kl. 6 e. h. Bílduda'.ur sunnudag
inn 29. ágúst kl. 2 e.h Patrek
fjörður, — sama dag kl. 5 Stóri-
Laugardalur.
Guðsþjönusta verður í öllum
kirkjunum, svo og viðræður við
sóknarnefnd og söfnuð.
Bretar með í fyrsta
sinn á vörusýn-
ingu hér
Alls 31 brezkt fyrirtæki mun
eiga aðild að brezku deildinni í
alþjóðlegu vörusýningunni, sem
hefst í Reykjavík 26. ágúst n.k.
Þetta er í fyrsta sinn sem Bret
ar eru með f sýningu hér á
landi að sögn London Press Ser
vice. Bretar munu sýna mjög
fjölbreytilegan varning, t. d.
gólfteppi, bakpoka, matvörur,
snyrtivöirur þvottavélar, skrúf-
ur, leikföng gúmmívörur, reið-
hjól, rúm, strauborð, skyrtur og
ullarpeysur, — svo eitthvað sé
nefnt. Þá sýnir British Leyland
hinn nýja Range Rover í fyrsta
sinn á íslandi.
5300 sh'ðaðir hjá
HÆ-samtökunum
á síðasta ári
AMs voru 5300 manns skoð-
aðir á síðasta starfsári í rann-
sóknarstöð Hjartaverndar, lands
samtaka hjarta og æðaverndar
félaga í Lágmúla 9. Rannsókn
höfst í febrúar s. 1. á Akureyri
á vegum samtakanna og lögðu
einstaklingar, félög og firmu
þar nyrðra 2 millj. króna til
rannsóknarinnar. Sigurður Sam
úelsson, formaður samtakarma
sagði á aðalfundi Hjartaverndar
að hann vonaðist til að undir-
búningur á rannsókn fólks á
Suöurlandsundirlendi gæti haf-
izt f náinni framtíð. Á fundin-
um afþenti dr. Guðrún P. Helga
dóttir,1 formaður utanfararsjóðs
Hjartaverndar stjórninni sjóð-
inn, nær 2 milljónir, en samkv.
lögum eru sjúklingar nú styrkt
ir til utanfararinnar og sjóðs
ins ekki lengur þörf.
85 ræðismenn
af 130 þiggja boð
um íslandsferð
Utanrfkisráðuneytið hefur boð
ið ræðismönnum íslands til ráð
stefnu í Reykjavfk. Af um 130
ræðismönnum koma 85, og
verða eiginkonur flestra þeirra
með þeim. Fundir verða í Loft-
leiðahútelinu 25. og 26. ágúst n.
k. og flytja þar erindi Einar
Ágústsson, utanrfkisráðherra, er
mun m. a. ræða landhelgismálið,
og Magnús Torfi Ólafsson,
menntamálaráðherra. — Sýnd
verður íslandskvikmynd, flutt
verða erindi um efnahags- og
viðskiptamál, sýnd atvinnufyr-
irtæki í Reykjavfk, og ýmsir
fulltrúar atvinnulífsins verða á
fundi með ræðismönnunum. —
Föstudaginn 27. ágúst verður
farið að Gullfossi og Geysi og
til Þingvalla. Flestir ræðismann
anna koma til landsins 24.
ágúst og fara aftur 28. ágúst,
en nokkrir koma fyrr og verða
lengur.
Tilgangur ráðstefnunnar er að
kynna ræðismönnunum landið,
ekki sízt efnahagsmál þess og
viðskiptamöguleika.
Trésmiðjan Víðir
auglýsir
Seljum næstu dugu lítið gulluður
kommóður múluður hvítur — ruuður
— blúur
25% afsláttur
Verzlið í Víði
Laugavegi 166 — Sími 22229