Vísir - 20.08.1971, Síða 5
Vl SIR . Föstudagur 20. ágúst 1971.
Enn sigrar
Víkingur
Einn leikur var háður í
2. deild í gærkvöldi í Hafn
arfirði og sigraði Víkingur
þar Hauka örugglega með
3—0. Víkingur hafði mikla
yfirburði í leiknum og gef-
ur þessi markatala þá varla
til kynna.
í fyrri hálfleik skoraði Viking-
ur eitt mark og var Eiríkur Þor-
steinsson þar að verki. Auk þess
átti liðið fjögur skot i stangir
Haukamarksins. í síðari hálfleikn-
um bætti Víkingur tveimur mörk-
um við. Hið fyrra skoraði Guðgeir
Leifsson, iandsh'ðsmaður Víkings,
með mjög fallegu skoti frá vítateig
efst í markhornið Guðgeir var
bezti maöurinn á vellinum og hefur
nú alveg náð sér eftir meiðsli, sem
háöu honum um tíma í sumar.
Síðasta markiö skoraði svo Óiaf-
ur Þorsteinsson, Víkingur átti einn-
ig stangarskot í þessum hálfleik —
tvívegis, auk þess, sem einu sinni
var skállað í stöng, og má því
segja, að stangir Haukamarksins
hafði veitt liðinu óvenjulega vörn
í þessum leik. Haukar náðu sér
aldrei verulega á strik í leiknum,
en allir beztu leikmenn liðsins vöru
með, þrátt fyrir handboltann á Is-
landsmótinu.
Staðan í
2. deild
eftir leikinn í gærkvöldi:
Víkingur 10 8 1 1 35—4 17
Ármann 9 5 3 1 22—8 13
■F.H. 8 2 5 1 16-7 9
Þróttur R 9 4 1 4 13-8 9
Haukar 10 3 3 4 13-12 9
ísafjörður 10 3 2 5 18—24 8
Þróttur N 8 1 2 5 7—32 4
Selfoss 8 1 1 6 7—36 3
Markhæstu leikmenn eru: Hafliði
Pétursson, Víkingi, 16 — Bragi
Jónsson. Ármanni, 10,.— og Frið-
rik Ragnarsson, F.H., 10.
Næstu leikir eru á laugardag. Þá
leika Þróttar-liðin i Neskaupstað,
og Selfoss—Ármann. Báðir leikirn-
ir hefjast kl. fjögur.
Haukar í
úrslit
Haukar hafa tryggt sér
•étt í úrslit íslandsmótsins
• útihandknattleik. Þeir
ngruðu Þrótt i gærkvöldi
neð 23—16 og hafa þar
ueð sigrað í A-riðli móts-
ns. í B-riðlinum stendur
æppnin milli FH og Fram.
Leikur Hauka og Þróttar var
ikemmtilegur og nokkuð jafn lengi
rel. Þróttarar héldu í við Hauka
rar til undir lok hálfleiksins, að
Ráðast úrslit 7 1. deild-
kmi í Keflavík á morgun:
— Þá leika Keflvikingar og Vestmannaeyingar
Nú er stór helgi fram
undan í 1. deildar-keppn
inni í leik Keflvíkinga og
inni í eik Keflvíkinga og
Vestmannaeyinga þeg-
ar þeir mætast í Kefla-
vík á morgun? — Þetta
er stóra spurningin og ef
annað hvort liðið sigrar
í þeim leik má telja nokk
uð víst, að það verði ís-
landsmeistari á því herr-
ans ári 1971. Einkum á
þetta þó við um Vest-
mannaeyinga, sem nú
hafa leikið sex sigurleiki
í röð.
En viö skulum líta nánar á
möguleika liðanna og þá leiki
sem eftir eru.
Keflavik—Vestmannaeyjar.
. Liðin standa bezt að vígi í
baráttunni um meistaratitilnn —
hafa tapað jafnmörgum stigum,
sex hvort en Ve’stmannaeyingar
hafa leikið einum leik meira.
Þeir eru efstir með 16 stig, en
Keflvíkingar hafa 14 eftir tíu
leiki. Fram hefur 13, Akranes
og Valur 12 eftir 11 leiki, svo
önnur liö, en Keflavík og Vest-
mannaeyingar koma vart til
greina í baráttunni um meist-
aratitilinn.
Vestmannaeyngar eiga því
eftir þrjá leiki. Hinn þýðingar-
mesti er ’i Keflavík á morgun og
hefst kl. fjögur, en auk þess eiga
þeir. eftir að leika við Akureyri
í Vestmannaeyjum og Breiða-
blik. Leikurinn við Akureyri
verður laugardaginn 28. ágúst,
en gegn Breiðabliki á Melavelli
laugardaginn 4. september.
Keflvíkingar eiga eftir fjóra
leiki, tvo þeirra við KR. Leik-
urinn þeirra við KR á Laugar-
dalsvelli átti að fara fram 12.
júlí en var þá frestað, og er
okkur ekkj kunnugt um hvenær
hann verður á dagskrá. En það
hlýtur eiginlega að verða í
næstu viku Þá leika Keflvfking-
ar við KR í Keflavík 5: septem-
ber. Auk þess eiga þeir eftir að
mæta Val á Laugardalsvelli og
verður sá leikur 29. ágúst.
Af þessu má sjá, að næstum
allt veltur á úrslitum leiksins 1
Keflavík á morgun. Ef Vest-
mannaeyingar vinna má telja
öruggt að meistaratitilinn verði
þeirra í fyrsta skipti — sigri
Keflvíkingar verður keppnin'
miklu óvissari og spenningur
til loka. Og jafntefli? Það eru
kannski sennilegustu úrslitin og
þá verðum við að minnsta kosti
að bíða fram til 4. og 5 sept-
ember til að fá vissyTÍlch hvorf
liðið verður sigurvegari í hinni
skemmtilegu 1. deildar-keppni.
Akranes—K.R.
Á morgun leika einnig gömlu
keppinautarnir Akranes og KR.
Sá leikur verður á Akranesi og
hefst kl fjögur Fyrir Akurnes-
inga skiptir leikurinn talsverðu
máli, þó möguleikarnir á sigri i
deildinnj séu að mestu úr sög-
UctlcUUUI JUiIUððUU SCHUII tvuutt 11111 llctlll UJcl Furucigl lIlclIK-
verði Fram og skorar annað mark IBV á miðvikudaginn.
unn. En annað sæti í deildinni
gefur rétt í EUFA-keppnina
næsta ár og það er mikiö mark
að stefna að. En KR-ingar munu
áreiðanlega ekki gefa sig fyrr en
í fulla hnefana. því þeir berjast
fyrir tilveru sinni í deildinni.
Eitt stig — og útltið yrði miklu
bjartara, en varla eru líkur á
því — þó reyndar ekkert sé
útilokað i knattspyrnu — eins
vel og Akurhésihgar hafa- leikið
að undanförnu.
nniv -ii.iln-iii tniíiv fcisu i.; *
Breiðablik—Akureyri.
Þetta er þýöingarmikill leikur
og veröur á Melavellinum á
sunnudag og hefst kl fjögur.
Það lið, sem sigrar í leiknum,
hefur raunverulega tryggt sér á-
framhaldandi setu I 1. deild og
það er talsvert til að keppa að.
Bæði liðin hafa sjö stig —
tveimur meira en KR. Þetta verð
ur því baráttuleikur og verði
jafntefli þá minnka möguleikar
KR mjög til að bjarga sér. g
Breiðablik á að auki eftir að
leika við ÍBV og Akranes —
Akureyri á eftir ÍBV og Val, en
leikurinn við Val verður á Ak-
ureyri.
Fram—Valur.
í fyrri leik liöanna sigraði
Valur 5—3 í einum skemmtileg-
asta leik sumarans — en hver
^véróá' úrslitin héf-ur
- gengið nijö^ j}^^<|-%ndanfð.rrru,'
Fram tapáð þreimir s'iðustu,
leikjum sínum og Valur tveim-
ur En hafa þau möguleika að
verða ofarlega í deildinni — þó
fyrsta sætið sé sennilega úr
sögunni — og því er til mikils
að berjast. Þau stefna í Evrópu-
keppni. Aö vísu er þátttaka í
slíkri keppni happdrætti — en
þó happdrætti, sem vert er að
vera þátttakandi i. — hsim.
Jóhannes Atlason horfir döprum augum á knöttinn, enda hefur hann hafnað í marki Fram. Vestmannaeyingar, til vinstri,
fagna fyrsta marki sínu á miðvikudag. Þessi mynd átti revndar að birtast í blaðinu í gær, en á einhvern furðulegan hátt kom
þar í staðinn mynd af þjálfara Fram og varamönnum, og vissulega fögnuðu þeir ekki þessu fyrsta rnarki ÍBV. — Ljósm. BB.
Haukar náðu fimm marka forskoti,
12—7 í hálfleik. Þrótti tókst að
minnka muninn um tíma í síðari
hálfleik niður í þrjú mörk, en réði
hins vegar ekki við lokasprett
Hauka og munurinn var sjö mörk
i lokin.
Hjá Haukum skoraði Stefán
Jónsson langflest mörk eða 11 tals-
ins, en næstur var Viðar Símonar-
son með sex.
Þá léku FH og KR ‘i gærkvöldi
og var það mjög skemmtilegur
leikur lengi vel, en undir lokin kom
nuin betri þjálfun Hafnfirðinga í
ljós og FH sigraði með 21—14.
KR byrjaöi á aö skora í leiknum
og mikið jafnvægi hélzt í leiknum
lengi vel. KR hafði til dæmis yfir
5—4, en síðan komst FH í 6 — 5,
en staðan í hálfleik var alveg jöfn,
7—7. í síðari hálfleik var hart
barizt en undir lokin skorLi KR-
inga úthald og fengu þá mörg mörk
á sig Flest mörk FH-inga skoraði
Ólafur Einarsson, en þeir Hilmar
Björnsson og Haukur Ottesen voru
drýgstir við að skora af KR-ingum.
fslandsmótið heldur áfram á
sunnudag kl. 19.30 í porti Austur-
bæjarbarnaskólans. Þá leika Grótta
— Þróttur og KR—Vikingur.