Vísir - 20.08.1971, Síða 7
VfSIR. Föstudagur 20. ágúst 1971.
7
Reikna með beztu korn-
uppskeru til þessa
— ftetkna með crð fá 30 tunnur af byggi at hektaranum á Þorvafdseyri
Tilraunir, sem gerðar hafa ver
;ð með kornrækt undir Eyjafjöll
um hafa gefizt mjög vel og í
sumar virðist ætla að verða
bezta uppskeruárið til þessa. 4
tímabili höfðu sex bændur korn
rækt meðfram öðrum búskap,
en nú er aðeins ræktað korn á
tveimur bæjum.
Eggert Ólafsson bóndi á Þor-
valdseyri sagði við blaðamenn,
sem heimsóttu hann í gær, að
hann reiknaði _með að fá um
30 tunnur af byggi af hektaran
um í haust, en hann sáöi í 7
hektara lands í endaöan apríl í
vor. Eggert sagðist búast við að
uppskeran yröi um mánaðamót-
in september—október.
Til samanburðar má geta þess
að í fyrra fengust aöeins 10—11
tunnur byggs af hektaranum á
ekrum á Þorvaldseyri, en korn
ið þroskaðist þar hins vegar
þrátt fyrir óhagstætt tíðarfar.
Eggert sagöist nota allt sitt
korn sjálfur og 80% af upp-
skerunni hefur venjulega farið
til þess að fóðra svín. —,TH
Heykögglar geta komið i
stað erlends kjarnfóðurs
— Tilraunir sýna að kýr mjólka ekki siður af
beim en mjöli — Heykögglaframleiðslan
2000 lestir i ár
Heykögglaverksmiðjurnar
tvær á Rangárvöllum munu
skila allt upp undir 2000 tonn
um af heykögglum í sumar og
er það mesta heykögglafram
leiðsla, sem hingað til hefur
átt sér stað hér á landi. —
Kögglaverksmiðjan í Gunnars
holti hefur hingað til ekki
náð 1000 lestum á sumri, en
hún hefur starfað í nokkur
ár, hins vegar er ve.ksmiðj-
an á Stórólfsvallabúinu hjá
Hvolsvelli ný en starfaði áð-
ur sem heymjölsverksmiðja.
Að sögn Hjalta Gestssonar virð
ast rannsóknir benda til þess að
heykögglar jafngildi erlendu
kjarnfóðri til fóðrunar kúa.
Athuganir em geröar hafa veriö
bæði á tilraunabúinu að Laugar
dælum og eins á tilraunastöð
landbúnaðarins á Akureyri sýna
að kýr virðast mjölka jafn vel,
þótt þær fái heykögglana ein-
vörðungu með heyinu eins og
ef þeim er gefið erlent kjarn-
fóður. Virðast heykögglarnir því
geta leyst erlenda kjarnfóðrið af
hólmi að verulegu leyti. En
fóðurinnflutningurinn nemur um
60 þúsund lestum á ári.
Samband íslenzkra samvinnu-
félaga hefur flutt út 9 lestir af
heykögglum til Þýzkalands í til
raunaskvni og fékkst þar mjög
gott verð fyrir þessa vöru, eða
10 kr. fyrir kílóið, en köggl-
arnir hafa verið seldir hér inn
anlands fyrir 9 kr. kg. og eru
þá flutningsgjöld ekki innifalin
í hvorugu tilfelli. Leitað hefur
verið eftir markaði fyrir hey-
köggla víðar og virðist vera
grundvöllur fyrir útflutningi á
heykögglum í talsverðum mæli.
Bændasamtökin í ýmsum
landshlutum munu hafa mikinn
áhuga á að koma upp slíkum
verksmiðjum og er verið að at-
huga möguleika á aö koma upp
slíkri verksmiðju f Dölum, Eyja
firði og víðar. —JH
t Miklar til-
færslur i
utanríkisvið-
skiptum
■ Meiri tilfærslur hafa orðiðl
í utanríkisviðskiptum ís-1
lands en annarra EFTA-ríkja ,
fyrstu mánuði ársins. Útflutn-
ingur fslands til annarra EFTA- ‘
landa drðst saman um 43,8 (
prósent í maí miðað við sama j
mánuð í fvrra. Ilins vegar jókst
innflutningur fslands frá Banda'
ríkjunum um 114,3 prósent í maí (
miðað við sama mánuð í fyrra. |
■ Útflutningur ísfands til j
EFTA-ríkjanna var í mai
um 360 milljónir króna. Til'
landanna í Efnahagsbandalag- (
inu var tUílutningurinn um
140 milljónir, og til Bandaríkj I
anna um 420 milljónir. Þetta |
var 23,1% aukning á útflutn-,
ingi til EBE og 29,7% aukn-
ing til Bandaríkjanna. i
”9 Innflutningur íslands frá (
EFTA jókst um 71,2% miðað við j
sarrta mánuð í fyrra, frá EBE,
var aukningin 38,2% og frá'
Bandarikjunum 114,3%.
—H l-I I
Félag heiðursmanna og
alþingismanna 100 ára
Rétt rúm 100 ára eru liöin
siðan „nokkrir heiðursmenn ...
tóku sig saman um að hvetja
landsmenn til aö sýna í verkinu,
að þeir hefðu þrek og samheldni
að vera sjálfstætt þjóðfélag og
vinna sér þau réttindi, sem þar
til krefðist að h'alda þeim.“
Hiö íslenzka þjóðyinafélag var
svo stofnað 19. ágúst 1871, og voru
stofnendur þess 17 þjóðkjörnir al-
bingismenn, Stofnun félagsins átti
sér nokkurn aðdraganda, fyrst á
alþingi 1869 fyrir forgöngu Tryggva
Gunnarssonar og síðar á sýslu-
fundi Suður-Þingeyinga 8. júní
1870, er „heiöursmennirnir tóku
sig saman um að hvetja lands-
menn ...“
Tilgangur félagsins var þannig í
upphafi stjórnmálalegur, og fyrsti
formaður þess var Jón Sigurðsson.
Félagið efndi t. d. tii þjöðfundar
á Þingvöllu-i 1873, og sumariö
1874 stóð það fyrir þjóðhátíð þeirri,
er haldin var í minningu þúsund
ára byggöar á íslandi. Brátt sneri
félagið þó af stjómmálavettvangi
og hóf útgáfu ýmissa rita svo sem
Andvara og hins fræga Almanaks
Þjóðvinafélagins.
Næstu daga mun standa sýning
á ritum Þjóövinafélagins og verður
hún í húsakynnum Bókaútgáfu
Menningarsjóös og Þjóðvinafélags-
ins að Skáíholtsstig 7. —GG
Tækjamaður I
Vanur maður öskast á BR0YT skurðgröfu. — Uppl.
í síma 31155 eöa 32756.
Kíktu á Ingólf
og tízkufötin
„Ooooooo, viö erum bara að
verzla pínulítið. Það er svo ösköp
eitthvað skemmtilegt, að labba í
miðbænum á svona dögum og
verzla p£nulítið,“ sögðu þær og
píröu augunum framan i ljósmynd
arann okkar, hann Ástþör, á meðan
hann mvndaði þær baki brotnu.
„Nei, nei. Viö ætlum ekki aö
kaupa nein ósköp. Bara rétt nóg
til að sýnast. Við erum búnar að
kíkja á það nýjasta í pop-verzlun-
um og núna ætlum við aö feikja
rétt se msnöggvast á hann Ingólf
Arnarson og hina á hólnum Iians,“
bættu þær við og voru svo búnar
að snúa sér' á hæl og trítlaöar af
staö áður en ljósmyndarinn gat
fengiö þær til að segja til nafns.
.... —ÞJM
Maður óskast
á loftpressu. — Uppl. í síma 40519.
Keflavíkurvöllur
Laugardag kl. 3
Miðasala frá kl. 1.
I. B. K.