Vísir - 20.08.1971, Blaðsíða 13
13
VÍSIR. Föstudagur 20. ágúst 1971.
BÆHEIMS kristall
geymsluþol hinnar
„Stóra rófan er pínd í.fram með áburðargjöf, hún endist mánuðinn
er fram í aprilmánuð.“
Hugsum
áður en við
hendum ©
glæsilegt úrval
KRISTALL
Skólavörðust. 16 - S.: 13111 [
— Kaupmenn finna
ýmislegt aðfinnsluvert
i sölu og innflutningi
grænmetis og ávaxta
Kartöflur frá grænmetisverzluninni og kartöflur úr kaupmannsgaröi.
Víða er pottur brotinn
Tiiða er pottur brotinn“.
Þessi málsháttur getur
verið' summan úr viðræðum,
sem Fjölskyldusíðan átti við
kaupmenn um ýmislegt varð-
andi grænmeti, ávexti og aðra
viðkvæma matvöru í þessum
matvöruflokki.
Fyrr í vikunni birtist grein
á síðunni um grænmetið I verzl-
unum, sem neytendur eiga kost
á að kaupa. Einar Bergmann,
fonmaður Félags matvörukaup-
hanna hafði samband við Fjöl-
skyldusíðuna í því tilefni, og
hitti Fjölskyldusiðan síðar
nokkra kaupmenn, sem gerðu
grein fyrir ýmsum erfiðleikum
sínum varðandi verzlun með
fyrrgreinda matvöru. í þeim við-
ræðum kom það fram að lýs-
ingu þá, sem gefin var á
geymslu grænmetis í matvöru-
verzlunum var ekki hægt að
hrekja. Hins vegar telja kaup-
menn sig eiga við ýmislega erf-
iðleika að etja, sem kemur fram
hér á eftir
„Ég vil taka það fram í byrj-
un, að ég álít eftirlit og gagn-
rýni bráðnauðsynlega," sagði
Einar Bergmann. Síðan drap
hann á ýmislegt, sem betur
mætti fara.og kom með sönnun-
argögn því til vitnis. Hann sýndi
tvo kartöflupoka. í öðrum voru
kartöflur frá Grænmetisverzlun
landbúnaðarins en í hinum kart-
öflur úr hans eigin garði. í
kartöflupoka grænmetisverzlun-
arinnar voru kartöflur óhreinar,
grænar í endann, sem sýndi það,
að þær hafa staðið upp úr tnold-
inni og sól skinið á þær, raki
var í pokanum, sem var úr
plasti. í hinum pokanum voru
kartöflur, sem voru hreinar og
að því er virtist ekkert athuga-
vert við. Hann sýndi einnig
gúrku, sem var pakkað inn í
plastfilmu, plast, sem andar
sem andstæðu við innpökkun
Sölufélags garðyrkjumanna á
þessu grænmeti. Loks tók hann
tvær rófur sem dæmi. var önn-
ur í meðallagi stór en hin mjög
stór eins og sést á mynd, sem
fýlgir.
Sumarkartöflumar í
smárúöupoka eða net-
poka
Kaupmennírnir voru. sam-
mála uro, \ 0' sumackartöflur
sem „ánda“ frá sér eigi tví-
mælalaust að paééa inn í net-
poka eða svokallaða smárúðu-
poka í stað plastpokanna, sem
ekki veiti útgufuninni útrás. Þá
fannst þeim flokkun kartafln-
anna ábótavant og fundu að
kerfinu með kartöflur þar sem
grænmetisverzlunin hefði al-
gjöra einkaaðstöðu. „Þetta hefur
m. a. í för með sér, að ef ég er
ekki búinn að panta kartöflur
fyrir klukkan tólf á hádegi á
föstudag þá fæ ég þær ekki fyrr
en eftir helgi. Á mánudögum er
keyrt út, en það þarf enginn
að segja mér að hægt sé að
koma kartöflunum til allra kaup
manna sem þess æskjá þann
dag. Kaupmaður verður að
kaupa inn á föstudag, ef hann
á að hafa vöruna tij á mánudag
og þýðir þetta lengri geymslu
kartaflanna í verzlunum. Það
má lika geta þess, að áður en
grænmetisverzlunin tók við
pökkun á kartöflum var hent ’i
okkur kartöflunum í sekkjum
og okkur neitað um uppvigtun-
argjald. Eftir að grænmetisverzl
unin tók við kom uppvigtunar-
gjaldið fyrst á.
Annars flokks tegund
seld sem fyrsta flokks
Þessar kartöflur, sem eru hér
eru ekki fyrsta flokks kartöflur
heldur annars flokks kartöflur
vegna tegundarinnar. Hvað
stendur utan á pokanum? ,.Nýj-
ar kartöflur". Það sést að kart-
öflur í mismunandi gæðaflokki
eru seldar á sama veröi. Það
vantar flokkunina á vörunni,.
básði hjá grænmetisverzluninni
og Sölufélagi garðyrkjumanna.
Bændur, sem eyða stórfé í
kældar kartöflugeymslur hjá
sér hér fá heldur enga umbun
umfram hina, sem engar geymsl
ur hafa. Um innflutta hvítkálið,
sem grænmetisverzlunin hefur
flutt inn er það að segja, að það
. er farið með það eins og skít.
Meðhöndlunin er þannig, við
höfum séð menn kasta pokun-
um til og frá og troða á þeim.
Yztu blöðin verða skítug og við
verðum að taka þau utan af og
við þetta léttist hvítkálið.
Ávextir í kössum
með kúptu loki
Ávaxtainnflutningurinn er
kapítuli út af fyrir sig, Epli sem
flutt eru inn frá ArgentVnu
koma í trékössum meö kúptu
loki vegna þess að of mikið
magn er í kassanum Það þýðir
það að eplin merjast. Við höf-
um séð menn hlaupa á kössun-
um og það hefur komið fyrir
að ávextirnir hafa verið í loft-
þéttu plasti innanundir. Ávextir
eru einnig fluttir frá Rotterdam
með kæliskipum. Þegar hingað
kemur eru þeir ekki settir í
kæli og það tekur mislangan
tíma að koma þeim í verzlanir.
Við mat á grænmeti má varpa
fram þeirri spurningu hversu
miklum þroska gulrófa má ná
til þess að hún falli i sama
gæðaflokk og önnur sem er mun
minni. Grænmeti er hér drifið
áfram með áburðargjöf. Þeir
setja útlendan áburð á og aftur
útlendan áburð — væri ekki til?
valið að láta Háskólann rann-
saka hvaða áburð má nota til
þess að það komi ekki niður á
gæðum? Minni rófan t. d hefur
geymsluþo] fram í aprílmánuð
næsta ár. Þessi stóra er búin að
vera eftir mánuð
Plastfilma sem andar
utan um gúrkur
Það má einnig varpa fram
þeirri spurningu hversu lengi
grænmetið er f kælí hjá Sölufe-
laginu áður en það er sent í
verzlanir. Kaupmenn fá ek)ki
alltaf fyrsta flokks vöru frá
Sölufélagi garðyrkjumanna. Fœ
sölufélaginu fáum við t. d. gús%:-
ur, sem pakkaðar eru inn í ó-
gataða plasfcpoka Þessar gúrkur
verða að graut eftir stuttan
tíma. Réfctara er að pakka þær
inn í plastfilmu, sem „andar“.
Erlendis gerist það, að grænmeti
er á hreyfanlegu verði, um leið
og fer að sjá á því er það selt
á lægra verði. Hér er það ekki ‘
til nema kaupmaðurinn taki upp
á því sjálfur. Við fengum gúrk-
ur V sumar, sem voru bognar
og snúnar og þær voru seldar
sem fyrsti flokkur. Og það má
taka það fram, að það er refsi-
vert að kaupa grænmeti frá öðr-
um aðilum en þeim, sem við
höfum getið um, Grænmetis-
verzlun land'búnaðarins og Sölu-
félagi garðyrkjumanna.
Verzlunarskólafölk fer
ekki í verzlanir ef tir nám
1 sambandi við eftirlit í verzl-
unum má nefna það, að Mjólkur-
samsalan ætlar að ráða sérstak-
an mann. sem á að fara í verzl-
anir þar sem mjólkurafurðir eru
seldar, og hann á að gefa leið-
beiningar um vöruna. Þetta var
rætt á fundi þar sem viðstaddir
voru fimm kaupmenn og fögn-
uðu þeir þessu mjög
Um menntun starfsfólks má
segja þetta. Fólk, sem fer í
Verzlunarskólann fer ekki í
verzlanir eftir nám. Við höfum
beint þeim tilmælum til Verzlun-
arskólans að hann taki upp nám
skeið eða nám fyrir verzlunar-
fólk. Það má einnig benda á
það. að Verzlunarmannafélagið
hefur ekki efnt til námskeiðs -
fyrir verzlunarfólk.
Borgarstjórn kemur einnig inn
í þetta mál. Söluhraði dreifist
mikið þar sem eru margar verzl-
anir á litlu svæði. Um þaö er
ekkert hugsað Qg hverjum sem
er veitt verzlunarleyfi, jafnvel
á lóð andspænis verzlun, sem
fyrir er í hverfinu. Kaupmenn
eru ekki látnir vita um úthlutun
verzlunarleyfa. Fyrir skömmu
birtist auglýsing um úthlutun
lóða i Breiðholti EH, þegar sú
auglýsing blrtist var búið að út-
hluta matvöruverzlununum
- SB
Ódýrari
en aárir!
44-46.
SlMI 42600.
KIMSTALS-
GIAFAVARA
ma
<$?, IIj
| : :
| 1 %
f "4 -
V
^ :V"v" '