Vísir - 20.08.1971, Page 16
Föstudagur 20. ágúst 1971.
Geta búizt við úföllum
60°jo kennara
sækja nám-
skeiö í sumar-
leyfum sínum
— Um 1000 kennarar
á 20-30 námskeibum
i sumar
Fjöldi kennara á bama- og
gagnfræðaskólastiginu, sem
stunda nám í sumarleyfinu sínu
hefur aldrei verið meiri en í
sumar. Um eitt þúsund kenn-
arar af 1700 starfandi kennur-
um, eða 60% kennara, sækja
þessi námskeið í sumar.
Námskeiðin sem kennararnir
taka þátt í eru milli 20 — 30 og í
flestum greinum, sem kennd eru f
skólastigi þeirra.
Stefán Ólafur Jónsson, nám-
stjóri sagði í viðtali við Vísi í morg-
un, að þátttaka kennaranna þýddi
heilmikið strit fyrir þá, og um leið
merktu námskeiðin að kennslu í
ýmsum námsgreinum sé gjörbreytt.
Hann sagði, að fjöldi þeirra kenn-
ara sem taekju þátt V námskeiðun-
um ykist alltaf og nú sé metsum-
ar hvað það snerti. Námskeiðin
standa yfir í ýmist 2—3 vikur all-
flést. Sum þeirra eru haldin úti á
landi þannig, að kennarar þurfa
ékki alltaf að yfirgefa heimabyggð
sína tii að sækja námskeiðin, en
þeim er gefin frjáls kostur á því
hvort þeir sækja námskeiðin eða
ekki
„f>etta er mikill skóli, sem kenn-
arar ganga á,“ sagði Stefán Ólafur
Jónsson. „og sum þeirra eru keðju-
námskeið, sem hefur það í för með
sér, að kennarar sækja námskeiðin
=umar eftir sumar.“
Nú stendur yfir fjöldi námskeiða
hér í Reykjavik og einnig úti á
landi. Eitt fjölmennasta námskeið-
ið er námskeið fyrir handiðakenn-
ara, sem 150 þátttakendur eru
skráðir á, einnig stendur núna yfir
dönskunámskeið með 70 þátttak-
ehdum o. fl. námskeið. — SB
Ríkisstjórnir
stöðvi mengun
Norðmenn hafa borið upp álykt-
unartillögur um aðgerðir til að
hindra mengun sjávar. Jens Even-
sen einn fulltrúa Norðmanna, bar
tillöguna fram á fundi hafsbotns-
'sfndar í Genf.
1 tillögunni er gert ráð fyrir, að
illsherjarþing Sameinuðu þjóðanna
•kuli skora á aðildarríkin að gera
' egar i stað ráðstafanir til að stöðva
ina vaxandi mengun sjávar. Skuli
einstakar ríkisstjórnir í fyrstu lotu
•;era ráðstafanir til að hindra, aö
'vrirtæki í landi þeirra mengi haf-
ð með úrgangi. Ríkin skuli setja
reglur sem hindri. að eiturefnum sé
fleygt í sjó eða öðrum úrgangi, sem
valdi mengun.
>á skuli r’ikin setja ákveönar
reglur um rannsókn og vinnslu auð-
æva á landgrunni þeirra.
Norðmenn leggja áhrezlu á, að
bessar tillögur séu tij bráðabirgða,
méðan ekki fáist varanlegri lausn
•nálanna, Megi ekki bíða alþjóða-
ráðstefna í framtíðinni heldur verði
eitthváð að gera strax í mengunar-
málum. — Ýmsir. fulltrúar studdu
norskú tillöguna strax eftir að hún
kom •f»am. — HH
/ haust
af flúoreitrun
— Grunur um flúoreitrun i kvigum i Gnúpverjahreppí
0 Hálfgerð ódöngun
hefur verið í ung-
um nautgripum á nokkr-
um bæjum í Gnúpverja-
hreppi í sumar, en þeir
bæir urðu hvað mest fyr
ir öskufallinu frá Heklu
í fyrra. Óttast menn að
þarna sé ef til vill um
flúoreitrun að ræða.
Að sögn Páls Pálssonar, yfir
dýralæknis má búast við áföll
um á búpeningi þar á öskufalls
svæðunum, ekki sízt á ungu
■fé, en þessar skemmdir koma
ekki fram fyrr en við slátrun
í haust.
— Við vonum þó að ekki
veröi mikil brögð að þessu, sagði
Páll. Flúoreitrunin kemur fyrst
fram á tönnum, sem eru í vexti
og kemur skemmdin fram um
leið og tennurnar koma fram úr
holdinu á ungu fé. — Flúor-
eitrunin getur líka komið fram
á beinum, sem eru að vaxa.
Kvígur, sem fengu þennan sjúk
' dóm vorii i gamla daga kallað-
ar fætlur.
Yfirleitt mun ekki unnt að
setja þann kvikfénað á, sem
fengið hefur flúoreitrun, ef eitt
hvað kveöur að henni að segja.
Talsverð aska og ryk var í
því heyi, sem gefið var á ösku
fallssvæðinu í vetur og hefur
fénaðurinn oröið fyrir einhverj
um truflunum af þeim völdum,
en flúoreitrun getur verið nokk
uð lengi aö koma fram og þess
vegna ekki vitaö enn hvort mik
ið kveður aö henni. —JH
Aðeins karl-
menn sóttu
um starfið
• Fjórir sóttu um skólastjóra
stöðuna við hinn nýja skóla
í Fossvogi þar sem kennt verður
aldursflokkum 7, 8, og 9 ára
bama tll að byrja með auk
þess, sem þar verður forskóli
fyrir sex ára börn. Þessi skóli
er byggður þannig, að þar er
hægt að koma á skólakerfi, sem
kallað hefur verið „opinn skóli“.
• Embætti skólastjóra við
hinn nýja skóla freistaði
ekki kvenna, sem nú em meira
en tveir þriðju hluti kennara
við bamaskólana í Reykjavík.
Aðeins karlmenn sóttu um starf
ið. —SB
. Hraðbraut
austan Flosa-
gjár á Þirtg-
völlum
Sfeypumagn í tíu Búrfellsvirkjanir
Milljónasti teningsmetirinn af steypu var framleiddur hjá Steypustöðinni hf. í morgun. Allt magnið
samsvarar því að steyptar hafi verið 25 þúsund íbúðir eða 10 Búrfellsvirkjanir. — Steypustöðm hf.
var stofnuð 1947 og greiddi fyrsta árið 6.544 kr. í vinnulaun en árið 1970 námu vinnulaunagreiðslur
yfir 20 milljónum króna. Fyrirtækið rekur umfangsmikla starfsemi á sviði jarðefnavinnslu, efnis-
flutninga, hellugerðar og verktöku auk steinsteypuframleiðslunnar. — Árið 1964 kom fyrirtækið
upp nýrri steypustöð með mjög vel útbúinni sjálfvirkni. — Á myndinni er milljónasti tennings
metrinn og Halldór Jónsson forstjórr, og Árni Oddsson yfirverkstjóri. —SB
HUNDRAÐ ÞUS. MANNS
NJÓTA NÚ HITAVEITU
— Seltirningar
„Við reiknum með að hleypa
heitu vatni á fyrsta áfanga
hitavcitu hér á Seltjarnarnesi i
október,“ sagði Sigurgeir Sig-
urðsson, sveitastjóri á Seltjarn-
arnesi Vísi í morgun.
„Framkvæmdirnar hafa geng-
ið fullkomlega samkvæmt áætl-
un og við reiknum með að halda
áfram með hina áfangana tvo
næsta ár og þar næsta, þ.e.a.s.
ef lánsfé fæst“.
Sagði Sigurgeir að þess hefði
næstir að fá heitt vatn
verið gætt viö lagningu í fyrsta
áfangann, að hafa ekki lagnirnar
Y götunum. heldur undir gang-
stéttum, þannig að ekkj þyrfti
að brjóta upp götur, þótt við-
gerð þyrfti að fara fram. -
Þegar heita vatninu verður
hleypt á á Seltjarnarnesi I okt-
óber í haust, munu um 1300
manns njóta yls af borholuvatn-
inu af Nesinu
Magnús Guðjónsson, fram-
kværr^lastjóri Sambands Sveit-
arfélaga, tjáði Vísi í morgun,
að sennilega hefði orðið meira en
til kyndingar
helmingur landsmanna nú hita-
veitu, því auk Reykjavíkur, Sel-
tjarnarness, bæja á Suðurlandi,
þ e. Selfoss og Hverageröis, er
nú komin hitaveita á Sauðár-
króki, Ólafsfirði, Dalvík og
Húsavík.
„Einnig í kísilgúrþorpið við
Mývatn og svo á sveitabæi sem
eru rétt við bæina sem hita-
veitu hafa, eins og t.d. hér kring
um Reykjavík,‘‘ sagði Magnús,
„sennilega njóta nær 100.000
manns hitaveitu“. — GG
„Þeir eru hér að gera veg
austan við Flosagjá tll þess að
létta á umferðinm yfír brúna
þar sem fólk stanzar gjaman
til að kasta peningum niður i
gjána“, sagði séra Eiríkur J.
Eiríksson, þjóðgarðsvörður, er
Vísir hafði af honum tal í morg
un.
,,Umferð er alltaf að þyngjast
yfir gjána, og stórir áætlunarbilar
eiga í miklum erfiðleikum að kom-
ast þarna út úr beygjunum. Það var
hald sérfraeðinga, að ekki dygði
annað en að gera beinan og greiðan
veg þarna austan við gjána —
það verður nokkurs konar hrað-
braut, engin brú þar, enda farið
yfir Flosagjá á nokkurs konar jarð-
brú.
Raunar hafa engin slys orðið á
fólki þarna við Flosagjá á brúnni,
en umferð er mikil þama yfir, og
ekki gott að segja hvað getur gerzt.
Svo er lika hitt, að möl og sand-
ur sópast niður í gjána af brúnni
— hún er víðast 28 m djúp, en
undir brúnni er hún aðeins 8 m
— talað er um að þurfi að hreinsa
gjána“
— Verður þá brúin tekin af?
„Það er ekki ákveðið enn —
alla vega verður reistur þama út-
sýnispallur fyrir fólk og bætt að-
staða að leggja bílum. Menn hafa
Iika í huga, aö árið 1974 verður
mikið tilhald hér, og þá þarf um-
ferð að vera greið hér niöur í þing-
helgina." — GG