Vísir - 19.06.1972, Síða 1
62. árg. Mánudagur 19. júni 1972. — 135 tbl.
Manntjón voðalegt um helgina
Slysfarir voru ógnarlegar nú
um helgina. 117 manns fórust i
flugslysi skamnit frá Heathrow-
flugvelli i l.ondon, þegar Tri-
dent þola hrapaði, Tugir manna
munu látnir eftir alvarlegasta
járnhrautarslys sem orðið hefur
i Frakkiandi. Tvær lestir meö
samtals 1000 farþega innan-
borðs, rákust saman i jarðgöng-
um. Og inanntjón varð mikið i
lloug Kong um helgina, og
raunar ekki enn Ijóst liver fjöldi
liefur farizt þar i skriöuföllum
og sprengingum.
Sjó bls. 5
OLYSANLEG SKRILSHATIÐ
Flestum er orða vant til að
lýsa þvi samkomuhaldi,
sem var í miðborg Reykja-
víkur þjóðhatiðarkvöldið.
,,Ólýsanleg skrilshátið",
sagði lögregluvarðstjóri í
viðtali við blaðamann Vísis
um nóttina. — Annar
blaðamaður Vísis fór með
Ijósmyndara blaðsins um
vigvöllinn laust eftir
miðnætti. — Vegna ógnana
drukkinna unglinga gat
I jósmyndarinn þó ekki
athafnað sig eins og hann
vildi og varð þvi oft að fela
I jósmyndavél ina undir
frakka sínum, þegar frekar
hefði verið ástæða til að
munda henni.
Á. baksíðu er lýsing Vísis-
manna á ástandinu og auk
þess lýsing annarra sjónar-
votta.
— Á bls 3 er
hinsvegar lýst björtu
hliðum þjóðhátiðar,
skemmtanahaldinu fyrir
yngstu borgarana, þ,e.
þeirra ófermdu, sem ekki
eru komnir á brennivíns-
aldurinn.
Sjá baksíðu og bls. 3
— púðurlykt í lofti, segja skipverjarnir sem björguðust í gúmbátum — ein-
kennileg ðrlðg eins okkar elzta nýskðpunartogara í góðu veðri nálœgt landinu
Astæðan fyrir þvi að einn elzti
nýsköpunartogarinn okkar,
llamranes RE 165, sem áöur hét
Egill Skailagrfmsson, sökk i
djúpið i blankalogni eftir þvf sem
gerist til sjós, um 45 milur út af
Snæfellsnesi i gærdag, liggja ekki
ljósar fyrir. ,,Mér þætti það ekki
óliklegt að við hefðum lent á
tundurdufli", sagði bátsmaöurinn
á Hamranesinu, þegar hann gekk
frá borði Narfa um 2—leytið i
nótt ásamt 21 félaga sinurri, en
vildi annars sem minnst um
máliö ræða að sinni.
Kvaðst bátsmaðurinn hafa
verið i brúnni, þegar mikill
hnykkur kom á skipið, þannig að
það tókst á loft. Þetta geröist um
miðjan dag, en undir kvöld sökk
skipið, enda átti sjórinn greiða
leið inn um kinnung skipsins, en
skipverjar gátu allir yfirgefiö
skipið i 3 ágætum gúmbjörgunar
bátum. Þá töldu skipverjar sig
hafa fundið púðurlykt eftir að
óhappið geröist. . Eigendur
skipsins voru þeir Hreiðar og
Haraldur Júliussynir, ásamt
skips t j óranum , Bj«rna
Guðmundssyni. Togarinn var
smiöaöur i Selby i Englandi 1947,
en eigendur frá þvi Kveldúlfur
seldi skipið og þar til i desember
voru þeir Jón Hafdal og Haraldur
Jónsson i Hafnarfriði. Gekk
útgerðin a.m.k. á tima ákaflega
brösótt og tóku núverandi
eigendur þá viö skipinu. Siðustu
11 dagana var skipið á Faxadýpi
á veiðum, sögðu þeir eigendurnir
okkur suður i Keflavik, þegar þeir
biðu eftir skipshöfn sinni.
Fátt manna var aö taka á móti
hinni ungu skipshöfn sem svo
óvænt var komin úr siðustu veiði-
för Hamraness.
,,Ég var i vélarúminu og fann
ekkert sérstakt, vissi ekkert fyrr
en félagar minir sögðu mér hvers
kyns var”, sagði 22 ára háseti um
borð, Fritz Glahn frá Köln i
Þýzkalandi, en hann og félagi
hans Rudolf Blickhauser voru
meðal áhafnarmánna skipsins og
voru i sinni annarri veiðiferð.
„Hinsvegar sá ég að gat hafði
myndast um miðbik skipsins.
„Það var engin hætta á feröum og
þvi engin hræðsla um borð",
sagöi Blickenhauser, „En
sannarlega fannst mér það sorg-
leg sjón að sjá á eftir skipinu
undir vatnsborðið, undarleg
reynsla fyrir okkur.”
Skipverjar voru óðar horfnir inn i
litla rútu, sem komin var aö
sækja þá, — en hjá þeim á Narfa
var ekki til setunnar boöið, —
landfestar voru þegar leystar á
ný, þegar áhöfnin á Hamranesi
var farin frá borði, — og gúm-
bátunum skotið upp á bryggju.
Litli billinn lagði af stað til
Reykjavikur þar sem flestir skip-
verja búa, en eftir sat lögreglan
og hafði að vonum áhyggjur af
björgunartækjum upp á tugi eöa
hundruö þúsunda, sem lágu
þarna á hafnarbakkanum i reiði-
leysi. — JBP-'
DAUÐASTRIÐ SKIPSINS - Sjá myndir á bls. 2