Vísir - 19.06.1972, Blaðsíða 2

Vísir - 19.06.1972, Blaðsíða 2
VÍSIR. Mánudagur 19. júni 1972 Hann tók myndir af dauöastriöi skipsins Hefði verið ískyggilegt í vondu veðrí — segir forstjóri Slysavarnarfélagsins l>arna er einn af nýsköpunar- togurunum okkar að hverfa i hafiö eftir langa og dygga þjón- ustu. Þessi skip cru nú tryggö fyrir 15 milljónir króna og er það föst trygging, sem fjárhæöa- nefnd fiskiskipa ákveöur hverju sinni. Pótt 15 milljónir séu ekki há upphæö i útgerð nú tii dags er ekki vafi á aö þetta skip hefur skilaö á land verðmæti scm nemur hundruöum milljóna undanfarna áratugi. ..Þaö hefði verið iskyggilegt ef þetta hefði skeð i svartasta skammdeginu og veður hefði verið slæmt” sagði Henry Hálf- dánarson hjá Slysavarnar- félaginu i samtali við Visi. Hann sagði einnig að mönnum léki mikil forvitni á að vita hvað fyrir hefði komið, þvi almennt væru nýsköpunartogararnir taldir með beztu sjóskipum heims. Ekki kom til þess að Slysavarna- félagiö þyrfti að gera ráðstafanir vegna þessa slyss, þar sem mörg skip voru þarna i grendinni og kom Narfi mjög fljótt á vettvang. Hamranes var tryggt hjá Almennum tryggingum og i morgun hófust sjópróf i málinu og kemur þá væntanlega eitthvað fram sem skýrir þetta sjóslys. Það er ekki oft sem hægt er að birta myndir af skipi frá þvi að það er að bygja að siga i sjó og þar til það er horfið af yfirborðinu. En á hér á siðunni, er auðvelt að gera sér i hugarlund hvernig þetta hefur gengið fyrir sig eftir að sjórinn fór að fossa inn i skipið. Þaö byrjar að siga eftir þvi sem þaö þyngjist og siðan fer það að hallast. bað þyngjist stöðugt meira að aftanveröu og brátt fer að flæöa yfir skutinn. Og þrátt fyrir hetjulega baráttu þessa gamla aflaskips hefur Ægir yfir- höndina eins og svo oft áður. Áhöfnin getur ekkert gert til að afslýra slysinu og siðast er það aðeins stefnið sem ris hátt uppúr sjó og er það siðasta kveðja tog- arans sem lengi bar nafn þess fræga kappa Egils Skallagrims- sonar. —SG

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.