Vísir - 19.06.1972, Qupperneq 3
VÍSIR. Föstudagur 16. júni 1972
3
Hátíðahöldin úti
á landi - stinga
í stúf við Rvík
Vföast hvar i kauptúnum og
kaupstööum úti á landi fóru 17.
júni-hátiöarhöldin vel fram, að
ööru leyti en þvi, að kalsaveður
dró nokkuö úr ánægju manna af
hatiöarhöldunum.
Af þcim sökum var frcmur fátt
af fólki á ferli á götum Akur-
eyrar, þegar dansleik lauk á
Ráðhústorginu um miönætti, og
har litiö á ölvun eftir þaö. Hins-
vegar haföi gætt mikillar ölvunar
— einkanlega þá unglinga allt
niður i 14 ára — um kvöldið frá kl.
9 tilkl. 1 eftir miðnætti. — Hýsti
lögreglan 10 manns um nóttina,
en all margir voru fluttir til
heimila sinna.
Hvergi úti á landi setti ölvunin
neinn þann svip á hátiðarhöldin
sem i Reykjavik.
í Hafnarfirði t.d. fór allt vel
fram, og bar ekki á öivun fyrr en
upp úr kl. 1.30, þegar vel flestir
voru farnir heim vegna kuldans,
en þá tók lögreglan milii 10 og 15
unglinga úr umferð vegna
ölvunar þeirra.
Á Akranesi bar hinsvegar
meira á ölvun en venja hefur
verið til um 17. júni. Þess gætti þó
minna á útidansleiknum, heldur
aðallega á einkadansleik sem
haldinn var i hótelinu. Aöstoðaði
lögreglan allmarga dansgesta við
að komast til heimila sinna,
þegar þeir voru litt ferðafærir
vegna ölvunar. — Aðeins 3 gistu
fangageymslurnar um nóttina
Viðast annars staðar eins og i
Kópavogi, Keflavik, ísafirði og
Vestmannaeyjum sástekki meira
vin á mönnum en algengt er um
venjulegar helgar. — GP
Atvinnulýðræði i Lands-
smiðjunni
Starfsmenn Landssmiðjunnar
eiga nú að fara að fá að vita ýmis-
legt um fyrirtækið sem þeir vinna
hjá, — hvernig fyrirtækinu
vegnar, þeir eiga að geta látið i
Ijós álit sitt á bættum aðferðum
o.s.frv. Magnús Kjartansson
iðnaðarmálaráðherra setti á fót
nefnd á dögunum til að koma á fót
samstarfsnefnd starfsmanna og
stjórnenda i smiðjunni. I nefnd-
inni eru þeir Þórleifur Jónsson,
fulltrúi, sem er formaður
nefndarinnar, Guðjón Jónsson,
formaður Fél. isl. jarniðnaðar
manna og Guðlaugur Hjörleifs-
son, forstjóri. Reglur um sam
starfsnefndina hafa þegar tekið
gildi.
rigningin hófst hel'ur fólk senni-
lega verið farið að tygja sig i
heimahús, og þá aðallega ungl-
ingar sem áður höfðu byrgt sig
upp af guðaveigum. Sá timi dags-
ins sem ætlaður var bijrnunum
var liðinn, lullorðnir héldu sig að
mestu heima við, og jafnvel stúd
entarnir, sem sett hafa svip sinn
á baunn. urðu að láta i minni pok-
ann. þvi að unga kynslóðin lagði
undir sig stra'ti og torg.
— KA
Það voru stórir og svartir
blettir á þjóðhátíðardegi
okkar að þessu sinni, og
ýmsir forráðamenn hafa
lýst óánægju sinni yfir
f ra m feröi ung linga,
drykkju þeirra og óspekt-
um. En þessi merkisdagur
hafði líka sínar björtu hlið-
ar.
Fjallkonan Margrét llelga Jó-
hannsdóttir flytur ávarp.
Dagurinn heilsaði nógu vel,
með sólskini og bliðviðri. og fólk
hnussaði við öllum þeim hrak-
spám sem komið höfðu fram um
veðrið. Börnin voru pússuð upp i
spariklæðnaðinn og siðan var
haldið á Austurvöll.
Þar setti formaður þjóðhátiðar-
nefndar, Markús örn Antonsson,
hátiðina, siðan söng karlakórinn
F'óstbræður. forsætisráðherra og
fjallkona fluttu ávörp og forseti
íslands, dr. Kristján Eldjárn
lagði blómsveig að minnisvarða
lóns Sigurðssonar.
Stúdinur hafa hingað tii borið
jlómsveiginn að minnisvarðan-
jm. en i þetta sinn var breytt út af
renjunni og jafnréttið látið gilda.
Stúdent og stúdina báru sveiginn.
Skátar á öllum aldri höfðu fylkt
liði. og litlir strákar i skáta-
búningum stóðu með hendur i
vösum og vissu varla hvernig þeir
áttu að vera.
Eftir blástur og trumbuslátt
lúðrasveita viðs vegar um bæinn,
og eftir að fólk haföi snætt há-
degisverð var henzt með börnin i
skrúðgöngur, sem farnar voru
frá þrem stöðum i borginni. Enn
hélzt bliðviðrið, og þeir, sem ekki
báru flögg eða annað skraut til-
heyrandi deginum, voru farnir að
undirbúa sólbað á svölunum eða i
garðinum.
Á meðan hugðust ungir og
gamlir skemmta sér á barna-
skemmtun við Laugardalshöll og
héldu þangað á þeim tima sem
skemmtunin var auglýst. En
niargt fer öðru visi en ætlað er.
Magnarakerfi eða annað þvi um
likt virtist ekki eins fullkomið og
vera skyldi, og það tók nokkurn
tima að gera við það, en tyrr
skyldi skemmtun ekki hefjast.
Og það tók að syrta. Sólin lét
minna og minna á sér bera,skýin
þjiippuðust saman. fólk setti i
skyndi upp siæður, hatta og húf-
ur. og það tók að rigna.
En um leið hófst skemmtunin.
og rétt hefði mátt ætla að beðið
hefði verið eftir úrkomunni. llóp
urinn við Laugardalshöllina varð
æ fámennari, en ýmsir stóðu þó
eftir og skemmtu sér yfir persón-
um Thorbjörns Egners úr Karde-
mommubænum, Dýrunum i
llálsaskógi og Kariúsi og Baktusi.
Enda stytti upp öðru hverju.
Þar með virtist úti um björtu
hliðar dagsins. A sama tima og
Þrátt fyrir úrkoniu skemmtu þau sér yfir Kariusi og Baktusi.
Jafnrétti. Stúdent og stúdina bera blómsveig aö minnisvarða Jóns
Sigurðssonar.
BJORTU HLIÐAR
ÞJÓÐHÁTÍÐARDAGSINS