Vísir - 19.06.1972, Qupperneq 5
ViSlR. Mánudagur 19. júni 1972.
5
Í MORGUN UTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN GUNNAR GUNNARSSON ÚTLÖND
Flugmenn í 45
löndum í verkfall
— bandarískir, japqnskir, ástralskir og arabískir
flugmenn fljúga í dag — bandarískir voru dœmdir
til að húndsa verkfallið
Flugmenn um allan
heim hófu verkfall í
morgun. Mun þaö standa í
24 klukkustundir og er
gert i mótmælaskyni
vegna hinna tiöu flug-
vélarána. Vilja flugmenn
með verkfalli sinu þrýsta
á yfirvöld til einhverra
aögerða gegn flugvéla-
ræningjum og þeim lönd-
um sem stöðugt veita
ræningjunum skjól.
i gærkvöldi/ sunnudag,
varvafasamt aö verkfall-
ið hefði í raun nokkuð
gildi i Bandaríkjunum,
þar eð þar munu fæstir
flugmenn gera verkfall,
eins og Alþjóðasamband
atvinnuflugmanna hefur
þó boðað. Jafnframt
munu flugmenn i Araba-
löndum ekki gera neitt
verkfall, og segja þeir að
þessu verkfalli sé fyrst og
fremst beint gegn ara-
bisku löndunum.
Japanskir flugmenn
verða heldur ekki með í
leiknum. Flugmenn á
Norðurlöndum lögðu hins
vegar allir niður vinnu í
nótt.
1 Bandarikjunum verða
flestir flugmenn senni-
lega dæmdir til að halda
áfram vinnu, og mun Ifalpa,
alþjóðasamband atvinnuflug-
manna, litið geta aðhafzt i þvi
máli.
Charles Jackson, ritari Ifalpa
i London, sagði i London i morg-
un, að hann reiknaði með að
flugmenn i 45 löndum felldu nið-
ur vinnu i dag.
Japan og Ástralia eru einu
stóru löndin, þar sem flugmönn-
um leyfist ekki að leggja niður
vinnu, sagði Jackson.
Brezkir flugmenn höfðu gælt
við þá hugmynd, að gera ekki
verkfall, hins vegar var ekki
vitað annað i gærkvöldi en að
langflestir brezkra flugmanna
myndu leggja niður vinnu i
morgun, og allt innanlands- og
utanlandsflug myndi þar með
lamast.
í Bandarikjunum eru það að-
eins flugmenn frá Trans World
Airlines, sem hafa tilkynnt að
þeir muni ekki fljúga, þrátt fyr-
ir verkfallsbannið, sem flug-
mennirnir voru dæmdir i.
Mikil umferð var um flugvelli
og flughafnir i gær, þar eð mörg
flugfélög þeirra á meðal hin is-
lénzku reyndu að fjölga ferðum
áður en verkfallið skylli á.
Ntb hafði það t.d. eftir flug-
vallarstjóranum á Fornebu við
Osló, að 7500 farþegar hafi farið
um Fornebu i gærdag, en venju-
leg sunnudagsumferð um þann
flugvöll er um 5000 manns.
McGovem heldur stHkinu
McGovern getur víst reiknað
sér yfirburða sigur I prófkjöri
sem fram fer á morgun i rikinu
New York Trass. Er fullyrt að
McGovern fái a.m.k. 200 af 248
fulltrúum demókrata á flokks-
þinginu i júlitiyrjun. McGovern
hefir ekki þurft að heyja harða
kosningabaráttu, og mótstaðan
verið næsta hálfkæringsleg.
Humphrey, sem enn reynir að
halda merki sinu á lofti, hefur að-
eins fáum sinnum komið fram i
þessu smáriki, New York Trass,
og Edmund Muskie, sem raunar
hafði ákveðið að draga framboð
sitt til baka, tók aftur upp kosn-
ingabaráttu með þvi að efna til
kosningafundar i Buffalo.
Andstæðingar McGoverns
reyna helzt að klekkja á honum
með þvi að blása út að stefna hans
gegn striðsrekstri byggist helzt á
þvi hvilik bleyða hann sjálfur sé.
Hann hafi staðið sig illa i annarri
heimsstyrjöldinni, og einnig tala
þeir um lausatök hans á öllum
málum sem snerta tsrael.
Vinni McGovern kosningarnar i
New York, vantar hann aðeins
rúmlega 200 atkvæði til að fá hin-
um nauðsynlegu 1509, sem þarf til
að hann verði útnefndur fram-
bjóðandi demókrata i forseta-
kosningunum i haust.
Meinhof fundin
Ulrika Meinhof, þýzki stjórn-
leysingjaforinginn, var gripin I
siðustu viku, þar sem hún fald-
ist i Hannover ásamt félaga sln-
um, Gerhard Mueller.
Þýzkalandi, en hann hefur mjög
herjað á lögregluna, bæði með
þvi að hóta sprengingum hér og
þar — og svo með þvl að standa
fyrir upphlaupum, sprenging-
um og ýmsu fleiru.
Meinhof hefur verið leitað Ulrika Meinhof er 37 ára og
undanfarnar vikur af miklum
móði, en scm kunnugt er n,áðist
J Andrcas Baader, hinn foringi
1 Baader-Meinhof fiokksins i V--
^ ^ ^ ^ ^ ^ ^ ^
var gripin fyrir helgi i ibúða-
blokk I Hannover. Félagi henn-
ar, Mueller er 24 ára, og faldist
tnn með hennl I ibúðinni.
Heimsmet:
Susan Eiliff, heitir hún þessi,
18 ára hnáta, og var hún að setja
heimsmet um daginn. Heims-
met? Já, hún sat i þessum
ruggustói og ruggaði og ruggaði
og ruggaði I sex daga — 125
kiukkustundir og 40 minútur,
svo maður sé nákvæmur. Susan
Eiliff er frá Jackson i Tennessy,
Bandarikjuúum, og er hægt að
finna hana þar, að þvi er bezt
er vitað.
117 fórust
117 manns biðu bana,
þegar brezk farþegaþota af
gerðinni Trident hrapaði
síðdegis í gær, sunnudag,
rétt eftir flugtak frá
Heathrow-flugyellinum við
London. Þotan var frá
brezka flugfélaginu BEA
C British Europian Air-
ways).
Trident-þotan var rétt
komin á loft, og var ferð-
inni heitiðtil Brússel, þegar
hún hrapaði niður á óbyggt
svæði rétt við mikla um-
ferðarbraut. Þrem mann-
eskjum tókst að ná lifandi
út úr braki vélarinnar, en
tvær þeirra létust fljótlega
og komust aldrei á
sjúkrahús.
Þetta flugslys er sagt hið versta
sem nokkru sinni hefur átt sér
stað i Bretlandi. Hinn eini, sem
liföi af slysiö, er irskur verzlunar-
maður.
Þotan hrapaöi i sex km fjar-
lægö frá Heathrow, rétt við þorp
sem Staines heitir og er i suð-
austur af London. Lenti þotan
utan við bæinn, en þó ekki nema i
um 500 metra fjarlægð frá mið-
torgi hans, og i aðeins 150
fjarlægð frá næsta húsi. Þotu-
mótorarnir þrir köstuðust 70
metra i burtu frá vélinni, er hún
skall til jarðar i þremur hlutum.
Eldur kom strax upp i brakinu,
— mesta flugslys
sem orðið hefur
í Bretlandi
________»
en slokkviliðið sem mjög fljótt
bar að, réði fljótlega niðurlögum
e 1 d s i n s .
Menn frá flugmannasamband-
inu og binu opinbera flugmála-
eftirliti komu strax á vettvang og
tóku sjálfstýritæki vélarinnar til
athugunar. Vonazt er til að fljót-
lega verði hægt að upplýsa hver
ástæðan hafi verið fyrir hrapi
vélarinnar.
Henry Marking, forstjóri BEA,
sagði blaðamönnum i gærkvöldi,
að fyrir slysið hafði ekkert heyrzt
frá flugmanninum og benti það
til þess, að eitthvað hefði verið
að þotunni. Ekki mun ástæða til
að halda að sprengja hafi
sprungið i vélinni.
65 lík fundin
— alvarlegasta
lestarslvsið sem orðið
Björgunarliðar unnu í
gærkvöjdi og í nótt af
ákafa við að reyna
að'bjarqafólki, sem enn var
þá fastklemmt í braki
lestanna tveggja, sem
rákust saman í jarð-
göngum aðfararnótt
laugardags, 80 km norðan
við París.
Rákust lestarnar saman i jarð-
göngum við Soissons. t gærkvöldi
var 22 ára gamall maður dreginn
lifandi út úr þessu braki, og hafði
hann þá verið fastur undir þvi i 44
klukkustpndir. Þetta lestarslys er
hið hroðalegasta lestaróhapp sem
nokkru sinni hefur hent i Frakk-
landi.
Þar til i gærkveldi höfðu
fundizt 65 lik, og þá var óttazt að
enn væri 22 lik að finna i brakinu.
Alls voru um 1000 farþegar i
— alvarlegasta
lestarslysið sem orðið
hefur í Frakklandi
lestunum báðum, er þær rákust
saman. Sú lestin, sem frá Paris
stefndi var full af stúdentum sem
voru á leið heim i helgarfri. Sú
sem til Parisar stefndi, var að
koma með fólk frá bænum Laon,
og var það fólk yfirleitt að fara i
helgarheimsókn til Parisar.