Vísir - 19.06.1972, Side 7
VtSIR. Mánudagur 19. júni 1972.
c7VIenningarmál
Gunnar Björnsson skrifar um listahátíð:
MARGAR SÓLIR Á LOFTI
Sfftasta atrifti listahátiflar: Að luknum tónleikum Sinfónfuhljómsveitar
Islands á fimmtudagskvöld var eldur lagður f hið forgcngilega lista-
verk Kjarlans Guðjónssonar, Menningarvitann, fyrir frainan Laugar-
dalshöll.
Listahátið i Reykjavik
1972 lauk á fimmtudags-
kvöldið með glæsilegum
tónleikum i Laugardals-
höll. Og þegar tónleika-
gestir héldu heim á leið i
mildu sumarregni, stóð
„menningarvitinn” i
björtu báli, svo sem
áformað hafði verið.
En það hefur kviknað í fleirum.
Engum getur blandazt hugur um
ágæti og mikilvægi listahátiðar á
borð við þessa, hún er vel tiJ fallin
að glæða þrá mannshjartans um
hið góða fagra og fullkomna, já
kveikja i brjóstinu löngun til þess
að stunda hinaT göfugu listir.
Þegar þjóðin dregst hnipin undan
vetri, þá er gaman að eiga kost á
þátttöku i stórhátið eins og þess-
ari, um leið og langþráðu sumri
er fagnað.
Sálin tók við sér
Fyrra verkefni kvöldsins var
Pianókonsert nr. 2 i B-dúr, op. 83
eftir Jóhannes Brahms, fluttur af
bandariska pianósnillingnum
André Watts og Sinfóniuhljóm-
sveit Islands, undir stjórn hins
viðkunna hljómsveitarstjóra,
André Previn.
Það er óþarfi að fara mörgum
orðum um ágæti konsertsins:
þetta er eitt af uppáhaldsverkun-
um á hljómleikaskrá veraldar-
innar, magnað inspirasjón sam-
fara ótakmarkaðri vandvirkni og
vinnugleði af hálfu tónskáldsins.
Orkestrasjónin er sérstæð vegna
hins fulla, margbreytilega
hljóms, sem er svo einkennilega
þéttur (sifelldar tvöfaldanir innri
radda.) Formtilfinning Brahms
gerir hann að einum stórbTotn-
asta húsameistara tónlistarsög-
unnar. Stefin gefa til kynna
margslungna gegnfærslu og há-
stig af kontrapúnktfskri notkun.
Horn-sólóin i úpphafinu var vel
frambærileg, þótt naumast væri
hún nógu hrein i itrekuninni undir
lok fyrsta þáttar. Tréverkið, sem
tekur viðaf horninu i fyrsta tema,
var hins vegar nokkuð óhreint.
Byrjun Watts var glæsileg. Fyrst
ljóðrænn, brotinn hljómur (ekki
þarf nú mikið til að mannssálin
taki við sér), siðan kröftugur leik-
ur a,ð vixláherzlum, kristallstært
og skýrt. Aberandi er, hve celli og
bassar hljóma betur i Laugar-
dalshöll en i Háskólabiói. Lágar
frikvensur njóta sin mun betur i
hinum stóra sal, og var þetta
mjög áberandi i leik sænsku út-
varpshljómsveitarinnar, en einn-
ig greinilegt á þessum tónleikum.
En fleira er hér á ferð. Nú áttum
við að fagna hvorki meira né
minna en 9 — segi og skrifa niu —
cellóum, sem er fleira, en ég man
eftir i annan tima. Auk þess léku
nú sex kontrabassar. En úr þvi
minnzt er á Sviana: en hvað
málmblásararnir voru mjúkir og
þýðir hjá þeim, jafnvel þótt
hljómmagnið væri i hámarki.
Okkar málmur þyrfti að reyna að
hætta þessum stöðugu sprenging-
um hljómsins, sem láta svo undur
illa i eyrum.
1 öðrum þætti þótti mér unisón-
leikur fyrstu, annarrar og lág-
fiðlu góður, þótt hann tækist
raunar nokkuð miður i siöara
skiptið. Það gætti lika örlitillar
ónákvæmi i pianissimó-leiknum
milli cellóa og lágfiðlu. Hér var
lika sprengju-tónn trompetanna
óþarflega áberandi.
Þriðji þáttur var ógleymanleg-
ur. Þessi fagri söngur tókst með
ágætum. Þetta kvöld hafði
Hafliöi Hallgrimsson, cellóleikari
og tónskáld, orðið við þeirri bón
hljómsveitarinnar að leika með
cellóunum. Nú kom til kasta hans
aö leika hina dýrlegu celló-sóló
þessa hæga þáttar konsertsins.
Er skemmst frá þvi að segja, að
framlag Hafliða hóf leik hljóm-
sveitarinnar i æðra veldi, já upp i
sjöunda himin. Nú voru margar
sólir á lofti og þúsundárariki i öll-
um áttum. Tónn Hafliða er svo
sterkur, mjúkur og hreinn, að
undrum sætir. Þessi þáttur tón-
leikanna verður meðal þess, sem
seinast liður úr minni.
I siðasta þætti fór Watts á kost-
um, svo sem endranær. Hann er
einstakur snillingur pianósins.
Léttleiki og yfirvegaður fögnuður
kaflans kom stórvel til skila i
fáguðum trillum hans, og er óhætt
að segja, að langt er siðan slikur
pianóleikur hefur heyrzt hér.
Sj-sj
Eftir hlé heyrðum við Sinfóniu
nr. 5 i d-moll eftir Sjostakovitsj.
Verkið er fjarska skemmtilegt,
einfalt i byggingu og auðvelt
áheyrnar, melankólia undir niðri.
Það er engin ástæða til að fælast
tónskáldið Sjostakóvitsj (menn
eru e.t.v. feimnir við langt nafn,
sem hefst á Sj- og endar á -sj).
Hlutlæg framsetning ásamt góð-
um húmor, já næstum satiru,
svikur engan.
Flutningur þessa verks er með-
al beztu afreka Sinfóniuhljóm-
sveitar Islands til þessa. André
Prévin sýndi feikilega góð tök.
Fyrsta fiðla gerði vel i einleikn-
um, sem bassarnir leika undir, en
lágfiðlan, sem tekur siðar upp
sama stef, var mun lakari. Og
enn kemur sama stef, en nú i
flautu og tókst prýðilega, þótt
hornsólóin væri ekki alveg eins
góð. Það er mikiö af kammermú-
sik i verkinu, einkum i fyrsta og
þriðja þætti, og fengu nú ýmsir
tækifæri til að brilléra, þ.á.m.
konsertmeistarinn. I upphafi
þriðja þáttar fær fyrsta fiðla að
spreyta sig án fyrsta púlts og var
þá samhljómurinn samfelldari,
þótt naumast væri hann eins lif-
legur og endranær. En þetta leiðir
hugann að þvi, að reyna verður að
fá hómógen tón i hinar einstöku
grúppur og ófært, að einstakir
menn skeri sig úr samleiknum.
A eftir fylgja langar og heiðar
linur i dýpri strengjum, en svo
tekur við kammermúsik i flautu
og hörpu. Tréblásturshljóöfæra-
leikarar koma með fögur glimt og
gerðu flestir vel, þótt tréverkið i
heild sé naumast nógu hreint, svo
sem fyrr var skrifað. Feiknarleg
celló-sóló, þar sem klifið er upp
eftir gripbrettinu, tókst ágæta vel
og þættinum lauk á veikum loka-
hljómi með örlitlu tremúló.
Siðasti kaflinn færði enn heim
sanninn um hið skakka hlutfall,
sem rikir milli blásara og
strengja hjá okkur. Brass-
hljómurinn er kröftugur, en tæp-
ast nógu samstæður. Þar við bæt-
ist, að fara verður varlega, ef
ekki á að drekkja strengjatónin-
um með öllu.
Það er fagnaðarefni að sjá
sveitina svo íjölmenna, sem nú
var raunin. Eg taldi 12 fyrstu fiðl-
ur, 9celli og sex bassa. Nú þarf að
reyna að halda i horfinu. Bezt
væri auðvitað, að hinir ágætu, is-
lenzku hljóðfæraleikarar, sem
búsettir eru erlendis kæmu nú og
settust um kyrrt.
gtijy AUGMég hvili
með gleraugum ím VVjflr
Austurstræti 20. Sími 14456 *
UTANLANDSFERÐIR VID ALLRA HÆFI
Norðurlandaferð 15 dagar. brottfor
29 júni.
Kaupmannahofn. Oslo, Þelamork og
Sviþjóð.
Kaupmannahofn - Rinarlond
15 dagar, brottfor 6. juli og 3. ágúst.
Ekið um Þýzkaland til Rinarlanda
Kaupmannahofn - Róm - Sorrento
21 dagur, brottför 13. júli.
Vika i Kaupmannahöfn vika i
Sorrento.og viku i Rómarborg
Paris - Rinarlond - Sviss
16 dagar. brottför 20. ágúst.
Landið helga - Egyptaland - Libanon
20 dagar, brottför 7. október.
Kynnið ykkur verð og gæði Sunnu-
ferðanna með áætlunarflugi eða hinu
ótrúlega ódýra leiguflugi. SUNNA
gerir öllum kleift að ferðast.
Sunna er alþjóðleg IATA
ferðáskrifstofa
frá kr. 12.500,-
Brottfor hálfsmánaðarlega. og i
hverri viku eftir 27 júli Bemt þotu
flug báðar leiðir, eða með viðdvol i
London Sunna hefir samning um
gistirými á sftirsóttum hótelum i
Torremolinos (Alay og Las Palomas)
og ibúðum, luxusibúðunum Playa
mar i Torremolmos og Soficobygg
mgunum Perlas og fl. i Fuengirola og
Torremolinos. Islenzkir fararstjórar
Sunnu á Costa del Sol hafa skrifstofu
aðstöðu i Torremolinos. þar sem
alltaf er auðvelt að ná til þeirra. Costa
del Sol er næst fjölsóttasta sólskms
paradis Evrópu og Sunna getur boðið
upp á beztu hótel og ibúðir á hag-
væmum kjörum.
frá kr. 12.500,-
Beint þotuflug báðar leiðir. eða með
viðkomu i London. -Brottfor hálfs-
mánaðarlega til 15. júni og í hverri
viku eftir það. Frjálst val um dvol i
íbúðum i Palma og i baðstrandabæi-
unum (Trianon og Granada) eða hin-
um vinsælu hótelum Antillas Barba
dos. Playa de Palma, Melia Magaluf
og fl. Eigm skrifstofa Sunnu i Palma
með islenzku starfsfólki veitir öryggi
og þjónustu. Mallorka er fjölsóttasta
sólskmsparadís Evrópu.
Fjölskylduafsláttur
102,-
Beint þotuflug báðar leiðir. brottför
vikulega. Inmfalið: gisting og morg-
unverður á fyrsta flokks hóteli. Oll
herbergi með baði og sjónvarpi Ferð-
ir milli hótels og flugvallar og ýmis-
legt fleira Þetta verða vinsælar ferðir
til milljónaborgarmnar. Leikhús og
skemmtanalif það viðfrægasta i ver-
^óldinm. en vöruhúsin hættulega
freistandi.
FERflftSKHIISTOHN SIIMHH BMIIMSTHIII7 -s- 1BMI1171170
Fylgizt með ferðoauglýsingum Sunnu í Tímanum á sunnudögum, Vísi á mánudögum
og Alþýðublaðinu og Þjóðviljanum á þriðjudögum og takið þátt í lesendagetraun í lok
mánaðarins, þar sem vinningar eru ókeypis utanlandsferð.
frá kr. 12.950,-
Brottfor i hverri viku Innifalið bemt
þotuflug báðar leiðir. gisting og tvær
máltiðir á dag. Eigin skrifstofa Sunnu
i Kaupmannahófn með islenzku
starfsfólki Hægt að velja um dvol á
mórgum hótelum og fá ódýrar fram
haldsíerðir til flestra Evrópulanda
með T,æreborg og Sterlmg Airwavs
Nú komast loksins allir ódýrt til Kaup
mannahafnar. Allra leiðir liggja til
hinnar glaðværu og skemmtilegu
borgar við sundið.
KAUPMANNA-
HÖFN
ÝMSAR FERÐIR
MALLORCA
COSTADELSOL