Vísir - 19.06.1972, Side 14
VÍSIR. Mánudagur 19. júni 1972.
■y
Vestur-Þjóðverjar
Evrópumeistarar!
Gerd Míiller skoraði tvö af mörkum Vestur-Þýzkaiands i úrslita-
leiknum viö Sovétrikin og er nú orðinn langmarkhæstur þýzkra iands-
liösmanna.
— og Belgar urðu í
Markakóngurinn Gerd
Miiller var óviðráðan-
iegur i Brussel i gær og
tryggði Vestur-Þýzka-
landi i fyrsta sinn
Evrópumeistaratignina
i knattspyrnu, þegar
hann skofaði tvö af
mörkum þýzka lands-
liðsins i úrslitaleiknum
við Sovétrikin. Lokatöl-
ur i leiknum urðu 3—0 og
i Liege sigraði Belgia
Ungverjaland 2—1 og
tryggði sér með þvi
þriðja sætið i keppninni.
1 Brussel tókst Sovétrikjunum,
sem urðu EM-meistarar 1960,
aldrei að ógna sigri Þjóðverja éft-
þriðja sœti
Mallorca
FERÐIRNAR VINSÆLU
Veljið á milli sex Úrvalsferða
í dgúst, september og október
Fyrirtaks hótel eða íbúðir.
Einkabifreið fyrir þó sem óska þess.
Skoðunar- og skemmtiferðir.
Úrvals fararstjórn.
Ánægjan fylgir Úrvalsferðum.
FERÐASKR/FSTOFAN
URVAL
Eimskipafélagshúsinu simi 26900
ir að Miiller skoraði fyráta mark-
ið i leiknum á 27. mín.Fyrirliðinn
Franz Beckenbauer og Gunther
Netzer sáu um, að sovézku sókn-
armönnunum tókst lítið sem ekk-
ert að ógna þýzka markinu og hið
léttleikandi þýzka lið náði smám
saman algerum yfirtökuiti.
Wimmer skoraði annað mark
Vestur-Þýzkalqnds á 5. min. síð-
ari hálfleiks og á ll..min. skoraði
Miillen og eftir það var aðeins
spurningin hve stór sigurinn yrði.
En mörkin urðu ekki fleiri.
Miiller skoraði þarna sitt 51 mark
i 41 landsleik og 11 þeirra hefur
hann skorað i þessari EM-keppni.
Vestur-Þýzkaland hefur ekki
tapað landsleik siðan i júni i fyrra
og er örugglega bezta lið Evrópu.
Það verður erfitt fyrir Braziliu að
verja heimsmeistaratitil sinn i
Míinchen 1974, þegar Þjóðverj-
arnir verða á heimavelli.
Fyrsta markið i gær var heldur
betur fyrir áhorfendur’'Becken-
bauer lék framhjá tveinjur mót,-
herjum á miðjunní og gaf knött-
inn til Netzer, sem spyrnti á
markið. Knötturinn small i þver-
Keflavík
Framhald af bls. 11.
staðar, þegar Páll Pálmason
missir frá sér knöttinn eftir skalla
frá Guðna Kjartanssyni, — og
Hörður rennir knettinum inn fyrir
marklinuna, við ærandi fögnuð
áhorfenda, 3:3.
Eftir þetta virðist heidur dofna
yfir báðum liðum. Hvorugur
þorir að hætta á neitt og eru
sáttir með skiptingu stiganna.
Heildarsvipur IBK var öllu betri
en Eyjamanna. Þeir reyndu stutt
spil, einkum þeir Ástráður og
Grétar, og báðir áttu góðan leik.
Guðni og Einar voru mjög
traustir i vörninni, eniframlin-
unni voru skæðastir þeir Steinar
og Jón Óli. Svo og átti Hörður
Ragnarsson ágætan leik.
Eyjamenn voru nokkuð stór-
skornir i sinum'leik. Notuðu lang-
spörk oft á tiðum með nokkrum
árangri þó. Ásgeir Sigurvinsson
og Tómas Pálsson, sem rétt var
að setja inn á miðjuna, sýndu
mjög góðan ieik. Óskar
Valtýsson er heldur að færast i
aukana. Valur Andersen var
sterkur tengiliður. Þá voru Frið-
finnur Finnbogason og Einar
Friðþjófsson þeir klettar, sem
flestar sóknarlotur IBK brotnuðu
á.
Dómari var Rafn Hjaltalin og
dæmdi vel.
slá, hrökk til Josef Heynckes,
sem sendi aðra „kanónu” að
markinu. Sovézki markvörðurinn
Rudakov hálfvarði, en MíiHer
náði knettinum og skoraði sitt,50.
landsliðsmark. Hpyi]cbes 'var
maðurinn bakvið annað mark
þýzka liðsins <]g sending hans á
Wimmer var hreint stórkostleg.
Eftir leikinn streymdu þýzkir
áhorfendur niður á völlinn og þar
var álika tröð og i úrslitaleiknum
fræga i Barcelona á dögunum.
Tvö mörk á þremur mínútum
færðu Belgiu sigur gegn Ungverj-
um iheldur lélegum leiK 2—1. Það
var Lambert sem lék i gegn á 22.
min. og skoraði og aðeins þremur
min. siðar skoraði Paul van
Himst eftir misskilning milli ung-
verskra varnarmanna. Belgiska
liðið hafði mikla yfirburði i fyrri
hálfleik, en tókst þó ekki að skora
fleiri mörk. Mikil harka var i siö-
ari hálfleik og þá skoraði Lajos
Ku fyrir Ungverjaland úr vita-
spyrnu á 6. min. —hsim.
3. deild
Austfirzki
Þróttur er
sterkur
sem fyrr
Neskaupstaðarþróttararnir virð-
ast sem fyrr sterkastir Aust-
fjarðaliðanna i 3. deildinni. A
föstudagskvöldið unnu þeir Hugin
á Seyðisfirði með 10:0, og hefur
hinum nýja þjálfara Hugins-
manna, Herði Halldórssyni úr
Reykjavik, vonandi ekki fallizt
hendur við svo mikla útreið sama
dag og hann byrjar i starfi þar
eystra.
A Fáskrúðsfirði vann heimaliðið,
Spyrnir, sömuleiðis léttan sigur,
4:1 yfir liði Spyrnis á Egils-
stöðum.
Hinsvegar urðu Valsmenn á
Fáskrúðsfirði að hætta við
þátttöku. Þeir misstu of marga
menn á sjóinn svo þeim mætti
takast að manna knattspyrnulið
sitt svo vit væri i. Áttu þeir að
leika við KSH frá Breiðdalsvik,
en verða nú strikaðir út sem þátt-
takendur i Austfjarðariðlinum i
knattspyrnu. Verða þátttökuliðin
þvi 6 og leikjum fækkar úr 42 i 30 i
riðlinum.
SETTI ÞRJU ISLANDS-
MET í LOS ANGELES
Lisa Ronson setti fyrir nokkr-
um dögum þrjú islandsmet i
sundi á móti i Los Angeles, sló
hún meðal annars elzta isl.
sundmetiö, sem Hrafnhildur
Guömundsdóttir átti og var það
sett 1964, 1.05.2 i 100 metra
skriðsundinu.
Met Lisu voru þessi (öll sett i 50
metra braut):
100 metra skriðsund 1.04.8, met-
ið átti Hrafnhildur vor var 1.05,2
min.
200 metra skriðsunft á 2.21,6
ntin., fyrra metið átti Vilborg
Júliusd., 2.25,3 min.
400 metra skriðsund á 4.56,4,
fyrra metið átti Vilborg einnig
og var það 4.57,0.
Lisa getur áreiðanlega farið enn
neðar, þvi fyrir þetta mót hvíldi
hún ekkert að sögn föður henn-
ar, Péturs Rögnvaidssonar
Ronson.
Undir mánaðamótin er Lisa
svo vxntanleg til landsins, og
mun þá vonandi verða með
tandsliðinu i iandskeppninni við
íra 1. og 2. júli i Reykjavik, en
við eigum þar harma að hefna,
töpuðum með 3 stigum i æsi-
spennandi landskeppni við þá i
fyrra ytra.
Lisa á greiniiega möguleika á
að ná OL-lágmarki i 100 metra
skriðsundinu, — þar vantar að
visji enn 8/10 upp á að iágmark-
inu sé háð, en engu að siður á
hún góða möguleika.