Vísir - 12.08.1972, Side 1
VISIR
(i2. árg. — l.augardagur 12. ágúst — 181 tbl.
Bobby er líka
dœgurlogasöngvari!
Þaö er ekki nóg með aö Boris Spasský teljist til vinahópsins hjá júgó-
slavneska blaöamanninum Bjélica, sem á dögununt ritaði greinina VIN-
UK MINN SPASSKY. t blaðinu i dag ntá sjá að Bobby Ficher er einnig i
vinahópnum. Hinsvegar titla þeir kapparnir hvor annan ekki sem vini.
eins og greinilegt er. Sjá greinina VINUR MINN FISCHER þar má m.a.
lesa að Bobbv erágætur dægurlagasöngvari — Sjá bls. 9.
Skrifar blað í sögu
Olympíuleikanna!
Olympiunefnd íslands hef-
ur valið Guðmund Gislason,
sundmanninn góðkunna, til
þátttöku á Oíympiuleikunum
i Munchen, sem hefjast 26.
ágúst. Og þegar Guömundur
stingur sér til sunds þar mun
hann skrifa nýtt blað i sögu
Olympiuleikanna. — Sjá
nánar iþróttir bls. 10.
Velkomnir heim
Sennilega eru engir
gestir eins velkomnir
nokkurs stadar og lax-
arnir sem snúa heim í
Kollaf jarðarstööina
eftir órlangt ferðalag
um Atlantshafið. Síð-
ustu þrjá daga hafa
fjölmargir þeirra snúið
til æskuheimkynnanna.
Vísismenn voru i mót-
tökunefndinni i stöð-
inni í gærdag. Sjá bls. 2
Sólgleraugna-
tízkan í
Reykjavík
Visir spyr sem við sjáum i
blaöinu i dag var tekinn á
sólbökuðum götum borgar-
innar i fyrradag, — eins og
sjá ntá á ntyndunum. Þar
eru allir utan einn meö sól-
gleraugu á mvndunum, lik-
ast þvi að þar sé verið að
kynna sólgleraugnatizku
sumarsins 1972. — Sjá 2.
siðu.
BRANDY, - hin
vœnzta stelpa
..Brandy, þú ert hin
vænzta stelpa” veitir laginu
,,Enn ertu cin, vitaskuld”
Itarða keppni á vinsældar-
lista vikunnar i Bandarikj-
unum. Við birtum listann yf-
ir vinsælustu lögin i blaöinu i
dag. Listinn var birtur i gær
og var sendur okkur um-
svifalaust af AP-fréttastof-
unni — Sjá NÚ-siðuna á bls.
12 og 1:1.
Morðtilrœði
við Nixon!
— Sjá bls. 5
Þeir sem mest þarfnast
beltanna nota þau ekki
„Of seinlegt", segja lögregla, slökkvilið og leigubílstjórar
— Engin belti í strœtisvögnum
„Við höfum farið fram
á það við lögregluþjón-
ana að þeir noti öryggis-
belti við akstur og allir
okkar bilar eru með
belti. Hins vegar er mis-
brestur á aó þau séu not-
uð", sagði Bjarki Elías-
son yfirlögregluþjónn i
samtali við Vísi í morg-
un.
Það hefur vakið athygli
margra að á sama tima og
fleiri fara að nota öryggis-
belti. virðast þau litið notuð af
lögreglu, slökkviliði, leigubil-
stjórum og strætisvagnastjór-
um. Þessar bifreiðar eru allan
daginn á ferðinm og væri þvi
eðlilegt að þarna sæti öryggið i
fyrirrúmi, ekki sizt hjá lög-
reglu og slökkviliði sem eru i
öryggisþjónustu.
Bjarki sagði að lögreglan
notaði belti i lengri ferðum og
eins ef mjög hratt væri ekið,
en hinu væri ekki að leyna, að
mönnum þættu beltin þving-
andi Þstyttri ferðum. Þetta
va'ri þó einstaklingsbundið og
auk þess væri stöðugt verið að
skipta um menn á bilunum og
þar sem menn væru misjafn-
lega vaxnir þyrfti stöðugt að
vera aö stilla beltin. En það
fer þó vaxandi að beltin i bil-
um lögreglunnar séu notuð.
Itúnar Bjarnason, slökkvi-
liðsstjóri, tók i sama streng og
Bjarki. Það hefði verið farið
fram á það við slökkviliðs-
menn að þeir notuðu belti en
þeim þætti þaö of seinlegt
mörgum hverjum þegar farið
v;eri i útköll. En hann kvaðst
álita að það væri full ástæða
l’yrir þá að nota beltin að stað-
aldri.
Leigubilstjórar nota
öryggisbelti litið sem ekkert
og eru þau þó i flestum bilun-
um. Þeir leigubilstjórar sem
blaðið ra'ddi við sögðu að það
tæki þvi alls ekki að spenna
beltin. Mikið væri um stuttar
ferðir, rennt milli húsa og þá
þyrfti að fara út og opna fyrir
farþegum eða teygja sig i
afturhurðina. Hefði ekki vakn-
' að neinn áhugi innan stéttar-
innar á þessu öryggistæki.
Oryggisbelti eru engin i
strætisvögnum borgarinnar.
Vagnstjórar sögðu að það hlyti
að vera þvingandi að nota þau
við a>ksturinn. Stutt væri milli
stiiðva og stöðugt væru þeir að
selja miða og afhenda skipti-
miða. Það myndi tefja af-
greiðslu ef þeir væru spenntir
niður. Auk þess kæmi minni
hnykkur á svona stóra bila við
árekstur. —SG
-v ' f T? *
*' • --„w r. , ,v
- , • ¥■■■ ■■** &
.i .(’■ --v, . w, * ■■ •
'*ir. '■
«;«*• »' * ■-; *■ *... >
Ávísanaslóðin um landið þvert og endilangt:
Lifði „hótt" í þrjá
daga á fé annarra
• .. • “Vr. V' « s :
v v< Jb+t j
'* ' "r'' .1 - tv4 . •. -1' ' * *
1 v-,.‘ •-■•• -tw•'% ’-r .)--•
« t ■ v ; u * .•'■■*■
. ■ O «■ < ■ .• • '■:*,:■'■* -.i> V-‘
‘ ' :í ' * * ' ’ 'j K Z* • '
•»**.- y*. v* t ••/•<
6 . I .«•■ _
Á þrem dögum falsaði ávisana-
þjófur 46 ávisanir og sveik út fé,
sem talið er nema á annað hundr-
að þúsund krónur — en þá náðist
lika til hans, þar sem hann var
niður kominn á Norðfi'rðí. —
Ávisanaslóðin var þá rakin eftir
hann i gegnum Vestmannaeyjar,
Sauðárkrók, Akureyri og til Norð-
fjarðar.
Rannsóknarlögreglunni i Hafn-
arfiröi var tilkynnt um stuld á
ávisanahefti á bænum Fossá i
Kjós, og féll grunur á mann, sem
þar hafði komið á heimilið að-
faranótt þriðjudags. Við hann
kannaðist lögreglan af fyrri
kynnum.
En maðurinn fannst ekki fyrr
en á Norðfirði i gær, þar sem lög-
reglan tók hann i gæzlu að beiðni
fógetaembættisins i Hafnarfirði.
Við yfirheyrzlur kom i ljós, að
hann var búinn með öll 46 eyðu-
blöðin úr heftinu, og hafði lifað
hátt i báðum merkingum þess
orðs.
Hann haföi byrjað með þvi að
falsa 15 þús. króna ávisun, sem
hann fékk útleysta i aðalbanka
Búnaöarbankans i Reykjavik, en
þaðan var einmitt heftið. Tókst
honum það, þrátt fyrir að lögregl-
an hafði varað bankann við ávis-
unum með þessum númerum.
Tvo félaga sina tók hann með
sér og fóru þeir til Vestmanna-
eyja á þriðjudag, en þar var þá
þjóðhátiðin um garð gengin, og
dauft skemmtanalif fyrir þrjá
káta félaga.
Tóku þeir þá flugvél á leigu og
fóru til Sauðárkróks, en fengu áð-
ur útleysta 30 þús. króna ávisun i
Vestmannaeyjum, og var það
stærsta ávisunin, sem þeir föls-
uðu.
Einn heltist úr lestinni á Sauð-
árkróki (lögreglan hefur nú hand-
tekið hann einnig) en hinir héldu
áfram til Akureyrar. Þar hélt svo
ávisanaþjófurinn til Norðfjarðar,
en hinn snéri aftur til Reykjavik-
ur, þar sem lögreglan hafði held-
ur i hári hans.
Frekari yfirheyrzlur og rann-
sókn á eftir að fara fram i máli
þessara pennalipru sveina, og eru
ekki komnar fram næstum þvi
allar ávisanirnar, sem þeir höfðu
falsað. Lögreglan hefur nú þegar
vitneskju um nokkrar þeirra, sem
samtals hljóða upp á kr. 50 þús-
und, en margar eru enn ekki
komnar fram i dagsljósiö. — GP
BYSSUGLAÐIR Á FERÐ
- S|Q
baksíðu
Byssuglaðir náungar voru á ferð um Reykjavik og
Hafnarfjörð í fyrrinótt. Kaffiskúr við öskuhaugana í
Hafnarfirði var þakinn kúlnaförum og i Reykjavik
hafði byssuhlaupi verið þrýst upp að verzlunarrúðu og
síðan hleypt af.
En það varekki nóg með að skotin voru látin dynja á
saklausum kaffiskúrnum þarna í Hafnarfirði. Jarðýta
sem notuðertil að jafna út ruslahaugana varð einnig
fyrir barðinu á þessum pörupiltum og var framrúðan
sundurskotin. Er engu líkara en skotglaðir menn sæki
nú fast á sorphauga þeirra Hafnfirðinga því þar dynur
skothriðin flestar nætur. Ætti þvi enginn að voga sér út
á slikt hættusvæði eftir að dimma tekur.
Þá er það ekki beint fýsilegt að mæta mönnum á
götu í Reykjavik sem hleypa af innum glugga svona til
að skjóta á eitthvað. Við verðum bara að vona að lög-
reglunni takist að hafa hendur í hári þessarra pörupilta
og veiti þeim verðuga ráðningu.