Vísir - 12.08.1972, Blaðsíða 6
6
Visir Laugardagur 12. ágúst 1972
vísir
Útgefandi: Heykjaprent hf. (
Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson \
Ritstjóri: Jónas Kristjánsson /
Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson \
Ritstjórnarfulltrúi: Valdimar H. Jóhannesson í
Auglýsingastjóri: Skúli G. Jóhannesson \
Auglýsingar: Hverfisgötu 32. Simar 11660 86611 /
Afgreiösla: Hverfisgötu 32. Simi 86611 \
Ritstjórn: Siöumúla 14. Simi 86611 (5 linur) II
Askriftargjald kr. 225 á mánuöi innanlands /
i lausasölu kr. 15.00 eintakið. \
Blaðaprent hf. /
Enn þarf um
að bœta
Verzlunarmannahelgin er nýliðin. Þá daga er ))
ferðast meira um ísland en nokkru sinni endranær \\
allan ársins hring, enda eru þetta nú hjá flestum ((
orðnir þrir samfelldir fridagar, enma þá helzt hjá II
sumu verzlunarfólkinu! Þótt straumurinn lægi nú )
eins og jafnan áður til vissra staða, þar sem mann- \
fjöldi verður mikill, kjósa sumir enn að fara heldur (
þangað sem færra er um manninn og kyrrlátara en )
þar sem glaumur er mestur. Sennilega leggur þvi)
eitthvað af ferðafólki þessa daga leið sina til flestra (
hluta landsins, þar sem fært er um á bilum. /
Að þessari miklu ferðahelgi lokinni má fá nokkuð )
góða mynd af samskiptum islenzks ferðafólks við \\
náttúru landsins, bæði þar sem það dvelst og á án- (í
ingarstöðum á leið þess þangað. Sjónvarpið lét ekki )/
frekar en aðrir fjölmiðlar þetta efni fram hjá)
sér fara og fékk til viðtals tvo nafnkunna menn, sem (
viða höfðu komið þessa daga, auk þess sem sjón- /
varpsmenn leituðu frétta hjá löggæzlumönnum á )
hinum ýmsu stöðum um hátterni dvalargesta. \
Það kom greinilega fram i þessum viðtölum, að (/
kjörorðið, sem var tekið upp fyrir nokkrum árum: )
„Hreint land, fagurt land”, hefur borið mikinn \
árangur. Einnig virðast siendurteknar ábendingar (
og aðvaranir forustumanna umferðarmálanna hafa )
gert sitt gagn, þvi að umferðarslys urðu engin svo )
teljandi væri. Þetta er sannarlega gleðileg þróun, (
en eigi að siður kom það fram i viðtölunum, að um- (
gengni fólks er enn viða ábótavant. /
Enn þarf að herða róðurinn og þar mega fjölmiðl- \\
arnir ekki á slaka. Áhrif þeirra eru i þessu efni sem ((
öðrum feikna mikil, ef rétt er að farið. Það er t.d. //
ekki ótrúlegt, að sá, sem er á ferð i bil einhvers )
staðar úti á vegunum og ætlar að henda út um rúðu- (
opið bananahýði eða öðru rusli, kippi að sér hend- /
inni og hætti við, ef hann á sömu stundu heyrir i út-)
varpinu áminningu um að fremja ekki slikan sóða- \
skap. Sama máli gegnir um áminningar þessa efnis (
á sjálfum samkomustöðunum. Þær hljóta að hafa /
mikil áhrif til bættra umgengnishátta. )
Sigurður Þórarinsson prófessor flutti núna fyrir (
fáum dögum athyglisverðan útvarpsþátt um þessi)
efni, þá nýkominn úr ferð viða um landið. Hann var )
ómyrkur i máli, eins og hans er vandi, nefndi ýmis (
dæmi um sóðaskap og sinnuleysi fólks i umgengni /
þess við náttúruna. Engin ástæða er heldur til að)
hlifa þeim, er sekir gerast um það, sem hann \
nefndi, þvi sumt af þvi var sannast sagna svo hrylli-11
legt og lýsti slikri ónáttúru og afskræmingu mann- /
legs eðlis, að ótrúlegt er. Er þá einkum höfð i huga )
frásögn hans um það, að brotnum flöskum sé kastað (
i lindir og gjár, þar sem fólk syndir og baðar sig. //
Slikt á að varða þungri refsingu, ef til sökudólganna )
næðist. Bezta og liklegasta aðferðin er þó eflaust sú \
að reyna að breyta hugarfarinu. Á þvi þarf að byrja (
á heimilinu og strax i skólunum. Skemmdarfýsn er /
fæstum meðfædd, og holl uppeldisáhrif og leiðbein-)
ingar kennara geta miklu valdið um framtiðina. \
Þeir liefðu vafalaust
ekki fengið bliðustu
móttökur á Keflavikur-
flugvelli, ef sá draumur
margra íslendinga hefði
ræt/.t, að flug-
ræningjarnir kæmu þar
niður. En i Alsir áttu
þeir annars von. Alsir
hefur þann vafasama
orðstir, að hafa verið
paradis hvers konar
„freisishreyfinga” i
heiminum. Þar hafa
verið velkomnir full-
trúar aragrúa skæruliða
og útlagaflokka. Þangað
til „nornirnar” frá
Detroit komu i heim-
sókn.
Stjórn Alsir var i gær farin að
stugga við þessum gestum sinum
almennt. Leitað var i húsa-
kynnum útibús bandarisku
hreyfingarinnar „svörtu hlébarð-
arnir”. Menn töldu, að frekari að-
gerðir mundu koma á eftir.
Boumedienne forseti hafði i fússi
tekið milljón-dollarana af
ræningjunum, en hann varð
reiðari, þegar þeir heimtuðu hana
af honum aftur og birtu blaða-
mönnum bréf, sem þeir skrifuðu
Nornir í paradís
forsetanum. t bréfinu var Alsir-
forseti gagnrýndur fyrir að taka
milljónina og sagt, að þetta væri
ekki ránsfengur. ,,Það er ekki
unnt að tala um rán frá banda-
riskum kapitalistum”, sögðu
ræningjarnir. ,,Við eigum þetta
margfalt hjá þeim fyrir arðrán á
okkar fólki”. Boumedienne er
ekkert um gagnrýni gefið, enda
þarf hann litið að heyra af sliku i
flokksræði sinu i Alsir.
Var hæli fyrir
höfuðpaur LSD
t Alsir situr Eldridge Cleaver
rithöfundur, sem hraktist úr landi
i Bandaríkjunum, og liggur þar
undir ákæru. Cleaver klofnaði frá
meginhreyfingu svörtu hlébarð-
anna, er honum þóttu félagar þar
ekki nógu herskáir. t Alsir valdi
LSD-baráttumaðurinn, Timothy
Leary, sér hæli, þegar einnig
hann hraktist frá Bandarikjun-
um. Leary varð þó til vandræða i
Alsir, enda enn ekkert riki heims
til, þar sem rikisstjórn er gefið
um menn, sem berjast fyrir þvi,
að fólk leggist i LSD-vimu.
t Alsir var griðland skæruliða
og pólitiskra fanga, sem komust
frá Suður-Ameriku.
Stuugu penuahnif i
vonda hvita manninn
Flugræningjarnir voru i þetta
sinn með ólikindum. Svo töldu
verðir á flugvellinum, þegar átta
svertingjar, karlar, konur og
börn þrömmuðu út i flugvél
Delta-flugfélagins. Engin málm-
leitartæki voru til staðar, engin
gegnumlýsingartæki, og engin
leit. Þótt grunur kynni að hafa
fallið á einhvern i hópnum einn
saman, voru nafnskirteini mann-
anna og prestsbúningur eins
þeirra nægilega róandi.
Þrir karlmenn, tvær konur og
tvö börn flokksins, tóku sér sæti,
og sá er klæddur var kaþólskum
prestsklæðum og annar til,
komust i stjórnklefa og miðuð
byssu á flugmenn. 86 farþegar
voru á valdi (jessa byltingarhóps.
Fólk þetta hafði búið saman i
þvi, sem sum bandarisk blöð
kalla „nornakommúnu” i Detroit.
Fólkið neytti eiturlyfja og
stundaði „heiðna" siði, voodooo,
sem eru forn trúarbrögð og enn
iðkuð viða i Suður-Ameriku,
einkum Haiti, en þó nokkuð
annars staðar. Voodoo er galdra-
trú og andadýrkun. 1 kommún-
unni var voodoo-altari, sem var
notað við „undirbúning” farar-
innar. Dagur var valinn vanda-
lega i samræmi við galdra, enda
tókst nógu vel til um ránið, þótt
eftirleikurinn væri ekki vonum
samkvæmt. Á heimili sinu skildu
Galdrarnir hoðuðu góðan dag.
iimimm
Umsjón:
Haukur Helgason
Kemur á sundskýlu meö
milljónina.
ræningjarnir eftir sig hvita
brúðu, tákn vonda hvita manns-
ins, sem pennahnifi hafði verið
stungið gegnum. Umhverfis
altarið var raðað bibliu, matar-
diski, stjarnspekilegum upp-
drætti og smamynt i snyrtilegri
röð. Allt var vel undirbúið til
útrásarinnar gegn hvita mann-
inum, — kúgaranum.
Klæddir aðskornum
sundskýlum
Stjörnur voru i „réttri” stöðu á
himinhvolfinu. Draumurinn var
að uppfyllast. Flugmaðurinn,
með byssukjaftinn við höfuðið,
tilkynnti: ’’ Þeir heimta milljón
dollara (87 millj. krónur) i
iausnargjald fyrir okkur”.
Delta-flugfélagið fékk þrjár
klukkustundir til að safna
milljóninni. „Eigum við ekki að
mætast á miðri leið og segja hálf
milljón?” spurðu flugfélagsmenn
ræningjana. Svarið var: „Þá
látum við aðeins helminginn
lausan af farþegunum.”
FBI-menn, klæddir aðskornum
sundskýlum að kröfu
ræningjanna, sem óttuðust vopn,
komu með milljónina á flug-
völlinn i Miami. Á flugvelli i
Boston gerðu þeir sömu kröfur,
og viðgerðarmenn klæddust
sundskýlum. Þar reyndi svertingi
i FBI að koma tauti við
ræningjana, kynbræður sina”. Ég
er einnig frá fátækrahverfi, en
haldið þið að þið hagnist á
þessu”? spurði hann þá, en fékk
litil svör.
Skollaleikur Boumedi-
eune
Keðjureykjandi marijuana
komust ræningjarnir til
paradisarinnar, Alsir, Máttur
galdranna hvarf. Alsirstjórn
sagðist gera greinarmun á
skæruliðum og glæpamönnum.
Tveir karlmannanna reyndust
hafa framið stór afbrot, annar
myrt mann, hinn framið rán og
komist undan bandariskum
lögum. Verst var, að fólkið var
hávaðasamt i meira lagi og vildi
ekki láta ránsfenginn með góöu.
Flugránið hefur komið ýmsu af
stað. Enn hefur eftirlit verið
aukið mjög á flugvöllum i Banda-
rikjunum. Sautján sinnum hefur
farþegaþotu verið rænt á þessu
ári og lausnargjalds krafizt. I
öðru lagi hefur Alsirstjórn verið
gert erfiðara um vik i þeim
skollaleik, sem hún hefur iðkað.
Boumedienne, Alsirforseti, er
nefnilega alls ekki „róttækur
vinstri sinni”.