Vísir - 12.08.1972, Side 7
Yisir Laugardagur 12. ágúst 1972
7
Næturhólf
VIÐ VILJUM VEKJA ATHYGLI VIÐSKIPTAVINA
OKKAR Á ÞVÍ, AÐ BANKINN HEFUR OPNAÐ
NÆTURHÓLF OG VÆNTUM VIÐ ÞESS
AÐ VIÐSKIPTAVINIRNIR HAGNÝTI SÉR ÞESSA
NÝJU ÞJÓNUSTU
. . . þessi á að endast langt fram á vetur. . . .
Alþýðubankinn
Sumar - sól -
sumar - haust
Sumar og sól, og enn
meiri sól, getur það verið
betra en það hefur verið í
vikunni? Og allirsem geta,
snúa andlitunum móti sólu,
og ailir tiltækir sólbaðs-
staðireru nýttir. Svo kemur
bakslagið, kannski einhver
fái kvef i hitanum eða að
þaö birtist bréf frá nöldurs-
segg í lesendadálki ein-
hvers dagblaðanna. Það
eru þessar kvenverur sem
snúa sér óskammfeilnar
móti sólu i undirfötunum.
Eru þar með óprýði heillar
blokkar, þar sem þær flat-
maga á svölunum. Karl-
menn virðast ekki eins bí-
ræfnir, kannske ekki lausir
ennþá viö spennitreyju
jakkafatauppeldisins.
Danskir fataframleið-
endur hafa fundið lausnina
á þessu fegurðarvanda-
máli, eða þá að þeir eru
bara hugmyndaríkari en
aðrir i þeim viðskiptum.
Einn þeirra er nefnilega
svo forsjáll að ætla að fara
að framleiða nærföt, sem
einnig er hægt að nota á
ströndinni sem bikinibað-
föt, eða ef við snúum þessu
á islenzkar aðstæður, í sól-
baði i Hal largarðinum.
Hinn sami lætur ekki þar
við sitja í uppfinningasem-
inni. Náttklæðnaður, sem
einnig er hægt að nota sem
heimakjól, er á dag-
skránni.
Það má geta þess, að
klænaður, sem hægt er að
nota á ýmsa vegu hefur
orðið mjög vinsæll. Og hef-
ur þann feikna kost að litið
fer fyrir honum, þegar
pakkað er níður í ferða-
tösku, áður en flogið er af
stað til sólarlanda. Maður
má jú ekki hafa nema tutt-
ugu kiló með sér, ef farið er
eftir reglunum og ef forð-
ast á yfirvigt.
Aldrei þessu vant nefnum
við nafnið á framleiðand-
anum eða fyrirtækinu, sem
kemur með þessi föt á
markaðinn og heitir Femi-
let. í september kemur
þessi nýi klæðnaður á
markaðinn í Danmörku í
ýmsum útgáfum. Hann er
nær alltaf gerður úr rönd-
óttu efni i skærum litum,
rauðum, grænum, brúnum
eða bláum. Efnið er
trevirabómull, (67% tre-
vira og 33% bómull) sem er
létt efni og auðvelt í með-
förum.
Við höldum okkur enn við
sumarið, en nálgumst
haustið kannske aðeins
meir. Blússurnar sem þess-
ar sumarlegu stúlkur eru í
eru dágóðar flíkur að sumri
til. Þvi er einnig spáð að
blússurnar eigi lífdaga
framundan allt fram á vet-
ur, og hvita blússan sé
kannskesú blússugerð, sem
mest verði notuð, eftir að
T-blússa sumarsins hefur
verið lögð til hliðar. Hún er
talin vera eins þægileg og
auðveld að vera i, um leið
og auðvelt er að þvo hana.
Efnið er róslituð bómull og
ermarnar víðar.
Röndótta blússan er með
ermasniði, sem mun verða
algengast i vetur, víðar
ermar með liningu að
framan.
Og þá erum við komið að
haustinu. Þá drögum við
fram úr pússinu franska
tizkuteiknarann Guy
Laroche. Hann sýndi þess-
ar kápur á sýningunni sinni
fyrir nokkrum vikum. Við
könnumst við sniðið, sem
ekki kemur neinum á ó-
vart, sem gekk í svipuðum
kápum fyrir nokkrum ár-
um. Og auðvitað hlaut það
víða að koma eftir að það
þrönga aðskorna var búið
að vera allsráðandi um
nokkurt skeið. Mjög auð-
velt er að sjá fyrir hreyf-
ingar tízkuteiknara núna,
og kannske bezt að ætla sér
nokkurt geymslurými i bú-
staðnum. Breytingarnar
gerast nú æ örari og líða
ekki nema nokkur ár á
milli þess sem hægt er að
taka ,,gömlu" fötin upp
aftur, og verða ,,eins og
klippt út úr tízkublaði". Ef
það er þá á annað borð í
tizku. Sem betur fer örlar á
hreyfingu í þá átt, að konur
vilja ráða klæðaburði sin-
um meira sjálfar, og láta
tízkufrömuði lönd og leið.
— SB —
Umsjón:
Svanlaug
Baldursdóttir
. . lika sva laklæönaöur. . .