Vísir - 12.08.1972, Page 8
8
Visir Laugardagur 12. ágúst 1972
Sakaði lögregluna um fantaskap
Lögreglan krefst dómsrannsóknar
,,Þaö veröur aö
rannsakað núna , hvað
hæft er í ásökunum
mannsins um, að lög-
reglan hafi beitt hann
ofbeldi," sagði fulltrúi
fógeta í Vestmanna-
eyjum, Jón Þorsteins-
son, en einn af „gisti-
vinum" iögreglunnar
þar bar henni illa söguna
eftir dvöl i fanga-
geymslunum.
„Maöurinn hefur vist ekki
borið fram neina formlega
kæru, og er farinn úr Vest-
mannaeyjum, en það er lög-
reglan sjálf, sem hefur óskað
eftir rannsókninni,” sagði Jón
Þorsteinsson fulltrúi.
Maðurinn hafði sakað lög-
regluna um að hafa ráðizt á
sig i fangageymslunni og
þjarmað svo að sór, að hann
hafði nær misst meðvitund.
Kvartaði hann undan
eymslum i baki og fæti, sem
hann taldi sig hafa hlotið i
átökum við lögregluþjónana.
Samkvæmt frásögn mannsins
kom til ryskinganna , þegar
hann hafði beðið um að fá að
yfirgefa fangaklefann til þess
að fara á salernið, en um það
hafði hónum verið synjað.
„Það skýtur mjög skökku
viðþvi, sem lögregluþjónarnir
segja,” sagði Guðmundur
Guðmundsson, yfirlögreglu-
þjónn i Vestmannaeyjum.
„Hann haföi bankað á klefa-
hurðina, og þeir segja, að
þegar einn þeirra hafi farið að
sinna honum, hafi hann
stokkið út úr klefanum og á
lögregluþjóninn. Tveir lög-
regluþjónar hafi þá komið
félaga sinum til aðstoðar, og i
sameiningu hafi þeir borið
manninn inn i klefann,” sagði
Guðmundur.
Maður þessi, sem er til
heimilis að Selfossi, hafði
verið settur i fangageymsluna
ásamt félögum sinum, eftir að
hafa verið ölvaöir með
háreysti fyrir utan ibúðarhús
eitt i Eyjum, en var
hringt til lögreglunnar og
beöið um aöstoð. Voru þeir
fluttir á lögreglustöðina,
þegar þeir vildu ekki sinna til-
mælum lögregluþjónanna um
að hafa lægra og fara burt frá
húsinu.
Við yfirheyrslur hjá full-
trúa, sem tók mál þeirra fyrir
daginn eftir, bar Selfyssingur-
inn fram ásakanir á hendur
lögreglunni, og fullyrti að
hann væri meiddur i baki og á
hné. Var honum ráðlagt að
leita strax til læknis, og leggja
fram læknisvottorð með ásök-
unum sinum.
„En siðan höfum við ekkert
frá honum heyrt,” sagði full-
trúi fógeta.
En rannsóknin mun fara
fram engu að siður.
„Lögregluþjónarnir vilja
ekki una þvi að liggja undir
slikum áburði,” sagði yfirlög-
regluþjónninn. -GP.
Kr starfið ekki alveg gasalega spcnnandi”, — þannig spyrja ungar
stúlkur á Laugarvatni. Kannskisækir hún uni starf hjá lögrcglunni
siðar þessi?
VARNARLIÐIÐ
ÆFIR BJÖRGUN
Á SANDSKEIÐI
Eftir að Varnarliðið fckk hinar
nýju og öflugu björgunarþyrlur
hafa verkefni flugbjíirgunar-
sveitar liðsins aukizt að miklum
mun. Enda geta þessar þyrlur
leyst af hendi hin ótrúlegustu
verkefni.
Þessu l'ylgja meiri kröfur til
þjálfunar manna i flugbjörgunar-
sveitinni og hefur hún fengiö leyl i
til að æfa falihlifarstökk og fleiri
björgunaræfingar á Sandskeiði.
„Þetta verða aðeins nokkrir
menn sem æfa þarna við og við og
alveg i samvinnu við isicnzk flug-
málayfirvöld” sagði Páll Ásgeir
Tryggvason deildarsljóri varnar-
máladeildar i samtali við Visi.
Svæðinu verður ekki lokað á
nokkurn hátt meðan þessar
a'fingar fara fram og munu þær
ekki hafa nein áhrif á starfsemi
Sviffluglélagsins þar efra.
—SG
BOLUSETJIÐ YKKUR
GEGN KÓLERUNNI
— ráðleggur landlœknir Alsírförum
L a n d I æ k n i r ráðleggur
fólki, scin ætlar að fara til Alslr,
ciudrcgið að láta bólusetja sig
gegn kólcru i tæka tið. Samkvænit
tilkynningu frá Alþjóðahcil-
brigðisinálastofnunni hcfur
kólera komið upp á nokkrum
stöðum i Alsír.
Visir talaði við Benedikt
Tómasson skólayfirlækni, sem
sagði, að tilkynning hefði komið
um að kólera hefði komið upp á
fjórum stöðum i Alsir. t Annaba
er vitað um tiu tilfelli, i Easnan
um eitt, i Medea um tiu og um sex
i Setif.
Það fylgdi orðsendingunni frá
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunni,
aö tilfellin væru væg og vel fylgzt
með veikinni.
Benedikt sagði ennfremur, að
þegar veiki sem þessi kæmi upp i
einhverjum hluta lands væri
ævinlega litið á allt landið sem
sýkt. Með það i huga veröi venju-
legum varúðarráðstöfunum og
eftirliti fylgt hér a landi, sem
felur m.a. i sér eftirlit með ferða-
mönnum.
lslenzkir ferðamenn sækja þó
nokkuð til Alsir og er það oftast
tengt Spánarferðum fólks.
Bragi Ólafsson aðstoðar-
borgarlæknir sagði i viðtali við
Visi i morgun. að búast mætti við,
að bóluselning gegn kóleru ykizt
viö fréttina af kólerunni i Alsir.
Daglega komi alltaf nokkuð af
fólki til bólusetningar vegna
ýmissa sjúkdóma, sem möguleiki
er á, að ferðafólk fái erlendis. —
SB—
<0 Konur í
„Við hjóðuin þessum konum
siiniu laun fyrir siiniu vinnu og
þær koina til með að fá sömu
tækifæri. og karlmcnnirnir i
starfinu” sagði Bjarki Eliasson
yfirliigrcgluþjónn cr við spurðum
hann ii m ráðningu á kven-
lögrcgluþjónum. 1 vctur var
auglýst cftir konum til starfa i
lögregluna
lögreglunni, en áhuginn var litill
hjá kvenþjóðinni, og engin var
ráðin. Nú hefur vcrið ákveðið að
gera aðra tilraun og i september
n.k. verður auglýst á sama hátt
og s.l. vctur. Um miöjan október
hcfst svo þjálfunin og tekur hún
uin 2 ár, cða cins og hjá karl-
mönnunum. Sönui inntökuskil-
í haust
yrða er krafizt, nema hvað hæðin
cr önnur cða sem svarar meðal-
hæð kvemia.
„Eruð þið bjartsýnir á að nú
gangi betur?” „Já, ég býst við að
konum hafi þótt erfitt að vera
brautryðjendur en iiú höfuin við
k.vnnt þctta nokkuð og við vonum
það bezta.” sagði Bjarki. —ÞS
CAMEL-LAXINN ÞUNGUR í DRÆTTI
Það tók liðlcga tvær klukku-
stundir að landa sjötta Camel-
laxinum og reyndist það vera
22ja punda liængur. Sá, sem
vippaði laxinum á land, var
Garðar Bjarnason. irabakka 2«,
og var hann að veiða i Soginu.
Sjöttu viku Camel- laxveiði-
keppninnar lauk á laugar-
daginn og hafa sex Camel-
laxar veiðst. Er þetta þriðja
vikan i röð, seni stærsti lax
vikunnar veiðist úr vatnasvæði
ölfusár og Sogs. Garðar veiddi
laxinn á Tobyspún i Kúagili og
var Garðar i sinni fyrstu veiði-
ferð. Auk þess veiddi hann tvo
14 punda. en missti þann stærsta
eins og lög gcra ráð fyrir.
—SG
Stöðugt fleiri í „milla-
klúbbinn"
Háskólahappdrættið er vist eina
vonin fyrir menn sem vilja
komast i „millaklúbbinn” á
einni nóttu,- ef það má orða þaö
svo. t siðasta drætti bættust
l'jórir slikir við, og mánaðarlega
bætast nýjir milljónar- eða
milljónaeigendur i hópinn. Það
voru fjórir eigendur miða
númer 6456, sem voru hinir
heppnu að þessu sinni,'liklega
allir Heykvikingar þvi miðarnir
voru frá aðalumboðinu i
Tjarnargötu 4.
Broskarlinn skraður sem
vörumerki
Nesti við Elliðaár Ártúnshöfða
og i Eossvogi hafa sótt um að fá
broskarlinn, sem Visir kynnti
rækilega i vor og sumar sem
vörumerki fyrirtækisins.
Kemur þetta' fram i
Lögbirtingarblaðinu. Broskarl-
inn helur undanfarna mánuöi
farið eins og faraldur um öll
liind, — og væntanlega komið
mörgum i gott skap. Til þess var
vist leikurinn lika gerður.
Nýjir menn í topp-
stöðurnar
Ólafur Ólafsson læknir var
skipaður að tillögu heilbrigðis-
málaráðuneytis til að gegna
embætti landlæknis frá 1. okt.
n.k. að telja — Einn sótti um
embætti skattstjóra Vestfjarða-
kjördæmis, Hreinn Sveinsson,
lögfræðingur i Reykjavík —
Arni Reynisson var skipaður
framkv. stjóri Náttúru-
verndarráðs frá 1. ágúst s.l. —
Hjálmar ólafsson, fyrrum
bæjarstjóri i Kópavogi var
skipaður aðstoðarskólastjóri
meö Guðmundi Arnlaugssyni
við Menntaskólann i Hamrahlið.
■ ■
M v æA
Ml sPÁSM
Þetta er kjarniiin i söluliði VIsis, sem daglega vekur athygli vegfarenda á blaðinu með hrópum sinum
og köllum. Aldrei fyrr i sögu blaðsins hefur annað eins lið verið við söluna, og aldrei fyrr hefur salan
verið jafn góð hjá strákunum, sem hafa með þessu nióti getað krækt sér I dafitinn vasapening, enda
veitir ekki af fyrir skólanna, sem nú er svoóttalega skammt undan hjá þeim flestuin.