Vísir - 12.08.1972, Page 9
Visir l.augardagur 12. ágúst 1972
9
Vinur
Portoroz 1958. 15 ára drengur i
æpandi klæðum labbar frá hóteli
sinu aö höllinni þar sem kandi-
datamótið i skák fer fram. Þar á
liann að glima við furður mann-
taflsins á 64 reitum i baráttu við
revnda meistara, sem teflt hafa
árum saman. Kliðurinn frá jazz-
klúhhnum hinum megin götunnar
truflar ekki unglinginn. Hann
gengur rakleiðis að stóru húsi þar
sem keppnin fer fram....
,,Það var i Portoroz sem ég hitti
Bobby Fischer i fyrsta sinn. Ég sá
hann á pósthúsinu þar sem hann
var að senda skeyti til móður
sinnar. Hann virtist alvarlegur i
bragði og varla vottaði fyrir brosi
á unglegu andliti hans. Kannski
var hann taugaóstyrkur vegna
þess að þetta var i fyrsta sinn sem
hann gisti Evrópu og tók þátt i
skákkeppni við sterkustu skák-
menn i heimi.
Aðstoðarmaðurinn hans, Bill
Lombardi, var þarna lika. En
hann skipti sér litið af Bobby, sat
á bekk og las leynilögreglusögu i
hvita snjáða jakkanum sinum.
Ég slóst i för með þeim frá
pósthúsinu til hótelsins og fékk þá
ýmislegt upp úr unga skáksnill-
ingnum. Hann sagði mér frá fystu
sigrum sinum i skáklistinni. Syst-
ir hans Joan kenndi honum
mannganginn og hann minntist
þess þegar móðir hans Regina
setti auglýsingu i dagblað i
Brokklyn: „Óska eftir skákkenn-
ara til að tefla við son minn”.
Siðan lá leið Bobbys til Man-
hattan-skákklúbbsins i New York
og frægðarferill hans hófst brátt
fyrir alvöru.
Yngsti stórmeistarinn
Það var ekkert sem komst að i
huga hans annað en skák. Hann
byrjaði i gagnfræðaskóla i Brokk-
lyn en hætti eftir þriggja ára
nám. „Ég varð fljótt sterkari en
kannarinn” sagði Bobby mér i
Portoroz. Þegar ég fór i klúbbinn
10 ára gamall sögðu þeir við mig,
þegar ég ætlaði að vera með i
hraðskákmóti: „Þú ert of ung-
ur”. Þeir hafa séð eftir þvi þegar
árin liðu. Ég hef ekki óskað eftir
þvi að þeir bæðust afsökunar. Mig
langaði bara til þess að tefla. Það
var allt og sumt”.
Næstu daga dvaldi ég oft með
Bobby á hótelherbergi hans.
Hann „stúderaði” á nóttunni og
fram undir morgun, en svaf til
hádegis.
Eftir hádegi var svo teflt.
Bobby vann hvern meistarann á
fætur öðrum. Eftir árangur sinn i
Portoroz öðlaðist hann stór-
meistaratitil yngstur allra skák-
manna sögunnar , 15 ára gamall.
„Ætli ég lendi ekki svona i
fjórða eða fimmta sæti i kandi-
datakeppninni sagði Bobby, þeg-
ar hann hafði tryggt sér þátttöku-
rétt i Bled að ári.
BLED ’59
sker ég af mér
eyrað”
Með'al keppenda i kandidata-
mótinu er 16 ára strákur sem
stingur i stúf við aðra skákmeist-
ara. Hvar sem hann kemur starir
fólk á hann. En Bobby Fischer er
ekki mikið fyrir fjöldann. Hann
forðast að lita á nokkurn mann og
vikur sér fimlega undan
myndavélum og blaðamönnum.
Undanfari heimsmeistaraein-
vigisins er hafinn. Ég minnist
viðureignar Bobbys og Paul
Keresar. Bobby hafði sagt mér
fyrir skákina að hann myndi
vinna. Það gerði hann lika, en
mér er alltaf minnisstætt hversu
vel Kerses tók ósigrinum. Þrátt
fyrir öll áföll var hann alltaf sami
gamli góði Paul. Nú er Fischer
öruggari með sig en fyrir ári i
Portoroz. Hann er sannfærður um
að hann muni'sigra og verða
næsti áskorandi. Larsen að-
stoðarmaður hans er ekki á þvi.
Miakael Tal undramaðurinn frá
Riga er nú á hátindi frægðar sinn-
ar. Allir ungir skákmenn vilja
likjast Tal. Enginn er eins og
hann.
Fischer ber mikla virðingu
fyrir Tal á þessum árum.óska-
draumur hans var að vinna Tal
En það mistókst i kandidatmót-
minn Bobby Fischer
Dimitrijé Bjélica
frá Júgóslavíu:
inu. Tal sigraði Brooklyn-strák-
inn léttilega 4:0
Það varð þvi ekki hlutskipti
Fischers að verða áskorandi
Botvinniks um heimsmeistaratit-
ilinn. Hann lenti i 5-6 sæti en hafði
þrátt fyrir allt vakið alheims-
athygli með taflmennsku sinni.
1 siðustu umferðinni átti hann
að tefla við Smysloff. Daginn áð-
ur fórum við i bió og sáum Van
Gogh myndina „Lifsþorsti” þar
sem Kirk Douglas skar af sér
eyrað. Bobby hvislaði að mér:
„Ef ég vinn ekki Smyrsloff á
morgun þá sker ég af mér annað
eyrað! ”
En þessi óviðjafnanlegi ungl-
ingur þurfti ekki að skera af sér
eyra, hann vann Smysloff auð-
veldlega.
„Bravó Bobby”
sagði Najdorf
Eftir kandidatamótið sáumst
við ekki i heilt ár. A olympiumót-
inu i Leipzig hittumst við og átt-
um saman margar ánægju-
stundir. Hann var drýldinn og
hældi sér og bandarisku sveitinni
á hvert reipi. „Við verðum liklega
númer tvö á eftir Rússunum”.
Mer er minnisstæð keppni
Bandarikjanna og Equador.
Fischer tapaði þar óvænt fyrir
óþekktum skákmanni Munoz að
nafni. Liklega hefur hann van-
metið andstæðinginn þvi þegar
hann gaf skákina og stóð upp frá
taflborðinu sagði hann: „Þaðget-
ur allt skeð i skák”.
1 Bled 2 mán. seinna sigraði
Bobby Tal i fyrsta sinn. Lang-
þráður draumur han rættist og
hann réði sér ekki fyrir gleði.
Þetta var á millisvæðamóti og ný
atlaga að heimsmeistaranum var
hafin. Bobby var i góðu formi og
sigraði Rússana hvern af öðrum.
Petrosjan Geller og Keres lágu
allir i valnum. Um þetta leyti var
Bobby orðinn mjög vinsæll i
Júgóslaviu. Fjölda bréfa rigndi
yfir hann frá landsmönnum sem
óskuðu honum velfarnaðar i mót-
inu.
Eitt kvöldið þegar við vorum að
skemmta okkur saman i Bled
sagði Bobby mér að hann væri
jafn góður söngvari og skákmað-
ur. Til að sannfæra alla um þetta
tók hann sig til, stökk upp á sviðið
i „Casinó” og söng fullum hálsi
uppáhaldslag sitt „When the
Saints go marching in”. Einn
dansgestanna hrópaði upp yfir sig
af hrifning, Bravó Bobby. Það
vargóði gamli Najdorf vinur okk-
ar allra.
t Stokkhólmi heyrði ég frá
Fischer og stórkostlegum sigrum
hans i millisvæðamótinu. Hann
tók snemma forystu i mótinu og
hélt henni allt til loka. Fyrsta
sætið var hans, tveimur og
hálfum vinningi fyrir ofan þá
næstu, Petrosjan, Geller og
Kortsnoj. Hann hafði tryggt sér
farseðil til Curacao þar sem
áskorendakeppnin átti að fara
fram. Þegar þangað var komið
höfðum við samband eins og
alltaf. Hann skfiTaði mér og
kvaðst ekki vera ánægður með
frammistöðu sina. Eins og allir
vita var Curacao byrjunin á kalda
striðinu sem Bobby hefur háð við
Rússa allt fram á þennan dag.
Það er óþarfi að taka það fram
hvað Fischer og Rússana greindi
á um. Það er öllum kunnugt svo
ég ætla ekki að rifja það upp.
Haustið 1962 var Olympiu-
skákmótið haldið i Jógó-
slaviu. Ég tók á móti vini
minum á járnbrautarstöðinni i
Belgrad. Þá hlakkaði hann mikið
til að fá að tefla við Botvinik en
leiðir þeirra höfðu aldrei legið
saman við taflborðið. Bobby lagði
hart að sér og var staðráðinn i að
vinna. En Botvinik hafði heppn-
ina með sér og náði jafntefli með
hjálp Gellers eftir að skákin hafði
farið i bið.
Ári eftir Olympiumótið skrifaði
Bobby mér og sagði að hann hefði
ákveðið að tefla ekki i fleiri skák-
mótum á vegum FIDE. Mótmæli
hans og biturð lágu djúpt og höfðu
reyndar byrjað i Curacao þegar
hann deildi sem mest á Rússana
fyrir að tefla saman og útiloka
aðra keppinauta sina. Eftir að
hafa sigrað á meistaramóti
Bandarikjamanna með þvi að
leggja alla andstæðinga sina að
velli bjuggust margir við þvi að
hann mundi nú brjóta odd af of-
lætisinu og tefla i millisvæðamót-
inu i Amsterdam. En hann stóð
fast við sitt. Keppnin hófst á rétt-
um tima — en án Bobby Fischers.
I Tel Aviv um haustið lét hann
heldur ekki sjá sig með banda-
risku sveitinni til að taka þátt i
Olympiuskákmótinu.
Feecher Feecher.....
Næstu árin er Fischer ekki með
i meiriháttar skákmótum sem
haldin eru i heiminum. Hann er
hvattur til þess að halda áfram að
tefla. En allt kemur fyrir ekki.
Loks lætur hann undan þráa sin-
um og er brátt kominn i fremstu
viglinu á nýjan leik. Hann tryggir
sér sigur i bandariska meistara-
mótinu og þar með þátttökurétt á
millisvæðamótið 1966.
Við erum að ræða saman
snemma á árinu 1966 i Havana
„Verðlaunaupphæðir i stórmót-
um eru allt of lágar” segir
Bobby. ,,t Stokkhólmi 1962 fékk
ég bara 750 dollara fyrir fyrsta
sætið. Mér finnst það hlægilegt.
Lágmarksupphæð er 5000 dollar-
ar á svona sterkum mótum og
þegar menn eru að keppa um
heimsmeistaratitil.” Ég spyr
hann um fyrirkomulagið á heims-
meistaraeinvigjum sem hann
hefur alltaf gagnrýnt. „Það á að
breyta þessu öllu saman. Sá sem
er fyrstur til þess að vinna sex
skákir á að verða sigurvegari ein-
vigisins um heimsmeistaratitil.”
— Hver er bezti skákmaður
heimsins i dag?
Ég veit það ekki. Fyrir nokkr-
um árum var það Tal. Kannski
Spasski sé það núna.
— Hver verður næsti heims-
meistari?
— „Það verður auövitað
Rússi,” segir Fischer og hlær.
Þegar við göngum út á strætin
þekkja hann allir og hrópa á
kúbanskan máta: Feecher,
Feecher.
/,Hvarf eins og draugur"
Millisvæðamótið i Souse i
Túnis. Það er ástæðulaust að vera
að rifja upp þann harmleik. Allir
vita að þá afsalaði Bobby enn
einu sinni rétti sinum til þess að
keppa að heimsmeistaratitlinum.
Eftir fimm umferðir hafði hann i
hótunum að fara vegna þess að
mótsstjórnin gekk ekki að kröfum
hans um Ijósabúnað. Ég var
staddur þar. Allir voru forviða á
Bobby. — Hverjum er allt þetta
að kenna? „Þeim sem halda
mótið” Ég hefði getað haldið
þetta mót betur en allir þeir til
samans. Ég hætti i þessu móti og
ætla ekki að taka þátt i fleiri
slikum”.
Hann hætti en kom aftur. Eftir
tvær umferðir i viðbót var hann
horfinn og Gligorie sagði við mig
þegar ég kom til þess að horfa á
hann tefla „Hann hvarf bara eins
og draugur”. 1968 ber fundum
okkar aftur saman. Hann hefur
ekki gleymt erjunum við FIDE.
— Hverjir eru sterkustu
skákmenn heimsins fyrir utan
þig, spyr ég hann. „örfáir Rússar
og Larsen segir hann. — Hverjir
eru liklegastir til þess aö tefla
um heimsmeistaratitil að þinum
dómi? ,,— Bobby Fischer og
einhver annar ....kannski Rússi”.
Telurðu þig fremri skákmann en
Larsen? — Já auðvitað er ég
það”. Hvað finnst þér um framtið
Rússlands sem skákþjóðar?
„Rússar eiga engin efni nú orðið.
Það er einkennilegt af þvi að
hvergi er aðstaða til þess að tefla
skák betri en i Rússlandi”. —
Hvað er þá framtiðin i skákinni?
„Ég er bjartsýnn á framtiðina.
Skákinni fer fram. Það er alltaf
skrifað meira og meira af góðum
bókum. Ég er á móti þessum
heilum sem Rússar eru að búa
til.Þeir ná aldrei langt. —
Myndirðu hætta þér út i að tefla
við einn slikan?
„Já, það myndi ég gera, ég er
ekki hræddur við vélar. Það eina
sem ég hræðist eru blaðamenn.
Þetta var 1968. Nú situr Fischer
andspænis Boris Spasski i
einviginu um heimsmeistara-
titilinn.
Þeir eru báðir vinir minir
hvernigsem þessu einvigi lyktar.
Dimitrijé Bjelica. / GF
Bobby með hundinn sinn fyrir framan húsið sitt I Broæklyn
Bobby i Júgóslaviu með frú Bjelicu konu greinarhöfundar
}kí|
■
Bobby og Bjelica á góðviðrisdegi f Júgóslavfu með tennisspaðana