Vísir - 11.12.1972, Síða 14

Vísir - 11.12.1972, Síða 14
■■ :: ::::: ■■■■■■■■ ■■■■■■■■ ■■■■■■■■■■■■i Sigurmark Arsenal um- rœðuefnið nœstu vikur :: :: a rang- En allt ekki — t»á hafa ibúar Norb- ur-Lundúna umræðu- el'ni, sem endast mun þeim næstu vikur og inánuði, eða ár — sig urmark Arsenal i við- ureign „erkilendanna” á White Ilart Lane á laugardag. Tottenham, sem þarna lék sinn 3ja leik á sex dögum, náði sér ekki vel á strik — og Arsenal náði forustu á (»5. min. með marki Fet- er Storey. Fimm minútum siðar kom hið umdeilda atvik. Storey fékk knöttinn rang- stæður 2-3 metrum inn- an varnar Tottenham. Linuvörðurinn veifaði, en Storey lék til baka og gal siðan á Itadford. Allir leikmenn Totten- ham hættu — John hélt áfram með knöttinn og renndi honum i markið. Dómarinn dæmdi mark þrátt lyrir áköf mót- mæli leikmanna Totten ham, sem sögðust hafa hætt, þegar linuvörð- urinn veifaði stöðu Storey. kom l'yrir markið gilti og reyndist sigurmark leiksins. Lokakafla leiksins sótti Tottenham mjög og munaði sár- litlu, að leikmönnum liðsins tækist aö jafna. Martin Peters skoraði, og siðan áttu báðir, Martin Ctiivers og Ralph Coates, spyrnur i þverslá. En inn vildi knötturinn ekki aftur. Leiknum lauk með sigri Arsenal og deilt verður fram og aftur um atvikið á „pöbbum” Norður- Lundúna i náinni framtið. ,,Til hvers eru linuverðir” munu áhangendur Tottenham spyrja og fylgjendur Arsenal svara, að það sé dómarinn, sem ráði. Liverpool tapaði stigi gegn WBA og leikmenn liðsins munu naga sig i handarbökin —einkum Peter Cormack, skozki lands- liðsmaðurinn, þvi dómari leiks- ins rak hann af leikvelli, þegar stundarfjórðungur var eftir af leiknum. Leikmenn Liverpool voru þvi 10 lokakaflann. Jafn- tefli var, þegar Peter var látinn vikja. Boersman skoraði fyrir Liverpool á 20. min, en Tony Brown jafnaði fyrir WBA á 69. min. Annar frægur kappi var einn- ig rekinn af leikvelli — miðherji Englands. Francis Lee, hjá Manch. City. Það var i leiknum i Sheffield gegn United. Þá voru 25 min. eftir af leiknum, þegar dómarinn rak Lee útaf fyrir að sparka i mótherja sinn, Trevor Hockey. Læti urðu mikil og Colin Bell hjá City var bókaður. Pcter Storev ..harðjaxlinn" i liði Arsenal kom mjög við sögu á laugardg. Ilann skoraði fyrra mark liðsins sins með ágætu skoti. Eftir samninga,sem staöið hafa i margar vikur, hefur WBA nú loks tekizt að fá útherja Glasgow Itangcrs - Wille .lohnston. Hann lék sinn fyrsta leik með WBA gegn Liverpool og kostaði 130 þúsund pund. Willee, nr. 10, skallar þarna knöttinn. Bell hafði skorað mark liðs síns, en Woodward jafnaði fyrir heimaliðið, sem þar hlaut dýr- mætl stig i fallbaráttunni. En við skulum nú lita á úrslit- in i getraunaleikjunum á laugardag. X Birmingh.— Leicester 1-1 1 Chelsea—Norwich 3-1 1 Derby—Coventry 2-0 2 Everton—Wolves 0-1 1 Ipswich—C.Palace 2-1 1 Leeds—West Ham 1-0 2 Manch. Utd.— Stoke 0-2 X Newcastle—Southampt. 0-0 XSheff. Utd,—Manch.City 1-1 2Tottenh.—Arsenal 1-2 X WBA—Liverpool 1-1 2 Preston—Blackp. 0-3 Talsvert var um kaup og sölur undir lok vikunnar. Willie John ston var keyptur af WBA, sern greiddi Glasgow Rangers 130 þúsund pund fyrir hinn kunna, skozka landsliðsmann. Þá keypti Everton miðherja Skotlands og Aberdeen Joe Harper fyrir 180 þúsund pund, en seldi litla, rauðhærða Alan Whittle til C. Palace fyrir 100 þúsund pund. Ian Hutchinson kom aftur inn i lið Chelsea eftir 21 mánaðar fjarveru vegna meiðsla (fót- brotnaði tvivegis) og hvilik end- urkoma. Hann skoraði tvö af - mörkum Chelsea i 3-1 sigri gegn Norwich. Garner skoraði fyrir Chelsea i byrjun siðari hálfleiks og eftir 60 min. sendi Hutchin- son knöttinn i mark. Skozki landsliðsm. Bone hjá Nor- wich setti spennu i leikinn, þeg- ar hann lék á þrjá varnarmenn og skoraði bezta mark leiksins. En Hutchinson var aftur á ferð- inni á 80. min. og tryggði örugg- an sigur Chelsea. Og eftir þenn- an leik ætti Chelsea að hafa mun meiri möguleika til að komast i úrslit deildabikarsins — liðið er greinilega betra en Norwich, sem leikur gegn Chelsea i bikarnum. Leeds hlaut bæði stigin gegn West Ham, en áhorfendur urðu þó fyrir miklum vonbrigðum með liðið. Liðið lék þó vel fram an af og Mike Jones skoraði eft- ir hálftima. Þá átti Lorimer hörkuskot i þverslá. En eftir þvi, sem leik á leikinn varð leik- ur Leeds lakari — West Ham fór aðsækja miklu meira. Og Clyde Bestfór þá illa að ráði sinu — misnotaði auðvelt tækifæri til að jafna. Leikmenn Manch. Utd. kom- ust aftur niður á jörðina eftir tvo sigurleiki i röð og töpuðu óvænt fyrir Stoke á Old Trafford. Fyrsti sigur Stoke á útivelli og liðið hafði aðeins náð einu stigi i 10 leikjum áður. Stoke skoraði bæði mörk sin i fyrri háifleik. Fyrst bakvörðurinn Pejic á 15. min. og siðan John Ritchie. Og dæmigert fyrir vörn United þá voru þetta einu um- talsverðu upphlaupin hjá Stoke i leiknum. Þrátt fyrir mun meiri sókn tókst Manch. Utd. aldrei að skora. Flóðljósin á vellinum bil- uðu fyrst i siðari hálfleik og liðu 16 min. þar til leikurinn gat haf- izt að nýju. Everton leitar nú út um allt að leikmönnum, sem geta skorað mörk, en allt kom' fyrir ekki gegn Úlfunum á laugardag — ekkert mark og ekki sigur i sjö leikjum. úlfarnir skoruðu einu sinni og það nægði til sig- urs. En leikmaður, sem Everton hafði fyrir nokkrum vikum, skorar nú nær öll mörk Ipswich — David Johnson. Hann skor aði bæði mörkin gegn Crystal Palace á laugardag og tryggði sigur liðs-sins eftir að Palace hafði snemma i leiknum náð forustu með marki John ,,joki- björn” Hughes eftir mikil varnarmistök. En á 34. min jafnaði David, þegar hann brunaði framhjá tveimur varnarleikmönnum. 1 byrjun siðari haifleiks skoraði hann svo sigurmarkið eftir lallegt upp- hlaup. Þetta var áttundi leikur Ipswich án taps og liðið hefur ekki náð jafn góðum árangri siðan Sir Alf Ramsey var með það. Colin Boulton var hetja Derby-liðsins i fyrri hálfleik og varði þá oft snilldarlega, þegar Coventry réð gangi leiksins. En i siðari hálfleik náði Derby yfir- tökunum — Alan Hinton skoraði úr vitaspyrnu á 55.min. og á 70, min, tryggði Archie Gemmill sigurinn. Coventry hefur nú tapað tveimur leikjum i röð og hefur illa þolað að missa fyrir- liðann Barry og Glazier mark- vörð. Hins vegar kom það ekki að sök að þessu sinni — Daniel og O'Hare stóðu sig vel i stöðum þeirra. Þetta var fyrsti leikur John O’Hare sem framvörður i Derby-liðinu, en hinn ungi, hávaxni Davies var miðherji. 1 Miðlandaderbie-leiknum i Birmingham náði Leicester for- ustu á 33. min. þegar Graham Cross, miðvörðurinn sterki hjá Leicester, skoraði eftir hornspyrnu. En i siðari hálfleik tókst Birmingham að jafna á 57. min. Það var 17 ára piltur Jimmy Calderwood, sem skor- aði — fyrsta mark hans fyrir Birmingham. Eric Martin, markvörður Dýrlinganna, var „stjarna” leiksins i Newcastle, þegar leik menn heimaliðsins „skutu” á hann frá öllum hliðum. En aldrei fór boltinn i markið. Dómari leiksins hótaði tvivegis að hætta leiknum vegna þess, að áhorfendur blésu i flautur og höfðu mjög truflandi áhrif. I siðara skiptið var leikurinn stöðvaður i nokkrar min.meðan lögregluþjónar leituðu meðal áhorfenda að flautumeisturun- um. Úrslitaleikur skozka deilda- bikarsins var háður á laugardag og þriðja árið i röð tapaði Celtic i úrslitum. Hibernian sigraði með 2-1. 75 þúsund áhorfendur sáu léikinn i Hampden Park i Glasgow. Það var fyrirliði Hibernian, skozki landsliðs- maðurinn Pat Stanton, sem átti mestan heiður af þessum fyrsta sigri Edinborgarliðsins i deildabikarnum. A 60. min skoraði hann fyrsta mark leiks- ins og sex min. siðar átti hann frábæra jsendingu á annan skozkan landsliðsmann i lið Hibernian, Dave Cropley, sem skallaði i mark. Dalglish skor- aði eina mark Celtic i leiknum, þegar 10 min. voru til leiksloka, en ekki tókst Celtic að jafna muninn. Staðan i 1. og 2. deild i Eng- landi er nú þannig: Liverpool 21 13 5 3 42 25 31 Arsenal 22 12 5 5 29 22 29 Leeds 21 11 6 4 39 24 28 Ipswich 21 9 8 4 29 22 26 Chelsea 21 8 8 5 32 25 24 Tottenh. 21 9 5 7 28 23 23 Derby 21 10 3 8 27 30 23 Newcastle 20 9 4 7 33 28 22 West Ham 21 8 5 8 37 29 21 Southampt. 21 6 9 6 22 21 21 Wolves 21 8 5 8 33 34 21 Coventry 21. 8 5 8 21 22 21 Norwich 21 8 5 8 22 30 21 Manch. City 21 8 4 9 30 32 20 Everton 21 7 4 10 21 22 18 Birmingh. 22 5 7 10 28 35 17 Sheff. Utd. 20 6 5 9 20 29 17 Stoke 21 5 6 10 31 34 16 WBA. 21 5 6 10 21 30 16 Manch. Utd. 21 5 6 10 20 29 16 Leicester 20 4 7 9 22 28 15 C. Palace 20 3 8 9 16 29 14 Burnley 20 10 9 1 34 19 29 Blackp. 21 10 7 4 35 21 27 QPR 21 9 9 3 37 26 27 Aston Villa 20 9 6 5 21 18 24 Luton 20 9 5 6 28 23 23 Preston 21 9 5 7 20 18 23 Middlesb. 21 8 7 6 20 23 23 Oxford 21 9 4 8 26 22 22 Sheff. Wed. 22 8 5 9 36 34 21 Bristol C. 21 7 7 7 25 26 21 Nott. For. 21 7 7 7 22 26 21 Fulham 20 6 8 6 26 24 20 Swindon 21 6 8 7 29 31 20 Carlisle 20 7 5 8 27 26 19 Hull 21 6 7 8 28 27 19 Huddersf. 21 5 9 7 19 24 19 Millwall 21 7 4 10 27 26 18 Orient 21 5 8 8 20 26 18 Sunderl. 20 5 7 8 26 32 17 Cardiff 20 7 3 10 26 33 17 Pourtsm. 21 5 5 11 22 31 15 Brighton 21 2 9 10 23 41 13 íi :: :: :: :: :: :: ii :: :: :: :: :: :: I.ii ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■?■■■■■■■■■■■■■! :::: ■■■■■■■■■■■

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.