Vísir - 15.02.1974, Qupperneq 20
/#
EG SA HANN LIGGJA
VIÐ BOTNINN"
PgPPP$8SppM!!
— amerísk kona bjargaði 9 ára dreng í sundlaugunum
í Laugardal í gœr
„Ég sá hann liggja viö botn-
inn, og mér fannst eitthvaö
óvenjulegt að sjá drenginn
þannig. Kg kafaöi þvi niður til -
hans, og þá fann ég, aö hann var
alveg máttlaus, og mér fannst
hann ekki anda. Kg fór því meö
hann upp á bakkann og hrópaöi
á hjálp. Mér skilst, aö þeir hafi
bjargað honum.og mikið óskap-
lega er ég fegin”.
Og þar með stakk hún sér úti
sundlaugina, ameriska konan,
Linn að nafni, sem bjargaði i
sundlaugunum i Laugardalnum
i gær dreng frá drukknun.
Visismenn voru staddir i
sundlaugunum, þegar þetta
gerðist, klukkan að verða þrjú i
gærdag, og náðu þvi tali af
þessari amerisku konu, sem
kvaðst vera gift islenzkum
manni og búa hér i Reykjavik.
Drengurinn, sem bjargað var,
heitir Stefán Jensson og er 9 ára
gamall. Drengurinn var i
laugunum i fylgd með
Sundlaugaveröi og -gesti dreif
þegar aö, og lifgunartilraunir
voru hafnar strax.
s ■ *
x il
iPlllll
Nærstatt fólk var ekki Iengi aö átta sig en full ástæöa er til aö vara fólk viö aö missa sjónar á litlum börn-
um i lauginni.
Drengurinn, Stefán Jensson, er
9 ára og var I fylgd með
kunningja sinum og fööur hans.
kunningja sinum og föður hans.
Faðirinn kvaðst hafa verið að
skyggnast um eftir honum,
þegar hann sá amerisku konuna
koma með hann upp á bakkann.
Drengurinn var með sundkút,
en hann hafði losnað frá honum
og þvi farið svona illa.
Sundlaugaverði og gesti dreif
þegar að, og voru strax hafnar
lifgunartilraunir á drengnum.
Hann mun nú vera á batavegi,
að sögn lögreglunnar, en lik-
lega er full ástæða til að benda
þeim á, sem hafa börn með sér i
laugunum, að vera alltaf á
varðbergi, þvi alltaf geta slik
slys áttsér stað.
—EA
,MESTI HAMINGJUDAGUR
IW I i rn 1 II m * B ■ ■ # “ 72*a ara 9ama** maður bjargaði
ÞI mm I lÉ Ír sonarsyn' sínum 5 ára gömlum frá
drukknun á síðustu sekúndum á Húsavík
Föstudagur 15. febrúar 1974.
Ekki
fullljóst
hvers
vegna
Vestri
sökk
Ekkert ákveðið hefur komið
fram, sem gæti varpað ljósi á,
hvers vegna flutningaskipiö
Vestri sökk.
Flestir skipverjar hafa verið
yfirheyrðir fyrir sjórétti Borgar-
dóms Reykjavikur. Þó er enn
eftir að yfirheyra einn og einnig
leiðsögumanninn, sem var um
borð I skipinu.
Við yfirheyrslur hefur það helzt
verið talin skýring á óhappinu, að
farmur i lest hafi kastazt til.
Hverjar sem ástæðurnar voru,
hallaðist skipið mikið og flæddi
sjór inn I það, svo það sökk eftir
stuttan tima. Talsvert af
áburðarfarminum var á þilfari.
Leiðsögumaður skipsins hefur
látið hafa eftir sér i blaðaviðtali,
að farmur hafi kastazt til, þegar
skipið tók krappa beygju.
Enginn skipverja kannast við,
að skipið hafi rekizt á bryggjuna i
Gufunesi morguninn , sem lagt
var af stað i þessa seinustu ferð.
—ÓH
Skákstaðan
■ dag
Sem fyrr er það Smyslov, sem
rikir á toppnum i Reykjavikur-
mótinu. Eftir að biðskákir voru
tefldar i gær, er hann með 7 1/2
vinning.
Biðskákirnar, sem voru tefldar
I gær, fóru þannig, að tvær skák-
anna voru aldrei tefldar. Smyslov
og Velimirovic sömdu um jafn-
tefli, og Ögaard og Trinkov hófu
sina skák aldrei. Trinkov vann þá
skák, Forintos vann svo Ingvar,
en eftir 80 leikja maraþonskák
Jóns Kristinssonar við Trinkov,
sömdu þeir um jafntefli. Það var
um klukkan ellefu i gærkvöldi. Á
eftir fóru þeir svo i bió.
Röðin er þá þannig: l.Smyslov,
7 1/2 vinn. 2. Forintos 7 vinn. 3.
Friðrik, 6 vinn. 4. Bronstein, 5
vinn. 5. Guðm. Sig., 5 vinn. 6.
Velimirovic, 4 1/2 vinn. 7. Ciocal-
tea, 4 1/2 vinn. 8. Trinkov, 3 1/2
vinn. 9.-10. Magnús og ögaard, 3
vinn. hvor. 11. Freysteinn, 2 1/2
vinn. 12.-13. Ingvar og Kristján , 1
1/2 vinn hvor. 14. Jón Kristinss. 1
vinn 15. Július, 1/2 vinn.
— ÓH
„Mér er vist óhætt að
segja, að þetta sé minn
mesti hamingjudagur í
lifinu. Ég hef aldrei áður
orðið fyrir því að bjarga
mannslifi á siðustu
sekúndum", sagði Árni
Jónsson, 72 ára gamall
maður á Húsavík, sem
bjargaði 5 ára sonarsyni
sínum frá drukknun í
fyrradag.
Drengurinn, sem heitir Snorri
Sigurðsson, var að leik ásamt
fleiri börnum i garðinum fyrir
utan heimili sitt við Ásgarðsveg
16. Lóðin snýr út að Búðará, og er
girðing á milli lóðarinnar og ár-
innar. Miklirsnjóskaflar þöktu þó
girðinguna, enda hafði snjóað
mikið sem kunnugt er.
Snorri fór nokkuð framarlega á
snjóskaflinn og velti sér þar eins
og börnum er titt. En svo illa vildi
til, að snjóbreiða brotnaði.undan
honum, og hann féll i ána.
Afi hans, Arni Jónsson, ásamt
konu sinni og tengdadóttur, hafði
horft út um gluggann á börnin i
leik sinum, og sá þvi, þegar
drengurinn hvarf. „Það var engin
umhugsun til”, sagði Árni. „Ég
tók bara á rás og hljóp út. Svo vill \
til, að tvær dyr eru á húsinu,
aðaldyr og svo dyr, sem snúa út
að ánni. Ég var tiltölulega
nýbúinn að moka snjó frá
dyrunum, sem snúa út að ánni, og
komst þvi út um þær. Ef ég hefði
þurft að fara um aðaldyrnar,
hefði það liklega orðið of seint”.
Árni var á inniskóm en henti
þeim af sér og stökk siðan út i
ána. Hann sá ekki annað af
drengnum en i kollinn á húfu,
sem hann var með, en greip
þegar i hann. Engu mátti muna,
að drengurinn-væri ekki horfinn
undir snjóbreiðu, sem er við ána,
og þá hefði honum liklega ekki
verið bjargað.
Arni taldi, að það hafi bjargað
drengnum einnig; að mikið
snjókrap féll með honum og hélt
honum uppi nokkra stund. Arni og
drengurinn voru siðan fljótt
dregnir upp, og kvaðst hann vona,
að drengnum hefði ekki orðið
meint af, þó að hann væri með
hósta siðan.
—EA
Þar fór
annar far-
kostanna
Hún hafði gert það gott i
lofti, en I óveörinu sem gekk
yfir Þingeyri fyrr i vikunni,
eyðilagðist flugvélin gjörsam-
lega, þar sem hún stóð á
flugvellinum bundin við veg-
hefil.
Hér er um að ræða aðra
flugvél isfirzka flugfélagsins
Ernir, en myndin hér til hliðar
sýnir, hvernig sú ágæta vél
endaði sinn feril. Að sögn
annars eigandans, Harðar
Guðmundssonar flugmanns,
er vélin gjörónýt og er nú ekki
annað eftir en .að rifa hana
sundur, þar sem hún stendur á
flugvellinum á Þingeyri.
— ÞJM/Páll Pálsson