Vísir


Vísir - 17.05.1974, Qupperneq 10

Vísir - 17.05.1974, Qupperneq 10
„Ég mun flögra um I hringnum eins og fiðrildi og svo stinga George Foreman eins og býfluga — og Afrikumenn eru allir bræöur mfnir. Enginn á áhorfendapöllunum i Zaire mun halda meö Foremann — aliir hrópa Ali, AIi, Ali. Þeir munu ekki ieyfa Foreman aö komast upp meö „skitug brögö”. En ég mun dansa um hringinn — stööugt á hreyfingu — og þá er spurningin hve lengi Fore- man heldur þaö út — Foreman, þessi skftugi slagsmálamaður hvers högg- kraftur hefur mjög veriö ofmetinn, á cnga möguieika gegn mér”. George Formen, heimsmeistarinn i þungavigtinni, mætti ekki á blgða- mannafund, sem efnt var til i New York á miðvikudag vegna fyrir- hugaðar keppni hans við Muhammed Ali i Zaire i september i haust. En Múhammed Ali mætti á fundinn — og hann var þvi einn um að tala. Hinn 32ja ára fyrrverandi heimsmeistari hefur örlitið hægt á sér með árunum — en aðeins fyrir neðan höku. Hann lét móðan mása á blaða- mannafundinum — bjartsýnn, ákaf- ur, baráttuglaður — hinn gamli, góði skemmtilegi Cassius Clay — mesti snillingur, sem keppt hefur i þunga- vigt hnefaleikanna. Hreinn lista- maður á köflum i hinni eðlu list sjálfsvarnarinnar — en nægir það gegn rotaranum George Foreman? Sumir menn fá öll tækifæri, sögðu blaðamenn eftir fundinn skemmti- lega með Ali — öll tækifærin til að auglýsa sig. A fundinum var tilkynnt, að þeir Foreman og Ali muni keppa i Kinshasha (áður Leopoldville) i Zaire hinn 25. september og hefst keppni þeirra kl. 15.00 að staðartima. Timinn er ákveðinn vegna sjón- varpsstöðva viðs vegar um heim, sem munu greiða þrjátiu milljónir dollara fyrir réttinn til að sjónvarpa keppninni beint vitt og breitt um heim. Hvor keppandi fær fimm milljónir dollara i hlut — um 450 milljónir islenzkra króna— mesta upphæð, sem greidd hefur verið i sögu hnefaleikanna. Og það er aðeins tryggingin. A eins manns sýningu Muhammed Ali i New York á miðvikudaginn sagði hann meðal annars. — „Ég mun sigra og koma stundvisi á aftur i hnefaleikum” og kom þannig að þvi, að Formen mætti ekki á fundinn. Það stafaði af einhverjum mis- skilningi i sambandi við heims- meistarann, en rétt er að geta þess, aöalltvithanser i þungu höggunum. En gefum Ali orðið. „Foreman leikur katta- og músa- leik eins og litið barn i hnefaleika- hringnum. Hannkemstekki upp með það gegn mér. Högg Foremans gegn Frazier voru ólögleg — hann er skit- ur keppnismaður — hann sló Roman, þar sem hann var fallinn. Og i Caracas sló hann Norton, þar sem hann var fastur i köðlunum. Það verður enginn „skitur”! Zaire. Afrikumenn eru bræður mínir.” Eftirað hafa rætt um taktik Fore- mans sneri Ali sér að höggkrafti hans. Hann sagði háðslega. „Fore- man slær mjög fast. Hann slær svo fast, að hann varð að berja Frazier sex sinnum niður — Roman tvisvar og Norton þrisvar. Munið, að þegar maður sveiflar — pow — og.þá er náð i ilmsöltin” (Frazier og Norton stóðu á fótunum eftir leiki sina við Ali!!) Foreman „lemur” bara fast — en ég verð ekki eins og hinir. Ég kem ekki að honum til að láta hann „hitta mig — heldur dansa og hreyfi mig”. Þá tilkynnti Ali, að hann mundi sýna nýtt högg i Zaire, sem hann kallaði „Ghetto whopper” eitthvað, sem hann hefur lært af gömlum vini, Kid Gavilan, úr fátækra'hverfunum. „Klukkan þrjú streymdu fátæk- lingarnir af börunum”, sagði Ali ,,og þá fóru bræður að rifast um kvinnur sinar. Þá byrjuðu „ghetto-högg- in.” —hsim. Opnu golfmótin byrjuð Fyrsta opna golfkeppnin á árinu fór fram á Hvaleyrarvelli I Hafnar- firöi þánn 27. april s.l. Var það Uni- royal-keppnin, sem Golfkiúbburinn Keilir stóö aö í samvinnu viö isienzk- ameriska verzlunarfélagiö, en þaö hcfur umboö fyrir Uniroyal golfvör- ur hér á iandi. Leiknar voru 18 holur með og án forgjafar og voru keppendur um 60 talsins. Veður var vont til keppni þennan dag og árangurinn þvi ekki upp á marga fiska. Úrslit án forgjafar urðu þau, að Sigurður Thorarensen GK sigraði, lék á 78 höggum. 1 öðru sæti varð Július R. Júliusson GK á 79 höggum, þriðji varð Agúst Svavarsson hand- knattleiksmaðurinn góðkunni úr 1R, sem einnig lék á 79 höggum og fjórði varð Óskar Sæmundsson GR, sem var á sama höggafjölda. Þessir þrir urðu að leika bráða- bana um verðlaunin. Féllu þau i skaut Júliusar og Agústar. Með forgjöf sigraði Kristján Richter, sem var á 66 höggum nettó (88-22 = 66). Annar varð Agúst Svavarsson á 79-10 = 69 högg og þriðji Óskar Sæmundsson á 79-6 = 73. Um helgina fer fram Dunlop keppnin hjá Golfklúbbi Suðurnesja. Er það einnig opin keppni og verða þar leiknar 36 holur, 18 holur á dag. Buldi við brestur! Við mikin brest ruku þúsundir króna úr gjaldkerakassa frjáls- íþróttadeildar ÍR, þegar hvíta stöngin vestur-þýzka hrökk í tvennt eftir misheppnað stökk Elíasar Sveinssonar á æfingu í Auðkúlu 27. apríl siðastliðinn. Þetta kemur sér illa fyrir auman fjárhag deildarinnar — en var þó ekki alveg til einskis, þvi það flýtir fyrir, að nýjar stangir verði keyptar handa iþróttamönnum deildar- innar. A þvi var ekki vanþörf — stöngum hjá frjálsiþróttadeildinni hefur fækkað iskyggi- lega mikið siðastliðin tvö ár — eða úr tólf nið- ur I fjórar. Það er þvi greinilegt, að þar þarf aö bæta úr svo hægt sé að æfa stangarstökkið. En það hafa fleiri farið illa i sambandi við hinar dýru stangir. Stangarstökkvarar UBK misstu allar stangir sinar i eldi, 28. april, eða degi eftir að Elias braut IR-stöngina. Það er þvi almennur skortur istöngum.en kannski bætir Frjálsiþróttasamband Islands úr og kaupir stangir? -hsim. Ramsey til BBC! Sir Alf Ramsey, sem fékk spark sem lands- liðseinvaldur enskra i sfðasta mánuði, hefur verið ráðinn til brezkrar sjónvarpsstöðvar. Hann á að vera sérfræðingur stöðvarinnar I knattspyrnumálum og fer sem slikur til Vest- ur-Þýzkalands i næsta mánuöi. Þar mun hann segja álit sitt á leikjum i heims- meistarakeppninni. Roy McFarland, hinn sterki miövöröur Derby County og Englands, meiddist það illa i landsieiknum viö tra á miövikudag, aö taliö er, að hann verði frá knattspyrnu næstu sex mánuðina. Þetta er mikiö áfall fyrir Derby, sem varð i þriðja sæti i 1. deild i vor. Lands- liöseinvaldurinn enski, Joe Mercer, veröur að velja nýjan mann i landsliðshópinn fyrir landsleikinn viö Skota á morgun, þvi vara- maöur McFariand, Dave Watson, Sunder- land, getur ekki leikiö vegna blóöeitrunar. Lána Víkingum grasvöll sinn Þróttur hefur hiaupiö undir bagga meö Reykjavikurmeisturum Vikings í knatt- spyrnu og lánað þeim grasvöll sinn viö Sæviöarsund til æfinga fyrir keppnina i 1. deild i sumar. Vikingur hefur engan grasvöll til aö æfa á en haföi aöstööu á smá túnbietti i Laugar- dalnum, þegar liðiö lék i 1. deiid fyrir tveim árum. Þessi biettur er nú horfinn undir ann- an völl, sem veriö er aö byggja, og var þvi fokið I flest skjól fyrir Viking, þar tii aö Þróttur bauö þeim sinn völl nú fyrir nokkru. Veriö er aö koma þessum velli i stand og munu meistararnir fá hann til umráöa ein- hvern næstu daga. Þróttur getur ekki veitt leikmönnunum aögang aö búningsklefum og veröa þeir þvi aö skipta um föt i félagsheimili Vikings i Bústaðahverfi og aka siöan i bilum niður i Sæviðarsund en þangaö er um 10 min. akstur. —klp — ROT Foreman rotaöi Frazi- er á 5.35 min. i Kingston Jamaika 22. janúar 1973 og varö þá heimsmeistari i þungavigtinni. FH-ingurinn Ólafur Danivalsson skor- aði fyrsta markið FH og Breiðablik skiptu með sér stigun- um i fyrsta leiknum i 2. deild islandsmótsins i knattspyrnu, sem fram fór á velli FH i Kapla- krika I gærkveldi. Mikið rok var i krikanum þeg- ar leikurinn hófst. Var rétt á mörkunum að stætt væri á vell- inum og var þvi knattspyrnan, sem þessi annars ágætu lið reyndu að sýna, nokkuð langt frá að geta kallazt þvi nafni. Fyrsta mark leiksins — og þar með fyrsta mark Islandsmóts- ins i ár — skoraði FH-ingurinn Ólafur Danivalsson þegar nokk- uð var liðið á fyrri hálfleik, en þá lék FH undan vindi. Guðmundur Þórðarson jafn- aði fyrir Breiðablik i upphafi Stðari hálfleiks er hann fylgdi vel á eftir upp að marki FH. Þetta voru einu mörkin sem skoruð voru i leiknum, sem var veðurs vegna hvorki til ánægju fyrir leikmenn né áhorfendur. ROT Joe Roman fékk slæma útreið I Tokíó 1. septem- ber 1971. Eftir tvær minútur var öllu lokið — Roman lá rotaöur. ROT Ken Norton fékk sömu útreið i Caracas i Vene- súela 26. marz 1974. Eftir 5 min. stöövaöi dómarinn ieikinn. Tugþrautarmennirnir kunnu, Stefán Hall- grimsson, KR, og Elias Sveinsson, ÍR, bættu sinn bezta árangur i kúluvarpi á innanfélags- móti, sem Ármann gekkst fyrir á Mela- vellinum i gærkvöldi. Þetta lofar góðu hjá þeim i tugþrautinni i sumar, þvi erfitt var að keppa i gær — hávaða- rok og heldur kalt á Melavellinum. Stefán varpaði kúlunni 13.89 metra og Elias var skammt á eftir með 13.56 metra. Við betri aðstæður er líklegt, að þeir varpi kúlunni vel yfir fjórtán metra strikið i sumar — og það telur vel I tugþrautinni. Ef vel tekst til hjá Stefáni ætti hann að geta bætt Islandsmet Valbjarnar Þorlákssonar, Ármanni, i sumar — Stefán er i stöðugri og mikilli framför i mörgum greinum. Stefán sigraði i kúluvarpinu i gær i fjarveru Hreins Halldórs- sonar, sem gat ekki keppt á mót- inu vegna vinnu sinnar. A mótinu bætti Asgeir Þór Eiriksson, ÍR, árangur sinn með sveinakúlu. Hann varpaði 16.25 metra — en bezti árangur i þeim flokki hér á Erlendur Valdimars- son, 1R, sem varpaði sveinakúlu 17.79 metra. Þá kepptu konur einnig i kúlu- varpi á innanfélagsmótinu i gær- kvöldi. Asa Halldórsdóttir, Ar- manni, sigraði með 8.53 metrum. Ingunn Einarsdóttir, ÍR, varð i öðru sæti með 8.40 metra og Lára Sveinsdóttir, Armanni, þriðja með 8.38 metra. Allar eru þessar iþróttakonur kunnar fyrir afrek i öðrum greinum en kúluvarpi. Litið var hægt að eiga við aðrar greinar á mótinu vegna veðurs. Þó voru hlaupnir 100 metrar und- an vindinum og þar sigraði Ar- menningurinn ungi og efnilegi — Sigurður Sigurðsson, hljóp á 11.4 sekúndum. — hsim. Reykjavíkurliðin í 2 deiíd á heimavöllum! ASTFANGINN —Já, vissulega eftir svipnum aö dæma, en Emlyn Hughes, fyrirliði Liverpool, er ekki ástfanginn af Önnu Bretaprinsessu heldur bikarnum, sem hún heidur i. Og Anna og Mark, eiginmaður hennar, brosa breitt aö gleöi Hughes. Myndin var tekin rétt áöur en Hughes tók viö bikarnum mikla eftir aö lið hans haföi sigraö Newcastle 3-0 i úrsiitaleik ensku bikarkeppninnar á Wembley-leikvanginum i Lundúnum 4. mai. Tugþrautarmenmmir bcettu sig í kúlunni „Viö fórum fram á aö fá að hafa okkar heimaleiki í 2. deild islandsmótsins í knattspyrnu á okkar eigin velli við Sæviðarsund, og fengum það mótþróa- laust" sagði Helgi Þor- valdsson, formaður Knatt- spyrnudeildar Þróttar, er við spurðum hann um ástæðuna fyrir því að leik- ur Þróttar og Hauka i 2. deild sem fram fer í kvöld, er auglýstur á Þróttarvelli. Þetta er i fyrsta sinn, sem leik- ur i 2. deild fer fram á þessum velli, en undanfarin ár hafa margir leikir i yngri flokkunum farið þar fram. „Okkur þótti litið koma inn á Melavellinum — kostnaðurinn mikill og áhorfendur i flestum til- fellum fáir. Þvi ákváðum við að gera tilraun með að flytja leikina yfir á okkar eigin völl og þar með um leið inn i okkar eigið hverfi. Við búumst við að fólk úr ná- grenninu komi frekar til að horfa á okkur leika hér en á Melavellin- um, sérstaklega þeir yngri, sem þá þurfa ekki eins langt að sækja. Fylkir i Arbæjarhverfi lék á sinum heimavelli i 3. deildinni i fyrra, og kom það mjög vel út hjá þeim. Armann mun einnig bætast i hóp þeirra Reykjavikurfélaga, sem leika á heimavelli sinum i sumar, en þeir hafa ágætan völl við Miðtún”. Fróðlegt verður að fylgjast með útkomunni hjá þessum tveim félögum, sem leika á sinum sann- kölluðu heimavöllum i 2. deild i sumar. Hver veit nema að með þessu takist þelm að brjóta ísinn fyrir hin félögin, sem þá muni taka upp sama hátt. Margir hafa haldið þvi fram, að Reykjavikurfélögin hafi á seinni árum aldrei átt neinn heimavöll i likingu við önnur félög. Þau æfi á sinum eigin völlum en keppi á Mela- og Laugardalsvellinum, þar sem þau fá ekklað æfa nema einstaka sinnum, og þá eingöngu á Melavellinum. Aftur á móti æfi og keppi leikmenn annarra félaga á einum og sama vellinum og standi þeir þvi að öllu leyti betur að vigi, þegar þau keppa þar við aðkomulið. —klp— Alltaf sama sagan! Gömiu vandræöin i sambandi viö dómaramáiin I knattspyrnu skutu upp koliinum I fyrsta leik íslandsmótsins á milli FH og Breiöabiiks i gærkveldi. Annar iinuvöröurinn mætti ekki og taföist þvi leikurinn á meöan leitaö var aö manni meöal áhorf- enda tii aö taka aö sér flaggiö. Mönnum þótti þetta slæm byrj- un hjá dómurunum, og vona aö ekki veröi meira um þetta i sum- ar frá þeirra hálfu... en viö þvi er varia aö búast þvi leikirnir, sem þeir þurfa aö sjá um eru yfir 700 talsins og dómararnir fáir. — Klp. Miklatúns- hlaup Ármanns Miklatúnshlaup Armanns verð- ur háð á laugardag og hefst kl. tvö. öllum er heimil þátttaka — einnig fólki utan Ármanns. Þetta verður sjöunda hlaupið á árinu og ef til vill verður eitt háð til viðbót- Formaður FIFA, Staniey Rous, viröir fyrir sér verðlaunagripinn, sem keppt verður um á HM I knattspyrnunni I sumar. Hann hefur aö undan- förnu veriö til sýnis á Bretlandi — úr 18 karata gulii og metinn á 44 þús- und dollara. Þing FIFA verður haldiö I sambandi viö HM og hefst 7. júni. Sir Stanley er engan veginn öruggur um endurkjör — aöaiiega vegna deilu þeirrar, sem kom upp I sambandi viö HM-Ieiki Chile og Sovétrikjanna. Hlutu silfur- merki GSÍ í tilefni af fimmtu F.i-golf- ferö islenzkra kylfinga til Skotlands i byrjun þessa mánaöar, þar sem þátttak- endur voru um 140 taisins, voru tveir menn, sem i öll skiptin hafa séö um undir- búning og skipulag ferðanna, sæmdir silfurmerki Golf- sambands islands. Þaö voru þeir Siguröur Matthiasson og Birgir Þor- gilsson, fulltrúar hjá Flug- félagi islands, sem um ára- raðirhafa stutt dyggilega viö bakiö á isienzkum kyifingum og golfklúbbum viðsvegar um land. Páll Asgeir Tryggvason forseti Golfsambands is- lands sæmdi þá silfurmerk- inu siöasta kvöldið sem hópurinn dvaldist i Skotiandi og þakkaði þeim þeirra mikla framlag tii iþróttar- innar meö nokkrum oröum. Nánar verður sagt frá þessari ferö, sem er trúlega ein fjölmennasta utanlands- ferð, sem islenzkur Iþrótta- hópur hefur farið, I blaöinu á morgun, og birtar svip- myndir úr henni. Volvo læsingar Ytri og innri handföng eru felld inn í hurðirnar til öryggis fyrir farþega. Læsingin gefur ekki eftir við árekstur. Afturhurðir eru búnar sérstökum öryggis- læsingum vegna farþeganna. Volvo öryggi. 1130 til bngði Kosturinn vió Sadolin máln- ingu er m. a. hin nákvæma litablöndun, sem þéreigiö völ á aö fá í 1130 litbrigöum. Sadolin er einasta máln- ingin, sem býöur yöur þessa þjónustu i oliulakki og vatnsmálningu. Komiö meö litaprufu og látið okkur blanda fyrir yöur Sadolin liti eftir yöar eigin óskum. Málningarverzlun Péturs Hjalte- sted, Suðurlandsbraut 12, Reykjavik. Verzlunin Málmur, Strandgata Strandgata 11, Hafnarfjörður. Dropinn, Hafnargata 80, Keflavik. Neshúsgögn, Borgarnesi. Hafliði Jónsson, hf., Húsavik. Visir. Föstudagur 17. mai 1974 Visir. Föstudagur 17. mai 1974. •• . ;; v. ■ MUNU HROPA ALI, ALI, ALI

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.