Vísir - 31.05.1974, Blaðsíða 1
64. árg. —Föstudagur 31. mai 1974. — 88. tbl.
KÓLUMBUS Á ÍSLANDI 1477?
— Norðmaður segist geta sannað það og að Columbus hafi vitað
um Vinlandsferðir Leifs Eiríkssonar
Leifur Eiriksson iandnáms-
maöur er alltaf öðru hverju i
fréttunum, þar eð hann var
fyrstur til að finna Ameriku. 1
vikunni kom norskur maður
fram með þá kenningu, sem að
visu ekki er alveg ný, aö Kristó-
fer Coiumbus hafi vitað um
ferðir Leifs og þess vegna farið
að leita að Ameriku. Segir rit-
höfundurinn, Káre Prytz, að
Columbus hafi komið hingað til
islands 1477 og aflaö sér
nákvæmrar vitneskju um
vikingaferðirnar. Hann hafi
byggt á henni, þegar hann hélt
af stað til Ameriku 1492.
A bls. 6 er birt viðtal Sverre V.
Björnholt við Káre Prytz. en
það birtist i Verdens Gang.
Vildi
ekki
undirrita
fyrst
- en..........
Með mikiili viðhöfn hittust
erkifjendurnir, Sýrlendingar
og ísraelsmenn, i Þjóðahöll-
inni i Genf í morgun til að
undirrita friðarsamningana
og binda enda á 26 ára fjand-
skap, sem leitt hafði til fjög-
urra styrjalda og haturs þjóð-
anna i milli.
En þegar Israelsmenn höfðu
undirritað fyrir sina hönd,
sátu sýrlenzku fulltrúarnir
sem fastast og hreyfðu sig
ekki til að skrifa undir. Varð
að aflýsa þessari virðulegu at-
höfn, og blaðamennirnir voru
beðnir um að yfirgefa
marmarasalinn, þar sem
seremónian fór fram.
Brá mönnum mjög við þetta
skyndilega hughvarf Sýr-
lendinga, sem olli miklum
vonbrigðum. Eftir yfirlýsingu
Nixons núna fyrr i vikunni um,
að samkomulag hefði tekizt,
hafa flestar þjóðir heims látið
i ljós fögnuð sinn með, að loks
væri endi bundinn á ófrið land-
anna fyrir botni Miðjarðar-
hafsins.
Þvi létti mönnum óumræði-
lega aftur, þegar i ljós kom
svo núna rétt um þær mundir,
sem Visir fór i prentun i há-
deginu, að Sýrlendingar höfðu
einfaldlega dregið við sig að
undirskrifa friðarsamninginn,
meðan blaðamennirnir voru
inni i salnum. Vildu þeir
einungis, að blaðamennirnir
færu fram fyrir fyrst, áður en
þeir tóku upp sjálfblekungana.
•
Engar
stórmyndir
í blaðinu i dag er að finna
umsagnir um þrjár kvik-
myndir, sem verið er að sýna
þessa dagana. Eru það
myndirnar: „Fram i rauðan
dauðann”, „Morðin i likhús-
götu” og „ótti um nótt”.
Hljóta þær misjafna dóma,
en engin þeirra er samt talin
til stórverka. — Sjá bls. 4.
Okkar fé bjargaði 93
þúsundum frú dauða
HLÝINDI OG SKÚRAVEÐUR UM HELGINA
— segir hiólparstofnumn
A góðviðrisdögum undanfariö hafa Reykvikingar óspart notaö
öll tiltæk útivistarsvæði i bæjarlandinu.
Það þarf ekki alltaf að leita iangt til að komast i failegt um-
hverfi og kyrrö ef vel er að gáð. Stúlkan á myndinni hefur lært aö
notfæra sér einn þessara ágætu staða. Myndin er tekin i suður-
hliö öskjuhliðarinnar, þar sem mikið hefur verið gert á undan-
förnum árum til að fegra umhverfiö. En færri en skyldi viröast
hafa veitt þessum stað athygli. Væri ekki tilvaliö næst þegar létt-
ir til að bregða sér dagstund í öskuhliöina. Ljósm. Visis Bragi.
m
íslendingar björguðu
93 þúsund Konsóbúum
frá dauða með þeim
peningum, sem þeir
gáfu til Æskulýðs- og
fórnarviku kirkjunnar,
sem haldin var 3.-10.
marz s.l.
Hjálparstarfið er nú i fulium
gangi og fólkið verður að fá mat
að minnsta kosti i 2 mánuði enn.
93 þúsund manns þurfa á hjálp að
halda að minnsta kosti. 1 Konsó
hefur nú verið úthlutað á milli 16
og 17 hundruð lestum af mat.
Mjög fáir hafa látizt úr hungri
fram að þessu, og er fólk i Konsó
mjög þakklátt fyrir alla þá hjálp,
sem það hefur fengið. Það segir
sjálft, að ef þessi hjálp heföi ekki
borizt þeim, heföi mestur hluti
Konsóbúa dáið úr hungri.
Segja má, að á sömu stundu og
fólk hér á tslandi var að gefa til
söfnunarinnar, þá var verið að
kaupa matföng fyrir sömu pen-
inga, dreifa þeim og jafnvel verið
að snæða andvirði þeirra. Regnið
brást ekki vonum manna á þessu
svæði i ár, kom um 20. marz. All-
ar likur benda til að uppskera
verði góð i sumar, eftir þann tima
verða Konsómenn sjálfbjarga á
ný-
Söfnunarfé nemur nú kr.
10.434.695,50. Til Konsó hafa verið
sendar kr. 10.354.487,00. Beinn
kostnaður við söfnunina, prentun,
auglýsingar, o.fl. var kr.
257,682,00. Hjálparstofnun kirkj-
unnar vill senda íslendingum
beztu þakkir fyrir skjót og
drengileg viðbrögð.
— EA
Vísir
óskar
lesendum
ánœgjulegrar
hátíðar
— nœsta blað
kemur út
þriðjudaginn 4. júni
Þó er dágott fyrir norðan
Þvi miður er ekki hægt að
segja, að veðurguðirnir ætli að
sýna okkur nein sérstök gæði yf-
ir hvitasunnuhelgina.
Þegar við ræddum við
Borgþór H. Jónsson. veðurfræð-
ing á Keflavikurflugvelli, i
morgun, sagðist hann raunar
ekki alveg treysta tölvunni
sinni, cn hún reyndist nú samt
yfirleitt sæmilega sannspá.
Veðurútlitið er þá þannig.
Austan og norðaustanátt um
landið, nema á Suðausturlandi
veröur suðaustan átt,- Veðrið
ætti að verða dágott fyrir norð-
an, en hætt við skúrum eða rign-
ingu öðru hverju á Vesturlandi.
Þó litur út fyrir batnandi veður
eftir þvi sem liður á hvitasunn-
una. Sunnanlands og á Suð-
austurlandi er spáö skúraveðri.
Það er þó bót i máli, að tölvan
lofar okkur hlýindum um allt
land. Sennilega verður bezt fyr-
ir þá, sem leggja land undir fót
yfir helgina að aka i norðurátt,
ef þeir ætla að fá gott veður.
— EVI —