Vísir - 31.05.1974, Blaðsíða 11
Vísir. Föstudagur 31. mai 1974.
11
Fram gerði lengi vel
allt nema skora mörk!
— Jafntefli varð í leik Vals og Fram í 1. deildinni í gœrkvöldi 2:2
á Laugardalsvellinu. Fyrstu mörk Vals og fyrsta stig Fram í keppninni.
Mikil hætta var oft við
Valsmarkið i fyrri hálfleiknum á
Laugardalsvelli í gærkvöldi.
Fram fékk fjölmörg góð tækifæri
til að skora, en tókst ekki. Hins
vegar áttu Valsmenn tvö tækifæri
og skoruðu úr báðum. Munur var
þvi mikill á nýtingu, en i siðari
háifleiknum tókst Fram að jafna.
Bæði mörkin voru með nokkrum
heppnisstimpli —beztu tækifærin
ekki nýtt fremur en áður.
Það var heldur slappur fótbolti,
sem þessi 1. deildarlið sýndu á
erfiðum Laugardalsvellinum og
ekki bætti úr skák að veður var
slæmt, rok og rigning. Fram var
skárra liðið, en hvort liðið verð-
skuldaði bæði stigin er önnur
saga.
Vissulega fékk Fram tækifæri
til þess, einkum i fyrri hálfleikn-
um, það merkil. var, að beztu
tækifæri sin fékk Fram eftir mis-
tök Jóhannesar Eðvaldssonar.
Það var hreint furðulegt hvað
þessum sterka leikmanni voru þá
mislagðir fætur og hann skapaði
oft mikla hættu við eigið mark.
Slapp hins vegar með skrekkinn
— og i siðari hálfleiknum þekkti
maður Jóhannes á ný sem bezta
mann Valsliðsins.
Strax i byrjun rann knötturinn
eftir marklinu Vals — Jóhannes
ætlaði að gefa á Sigurð, en tókst
ekki betur, og enn „heppnari”
var Jóhannes siðar, þegar hann
sparkaði knettinum úr höndum
Sigurðar Dagssonar, markvarð-
ar, beint til mótherja, en varð svo
sjálfur fyrir skoti Framarans á
marklinu! Þá björguðu Valsmenn
á marklinuoftar — og eittsinn tók
Rúnar Gislason af þeim ómakið.
Varð fyrir skoti félaga sins
Snorra Haukssonar i opið mark-
ið.
Já, Valsmarkið slapp oft —
Valsmenn skoruðu svo úr sinu
fyrsta færi. Aukaspyrna
Jóhannesar frá miðju sigldi
yfir Framvörnina til Birgis
Einarssonar, sem óvaldaður inn á
markteig skallaði laglega i
mótstætt horn. Það var á 32. min.
og minútu fyrir hlé skoraði Valur
aftur. Alexander tók aukaspyrnu
úti á kanti. Gaf inn i markteiginn.
Enginn Framari hreyfði sig og
Jóhannes skallaði i mark. Ljót
varnarmistök. 2-0 i hálfleik.
Strax i byrjun s.h. lagaði Fram
stöðuna i 2-1 og ljótt var markið
fyrir Sigurð Dagsson, markvörð.
Kristinn Jörundsson átti I höggi
við Valsmenn i vitateigshorninu
— tókst að pota i boltann, sem
skoppaði i átt að marki og inn, því
Sigurður hafði hlaupið út rang-
lega. Fram sótti mjög eftir mark-
ið, en nýting var slæm m.a. missti
Marteinn Geirsson af öllum
mönnum frá sér knöttinn i opnu
færi — og Ásgeir Elíasson átti
skot i hliðarnet kominn inn i
markteig. Þó Valur ætti ekki mik-
ið i leiknum fékk liðið tvö opin
færi. Alexander skaut framhjá og
átti markmanninn Árna Stefáns-
son einan eftir — sennilega rang-
stæður, þegar hann fékk knöttinn
— og Kristinn Björnsson, bezti
framherji Vals, spyrnti framhjá i
opnu færi.
Fjórum min.fyrir leikslok tókst
svo Fram að jafna. Eftir „þunga”
sókn átti Guðgeir Leifsson skot af
20 metra færi — boltinn small i
völlinn og breytti stefnu örlitið,
en nóg til þess, að Sigurður rann
til, þegar hann ætlaði að verja og
missti knöttinn yfir sig. 2-2. Þá
má geta þess, að Framarar vildu
fá viti, þegar svo virtist sem Jó-
hannes setti fótinn fyrir Kristin
innan vitateigs. Magnús dómari
Pétursson var á annarri skoðun —
og Framarar voru ekki beint
ánægðir með dómgæzlu hans.
Tvivegis sýndi hann þeim gulu
spjöldin — áminning — vegna
mótmæla.
Skotar fagna marki gegn Englandi — og skozku leikmennirnir þrlr á
myndinni eru allir úr Leeds. Billy Bremner, fyrirliöi Skotlands og
Leeds, lengst til vinstri hleypur til félaga sfns Peter Lorimer, Leeds,
nr. 17, eftir að knötturinn hafði farið af Todd, Derby, I enska markið
eftir skot Lorimer. Nr. niu er Joe Jordon, hinn 21 árs miðherji Skot-
lands og Leeds. Skotar unnu Englendinga 2-0 I leiknum á Hampden 18.
mai — og horfa miklu bjartari augum á HM i næsta mánuði eftir þann
sigur.
Það vakti nokkra athygli, að
Ingi Björn Albertsson og Þórir
Jónsson léku ekki með Val að
þessu sinni — voru ekki einu sinni
varamenn vegna áreksturs við
þjálfarann. Litið er hægt að hæla
leikmönnum liðanna fyrir leikinn,
en hjá Val vakti Grimur Sæmund-
sen mikla athygli i vörninni.
Beinlinis „stakk” Rúnari Gisla-
syni i vasann — þá stendur
Sigurður Jónsson alltaf fyrir sinu.
En Valsliðið á langt i land með að
ná getu sinni frá i fyrra. Sama er
aö segja um Fram og furðulegt,
að jafnir sterkir leikmenn og
Asgeir og Guðgeír skuli vera látn-
ir „dútla” á köntunum. — hsim.
Alexander kominn frir að marki — en spyrnti framhjá. Ljósmynd
Bjarnleifur.
Þrír deildar-
leikir í kvöld
Þrir mikilvægir deiidar-
leikir, einn i 1. deild og tveir I
2. deild, verða leiknir i kvöld.
Leikurinn i 1. deild er á
milli KR og Vikings, liðanna,
sem uröu i efsta sæti i
Reykjavikurmótinu á dögun-
um. Hann fer fram á
Laugardalsveliinum og hefst
kl. 20,00.
t 2. deild verða leiknir
tveir leikir. Á Þróttarvelli
leika Þróttur og Breiðablik
kl. 19,00. Þessi tvö lið, ásamt
FH, eru talin sigurstrang-
legust i deildinni i ár, og má
þvi búast við hörðum átökum
á Þróttarvellinum i kvöld.
Á Selfossi leika heima-
menn við Armann kl. 20,00.
Armenningar hafa ekkert
stig hlotið í mótinu til þessa,
en Selfoss er með tvö stig —
eftir sigur gegn ÍBÍ.
Á morgun — laugardag —
verða leiknir átta deildar-
leikir. t 1. deild leika i Vest-
mannaeyjum ÍBV og Akra-
nes og i Keflavik mæta Kefl-
vikingar Akureyringum.
t 2. deild verða tveir ieikir.
t Hafnarfirði leika FH og
Völsungar og á tsafirði leik-
ur ÍBÍ við Hauka. Þá fara
fram fjórir leikir i 3. deild. A
Háskólavelli ieikur Hrönn
við Reyni, I Garðinum leika
Víðir og Þór, I Árbænum
leikur Fylkir-við Stjörnuna
— en það er mjög mikilvæg-
ur leikur I riðlinum — og á
Háskólavelli leikur tR við
Leikni úr Breiðholtshverf-
inu. —klp
Komdu
ogkysstu
mi9
Nú er yöur óhætt. Þér getiö komiö meö hvers-
kyns litaprufur til þeirra málningarsala, sem verzla
meö Sadolin.
Sadolin, heimsþekkt málning fyrir gæöi og end-
ingu, blandar 1130 litbrigöi eftir yöar eigin óskum.
Sadolin er einasta málningin, sem býöur yöur
þessa þjónustu í lakkmálningu, olíumálningu og
vatnsmálningu.
Reyniö Sadolin og sannfærizt, - kossinn má bíöa
þangaö til þér eruö búnar aö sjá árangurinn.
Sadolin