Vísir - 31.05.1974, Síða 7
Visir. Föstudagur 31. mai 1974.
7
Þannig
eru bað-
fötin í ár
Umsjón
Erna V.
Ingólfsdóttir
Það er ekki aðeins i út-
landinu, sem kvenþjóðin er
farin að skarta i bikini. Við
hérna uppi á Fróni
fylgjumst dyggilega með
tizkunni, hvort sem það nú
felst i þvi að vera dúðaður
eða i sem allra minnstu.
Að visu er veðrið hérna
hjá okkur ekki endilega til
að vera i bikini, en senni-
lega slá fáar þjóðir okkur út
i þvi meti, hversu fljót við
erum að fækka við okkur
fötum, þegar tækifæri gefst
til að næla sér i smá sól-
brúnku.
r
Báðar vinna stúlkurnar hjá Karon-
sýningarsamtökunum. Ekki er samt
það mikið að gera hér á Islandi, að
stúlkur geti haft fulla vinnu bara við
að sýna tizkufatnað, svo að vaninn er,
að stúlkurnar hafa þetta sem igripa-
vinnu.
Anna Björnsdóttir, sú á svörtu
bikinifötunum, er nýútskrifuð stúdent
úr MR og vinnur i sumar sem hlað-
freyja. En hin, Bryndis Valbjörns-
dóttir, er nýútskrifaður gagn-
fræðingur og ætlar sennilegast til
Vestmannaeyja i sumar og mun vinna
þar i búð.
Báðar ætla þær i framhaldsnám, en
eru óráðnar, hvað þær ætla að læra.
Svo að við lýsum frekar þvi, sem
þær eru I, þá er svarta bikinið frá
tizkuverzluninni Fanný. Það er úr
bómullarefni og fóðrað með hvitu.
Kostar kr. 1990.00. Hitt bikinið er frá
tizkuverzluninni Bazar. Það er lika
bómullarefni I þvi, hvitt i grunninn
með svörtum og dökkrauðum röndum.
Kostar kr. 975.00.
Sumarið hefur varla i manna
minnum verið jafnsnemma á ferð og
nú. Vonandi er, að veðurguðirnir haldi
nú áfram að leggja blessun sina yfir
okkur hérna á norðurslóðum.
1 þessu tilefni fannst okkur hérna á
innsiðunni, að gaman væri að sýna
ykkur tvær blómarósir I baðfötum
Slopparnir eru hvitir úr frottéefni.
Annar með gulri bryddingu og gulu
belti, hinn með blárri bryddingu og
bláu belti. Þeir kosta kr. 3600.00.Strá-
hattarnir skýra sig sjálfir, en þeir
kosta kr. 795.00 Slopparnir og hatt-
arnir fást I Bazar.
Frotté-baðslopparnir kosta 3600.00 kr, en hattarnir 795.00.
Svarta bikinið kostar 1990.00 kr, en það röndótta 975.00
CROWN-bílaviðtœkin
eru langdrœg og örugg
Verð er sem hér segir:
Car-100 kr. 4.980.00
Car-200 kr. 5.700.00
Car-300 kr. 7.350.00
Skipholti 19. Sími 23800
Klapparstíg 26. Sími 19800
Sólheimum 35. Sími 21999
Akureyri. Sími 21630