Vísir - 25.07.1974, Síða 1
vism
64. árg. — Fimmtudagur 25. júll 1974. — 132. tbl.
SÉNEVER í LAXFOSSI
960 flöskur af sjenever fundust I
sérsmiðuðu hólfi I vatnstanki i
lest m.s. Laxfoss I Straums-
vfkurhöfn í gærkvöldi. Skipið
var að koma frá Rotterdam i
Hollandi, og var Straumsvikur-
höfn fyrsta höfn þess. í hólfinu
fannst einnig sjónvarpstæki.
Það voru tollverðir sem fundu
smyglið. Eigendur þess eru þrir
stýrimenn skipsins, vélstjóri,
matsveinn, rafvirki, bátsmaður
og tveir hásetar. _________ óh.
Stóran sendiferðabil þurfti til að
flytja áfengið frá Laxfossi i gær.
A myndinni má sjá tollverði
setja áfengið upp I bilinn.
„Þetta var
Ijóta kjafts-
höggið, lokað
fram yfir
helgi"
— baksíða
■
Sumarglens:
Hvað fœrðu í
miskabœtur?
— bls.12
Erum við illa
synd?
Nóðum hvergi framar
en í 6. sœti —
f
Iþróttaopna
Skildu bílinn
eftir heima,
— lóttu annan
um aksturinn
- bls. 8-9
Haag-dómstóllinn:
Einhliða takmörkun á
veiðum Breta óheimil
ekki sagt, að útfœrslan sé
við alþjóðalög
Alþjóðadómstóllinn í
Haag úrskurðaði i morgun,
að islendingar gætu ekki
með einhliða ákvörðun úti-
lokað brezka togara frá
veiðum á svæðinu frá 12
milum í 50 mílur. Atkvæði
féllu þannig, að 10 dómar-
ar studdu þessa niðurstöðu
og 4 voru henni andvigir,
að þvi er segir i skeyti frá
AP-f réttastof unni, sem
barst um 11.20 í morgun.
Dómstóllinn sagði, að is-
lendingar gætu ekki ein-
hliða takmarkað veiðar
Breta. islendingar og Bret-
ar væru undir þeirri gagn-
kvæmu skyldu að semja
um jaf nræðislega niður-
stöðu á deilum sínum.
Dómstóllinn gefur til
kynna i úrskurði sínum, að
taka verði tillit til for-
gangsréttar íslendinga,
hefðbundinna fiskveiði-
réttinda Breta og nauðsyn
þess að vernda fiskstofn-
ana.
i úrskurði sinum segir dóm-
stóllinn, að ákvörðun islendinga
um útfærslu fiskveiðilögsögu
sinnar i 50 sjómilur sé ekki gild
gagnvart Bretum. AP-fréttastof-
an bendir á, að bein tilvisun til
Breta i dómsorðinu sé mikilvæg
miðað við það, að siðar i dag
kveður dómstóllinn upp úrskurð i
máli Vestur-Þjóðverja út af út-
færslunni.
í málshöfðun sinni höfðu Bretar
farið þess á leit við dóminn, að
hann lýsti þvi yfir, að útfærsla is-
lenzku fiskveiðilögsögunnar væri
brot á alþjóðalögum. Dómurinn
svarar ekki þeirri kröfu i úrskurði
sinum, heldur segir þar aðeins, að
ákvörðun tslendinga sé ekki gild
gagnvart Bretum.
Visi tókst ekki i morgun að ná
tali af utanrikisráðherra eða öðr-
um ráðherrum til að fá álit á úr-
skuröinum. Allir isl. stjórnmála
flokkarnir lýstu þvi yfir fyrir
kosningar, að þeir mundu hafa ó-
hagstæðan úrskurð að engu. Mál-
ið var rekið fyrir alþjóðadóm-
stólnum án þess að Islendingar
hefðu þar málsvara. Enginn opin-
ber fulltrúi Isiands var i dómsaln-
um, þégar dómurinn var kveðinn
upp.
— BB
UNDIR HRINGVEGI
Þessi skemmtilega mynd var tekin á Skeiðarársandi, þar sem
nýi og glæsilegi hringvegurinn er með þeim miklu mannvirkj-
um. Krakkarnir eiga auðvelt með aö hlaupa undir vegginn eftir
jarðgöngum, sem þarna eru til að taka á móti árflaumnum, þeg-
ar hann verður mestur. (Ljósm.: BG.)
GENGISFELLING - EN HVERSU
STÓR ÞARF HÚN AÐ VERA?
— skýrsla hagrannsóknadeildar birtir uggvœnlegar tölur um þjóðarbúskapinn
Nýrrar rikisstjórnar
virðist biða það verk-
efni að lækka gengi is-
lenzku krónunnar. ,,Á
þessu stigi er ekki hægt
að segja nákvæmlega
til um, hve mikil lækk-
un gengisins þurfi að
vera til þess að endar
nái saman", segir i
skýrslu hagrannsókna-
deildar, en Visir tókst i
gær að fá að skoða það
merka plagg, en þar
má lesa hvernig islenzk
efnahagsmál standa i
raun og veru.
Þar kemur m.a. i ljós, að ef
niðurgreiðslur á landbúnaðar-
afuröum sem verið hafa siðustu
vikurnar, verða felldar niður,
mun visitalan hækka um 28.8%
og launapokinn þyngjast, en
vöruverð hækka að sama skapi.
Verðbólguhjólið mun þvi byrja
að snúast af sama æðishraða og
fyrr. Er þó ekki gert ráð fyrir
gengislækkuninni i tölunni
28.8%
Þjóðartekjur á mann munu
minnka I raunverulegu verð-
gildi. Aukning framleiðslunnar
okkar er talin geta orðið 4% — ef
ekki kemur til truflunar á at-
vinnurekstri næstu mánuðina.
Versnandi viðskiptakjör okkar
við aðrar þjóðir gera það að
verkum, að i raun verða tekjur
okkar lakari en fyrr.
Þá segir i skýrslunni að við-
skiptahallinn geti orðið um 8200
milljónir samanborið við 2615
millj. 1973. Gjaldeyriseign okk-
ar hefur stórum minnkað og er
nú sem svarar innflutningi eins
mánaðar.
Athyglisverðar staðreyndir
koma fram i skýrslunni varð-
andi skuld Seðiabanka Islands
gagnvart Rússum.l árslok 1972
nam skuld við þá 40 milljónum,
— nú er hún orðin 1850 milljónir.
— JBP —
Við flettum i gegnum skýrslu
hagrannsóknadeildar og birtum
ýmsa athyglisverða kafla i
blaðinu i dag. —SJA BLS. 3