Vísir - 25.07.1974, Qupperneq 4
Vlsir. Fimmtudagur 25. júli 1974.
4
AP/NTB í MORGUN ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND í MORGUN
Gríska stjórnin
starfar frjáls
Konstantin Karamanlis, for-
sætisráöherra Grikklands, birtir i
dag stefnu stjórnar sinnar. Hann
mun ávarpa þjóð sina, þegar
hann hefur endanlega lokið við
stjórnarmyndun.
Strax á fyrsta degi náðaði nýja
borgaralega stjórnin i Grikklandi
alla pólitiska fanga og ákvað
samtimis að leggja hið alræmda
fangelsi á eyjunni Jaros niður.
Ráðherrarnir ákváðu einnig, að
allir þeir, sem herforingjarnir
höfðu svipt vegabréfum, skyldu
fá þau að nýju.
Menn velta þvi nú fyrir sér,
hvort Karamanlis muni i stefnu-
ræðu sinni tilkynna þann dag,
sem efnt verður til kosninga að
nýju eftir 7 ára einræðisstjórn.
Ekkert bendir til þess, að
herforingjarnir hafi sett hömlur á
athafnafrelsi nýju stjórnarinnar.
aðgerðir hennar á fyrsta degi
gefa þvert á móti til kynna, að
hún hafi alveg frjálsar hendur i
stjórnarathöfnum.
Erfiðasta verkefni stjórnarinn-
ar verður að reisa efnahagslif
Grikkja úr rústum. John
Pesmazoglou, prófessor, einn
þekktasti hagfræðingur Grikk-
lands, hefur tekið að sér að gera
tilraun til þess. Efnahagsbanda-
lag Evrópu hætti á sinum tima
öllu efnahagssamstarfi við her-
foringjastjórnina. Á þeirri af-
stöðu verður nú breyting og kem-
ur það sem hvatning I efnahags-
lifi Grikkja.
Stjórn Karamanlis sýnist ætla að starfa án nokkurra þvingana af hálfu
herforingjanna.
Fischer lœtur
sig olls ekki
,,Bobby Fischer veröur
sviptur heimsmeistaratitl-
inum 1. apríl n.k. nema
hann falli frá kröfum sín-
um um stigagjöfina í á-
skorendaeinvíginu 1975,"
sagði Max Euwe, forseti
alþjóðaskáksambandsins, í
gær.
„Enéger hræddur um, að hann
komi ekki til með að gera það,”
bætti forsetinn siðan við um
heimsmeistarann.
Euwe er orðinn vondaufur um
sættir.
„Fischer sýnist ekki gera sér
grein fyrir þvi, að hann gengur
ekki að neinum háum peninga-
verðlaunum, ef hann er ekki leng-
ur heimsmeistari,” sagði Hol-
lendingurinn Euwe, fyrrum
heimsmeistari sjálfur. „Og missi
Fischer titilinn á hann ekki
möguleika á að hreppa hann aftur
fyrr en 1978.
Eins og komið hefur fram i
fréttum hefur Fischer krafizt
breytingar á stigagjöfinni, sem i
gildi var þegar hann vann Boris
Spassky. Núgildandi reglur gera
ráð fyrir, að sá, sem fyrstur vinni
10 skákir, hreppi titilinn. En sam-
kvæmt tillögu Fischers gæti á-
skorandinn unnið meistaratitil-
inn,ef hann vinnur tveim skákum
fleira en heimsmeistarinn.
Skeggjaður, ungur mað-
ur á ferð með konu sinni og
kornabarni rændi í gær
flugvél i innanlandsáætlun
i Kólombíu, en særðist til
ólífis í skotbardaga við
lögregluna, eftir að vélin
lenti í Cali.
Ficher þykir ekki liklegur til
þess að láta sinn hlut.
Allir farþegarnir 123 að tölu og
7 manna áhöfn vélarinnar sluppu
án meiðsla.
Lögreglan hefur boriðkennsl á
ræningjann, sem heitir Eduardo
Martinez (24 ára), og segir hún,
að hann hafi rænt flugvél árið 1969
og neytt hana til að fljúga með sig
til Kúbu.
Reyndi flugrán aftur
Bœta auðhringir
upp koparnámur
Herforingjastjórnin i
Chile hefur gert Ana-
conda Co. tilboð um bæt-
ur fyrir þjóðnýtingu All-
endes forseta á kopar-
námunum i Chile 1971.
Tilboðið nemur 253
milljónum Bandarikja-
dala, og hefur Anaconda
ákveðið að taka boðinu.
Um leið fellur fyrirtækið I stað-
inn frá málsókn sinni og frekari
kröfugerð, en það hóf þegar i staö
mál fyrir alþjóðarétti á hendur
Chilestjórn, þegar námurnar
voru á sinum tima þjóðnýttar
bótalitið
Chile á samkvæmt þessu tilboði
að greiöa Anaconda þegar i stað
65 milljónir dala i reiðufé, en 188
milljónir á tiu árum með 10%
vöxtum. — A þessar greiðslur
verður litið sem hverjar aðrar
skattbærar tekjur Anaconda, sem
afskrifaði 302 milljón dala tap
1971 vegna þjóðnýtingarinnar.
ísland byrjaði vel
1 Kaupmannahöfn stendur núna
yfir Evrópumótið i sveitakeppni
unglinga I bridge, og á ísland þar
sina fulltrúa.
Byrjaði islenzka sveitin af-
bragðsvel og var efst eftir fjórar
fyrstu umferðirnar, en fréttir
hafa veriö strjálar af mótinu, og
hefur ekkert heyrzt, hvernig sið-
an hefur gengið.
Norska fréttastofan sendi I
gærkvöldi út þær upplýsingar að
Sviþjóð væri efst með 149 stig, nr.
2 Noregur með 135 st., nr. 3. Ir-
land með 129 st„ nr. 4 Frakkl.
með 125 st„ nr. 5 Holland með 125.
Meðal þeirra tiu efstu, sem
taldir eru til, er ísland ekki að
finna.
Að þessu sinni lét hann flug-
stjórann fljúga til Cali, krafðist 2
milljóna Bandarikjadala og frels-
is til handa pólitiskum föngum.
Eftir að sett hafði verið elds-
neyti á vélina og henni hafði ver-
ið ekið út á enda flugbr., opnaði
einhver neyðarútgang, og farþeg-
arnir sluppu þar allir út. Áhöfnin
var um borð sem gislar.
Lögregluþjónar dulbúnir sem
vélvirkjar nálguðust siðan vélina
og skiptust á skotum viö Martin-
ez, sem var særður banasári.
Heldur lögreglan i Bogota þvi
fram, að þegar Martinez
rændi flugvélinni 1969, hafi hann
flogið til Kúbu, þar sem hann
vann i nokkra mánuði á sykur-
ekrunum, áður en hann fór til
Spánar.
Ekki lá ljóst fyrir i morgun,
hvaða hlutverk kona Martinez
hafði leikið i flugránstilraun
þeirra að þessu sinni.
Orösonding til
viöskíptamanna olíufólaganna
Vegna mikilla rekstrarfjárörðugleika eru olíu-
félögin neydd til að gera eftirfarandi ráðstaf-
anir:
Frá 7. ágúst 1974 falla úr gildi öll viðskipta-
og kreditkort, sem olíufélögin hafa gefið út
til bifreiðaeigenda, einstaklinga, fyrirtækja og
stofnana.
Frá sama degi verður bensín 'og aðrar vörur
aðeins selt gegn staðgreiðslu frá bensínstöðv-
um félaganna.
Vér væntum þess að viðskiptamenn vorir
taki þessum nauðsynlegu ráðstöfunum með
velvild og skilningi.
REYKJAVlK, 25. JÚLÍ 1974
Olíufélagið hf.
Olíuverzlun
r
Islands hf.
Shell
Olíufélagið
Skeljungur hf.