Vísir - 26.03.1975, Blaðsíða 9
I
Vísir. Miðvikudagur 26. marz 1975.
9
Leikstjórinn John Huston lætur nú gamlan draum rætast.
Hinn 69 ára gamli leikstjóri er enn að:
John Huston lœtur nú
gamlan draum rœtast
Leikstjórinn John Huston er
nú i sjöunda himni, þar sem
hann stjórnar mikilli kvik-
myndatöku við rætur háiendis
Marokkó. Loksins er hann að
hefjast handa um að gera þá
kvikmynd, sem hann hefur þráð
að gera i meira en 20 ár.
„Nú er einn af draumum mín-
um að rætast og ég er vitanlega
glaður út af þvi, eins og sjá
má,” segir John Huston, sem á
að baki sér myndir eins og Fat
City, Judge Roy Bean og
Mackintosh Man.
Myndin ber nafnið „The Man
Who Would Be King” og er Sean
Connery og Michael Caine i
aðalhlutverkum. Myndin er
byggð á hinu sigilda verki
Rudyard Kipling. sem T.S. Eliot
og Ernest Hemingway hafa
sagt, að væri sú bezta smásaga,
sem skrifuð hefur verið.
Kanadiski leikarinn Christo-
pher Plummer leikur Kipling.
Myndin gerist i Indlandi á ár-
unum um 1880. Tveir harðgerðir
og einkennilegir náungar, fyrr-
verandi liðþjálfar i brezka hern-
um, sem nú eru óaðskiljanlegir,
ákveða að fara frá Lahore i
gegnum Afganistan til hins
frumstæða Kfiristian til að
freista gæfunnar sem
sjálfskipaðir konungar. Þetta
eru þeir Daniel Dravot (Sean
Connery) og Peachy Carnehan
(Michael Caine).
Dravot er dýrkaður sem guð
af lýðnum, en kemst fljótlega að
þvi, að jafnvel veldi guðanna
er valt.
Huston er nú 69 ára gamall.
Skeggið er grátt og bakið bogið.
Þessi nýjasta kvikmynd kemp-
unnar er talin kosta átta og
hálfa milljón dollara eða á ann-
an milljarð islenzkra króna.
Þetta verður 32. mynd Huston.
Sú fyrsta var „The Maltese
Falcon”, sem hann gerði árið
1941.
„Þegar ég fyrst hugðist tak-
ast á við þetta verkefni hafði ég
þá Clark Gable (i stað Sean
Connery) og Humphrey Bogart
(fyrir Michael Caine) i huga. En
nú eru þessir ágætu leikarar
báðir dánir,” segir John Huston
„Nútima áhorfendum er hins
vegar ekki hægt að bjóða upp á
Amerikana i hlutverkum
tveggja uppgjafaliðþjálfa i
brezka hernum.
Mig hefur ætið langað til að
gera þessa mynd, þvi ég tel
hana eitt bezta ævintýrið, sem
skrifað hefur verið, og það er
bæði litrikt, sérstætt og fullt af
kimni. Það flytur einnig boö-
skap, sem kemur greinilega i
ljós, i enda sögunnar,” segir
John Huston,. Sean Connery,
hinn fyrrverandi James Bond
007, segir:
„Samkvæmt öllu þvi, sem ég
hef séð hér, tel ég, að þetta verði
bezta mynd Huston. Hlutverk
Dravot er vissulega eitt hið
bezta hlutverk, sem ég hef feng-
ið, hlutverk harðgerðs,
einkennilegs ævintýramanns,
sem að lokum er jafn móttæki-
legur fyrir konum og völdum og
hver annar.”
Það er raunar aðallega ein
kona, sem kemur við sögu og er
hún leikin af seinni konu
Michael Caine, fegurðardisinni
frá Guyana, Sakira Baksh.
Hundruð hirðingja hafa verið
fengnir ofan úr fjöllunum, til að
leika i smáhlutverkum. Þeir
hafa aldrei yfirgefið fjöllin og
munu sjálfsagt aldrei sjá sjálfa
sig á hvita tjaldinu. Margir
af karlmönnur.um hafa fallizt á
að láta krúnuraka sig á hverjum
degi fyrir hlutverk munka og
presta. Huston hælir þessum
aukaleikurum á hvert reipi.
Mörg andlitanna telur hann
óviðjafnanleg.
Það var list i sjálfu sér að fá
hirðingjana til að gera það i
upphafi kvikmyndatökunnar,
sem til var ætlazt. Það þýddi lit-
ið að láta arabiskumælandi að-
stoðarleikstjórann hrópa á þá.
Hirðingjarnir gátu ekki skilið
tilgang þess, sem þeir voru
beðnir um.
Þvi tók aðstoðarleikstjórinn
það til ráðs að benda á John
Huston og hrópa: „Sjáið, þessi
snarvitlausi maður vill núna að
þið hlaupið i 10 hringi. Ég hef
-ekki hugmynd um, hvers vegna
hann vill það. Flýtum okkur að
gera þetta áður en honum dettur
eitthvað enn brjálæðislegra i
hug”.
Renoir og Hawks fó
sérstaka heiðursóskara
Hinn aldraði kvikmyndaleik-
stjóri, Jean Renoir, sem nú er
áttræður, mun verða heiðraður
með sérstökum heiðursóskar
við næstu Óskarsverðlaunaaf-
hendingu, sem fram fer áttunda
april.
Jean Renoir verður úthlutað
verðlaunum fyrir afrek bæði á
sviði þögulla mynda og tal-
mynda, segir kvikmyndaaka-
demian.
Meðal kvikmynda Renoir eru
tvær sigildar myndir „La
Grande Illusion” og „La Regle
du Jeu.” Renoir er nú búsettur i
Hollywood.
Akademian hefur einnig til-
kynnt að bandariski leikstjórinn
Howard Hawks verði sæmdur
sérstökum Óskarsverðlaunum.
1 tilkynningunni var Howard
Hawks nefndur einn af mestu
leikstjórum amerisku kvik-
myndanna með meiri háttar
kúrekamyndir eins og „Red
River” og „Rio Bravo” að baki.
Breytt ákvæði
varðandi möskvastærðir
botnvörpu, flotvörpu
og dragnótar
Sjávarútvegsráðuneytið vekur athygli
hlutaðeigandi á þvi, að það hefur fyrir
nokkru gefið út tvær nýjar reglugerðir
sem breyta eldri reglum um möskva-
stærðir botnvörpu, flotvörpu og dragnót-
ar.
Samkvæmt 1. gr. reglugerðar nr. 393 31.
desember 1974, um möskvastærðir botn-
vörpu og flotvörpu og um lágmarksstærð-
ir fisktegunda, eru möskvastærðir botn-
og flotvarpna eftirfarandi:
1. Botnvarpa 135 mm
2. Flotvarpa 135 mm
3. Humarvarpa 80 mm
4. Rækjuvarpa 45 mm i vængjum, aftur
að fremsta horni neðra byrðis
Rækjuvarpa 36 mm i vængjum, aftan
við fremsta horn neðra byrðis, i efra
byrði, neðra byrði og poka.
Samkvæmt 2. gr. reglugerðar nr. 278 9.
september 1974, um dragnótaveiðar er
lágmarksmöskvastærð dragnótar nú 135
mm.
í áðurgreindum reglugerðum eru bráða-
birgðaákvæði, sem veita timabundna
heimild til þess að nýta þær vörpur og voð-
ir, sem gerðar eru i samræmi við þær
reglur, er giltu fyrir gildistöku áður-
greindra reglugerða.
Þessi timabundna heimild gildir til þess
tima er hér greinir:
1. Botnvörpunet til 16. mai 1976.
2. Flotvörpunet til 16. mai 1977
3. Dragnótarnet til 1. desember 1975.
Hins vegar skal það itrekað, að nú er al-
gerlega óheimilt að gera nokkrar ráðstaf-
anir til þess að afla erlendis frá eða fram-
leiða hér aðrar vörpur og voðir en þær,
sem gerðar eru i samræmi við ákvæði
reglugerða 393/1974 um möskvastærðir
botnvörpu og flotvörpu og 278/1974 um
dragnótaveiðar. Mun ráðuneytið nú taka
upp eftirlit með innflutningi á netum og
netagerð innanlands.
Ráðuneytið væntir samvinnu þeirra, sem
hlut eiga að máli og er reiðubúið að veita
þær upplýsingar, sem það getur varðandi
þessi mál.
Sjávarútvegsráðuneytið
24. mars 1975.
VÍSIR vísar ó viðskiptin
Myntalbúm
Allt fyrir
myntsafnara
FRÍMERKJAMIÐSTÖÐIN
Skólavörðustig 21 A-Simi 21170