Vísir - 26.03.1975, Blaðsíða 24
Vantaði um 3 milliónir
upp á laun Sigöldumanna
— og starfsmenmrnir gerðu skyndiverkfall
vísm
Miðvikudagur 26. marz 1975.
Vegið tvisvar
í sama knérunn
1 fyrrinótt var brotizt inn i veit-
ingahúsið Naust og stolið ein-
hverju af vörunum, sem voru á
bamum. 1 nótt sem leið var aftur
brotizt inn i Naust og stolið meiru
af barnum.
Svo virðist sem einhverjum
þyki þetta ódýrari og þægilegri
leið til áfengisöflunar en að
skreppa i vinbúðir Á.T.V.R. SHH
Nú verða
Egilsstaðir
með í milli-
landafluginu
Segja má, að á komandi sumri
komi enn nýr flugvöllur á tslandi i
tölu milliiandaflugvalla, þegar
Egilsstaðaflugvöllur bætist i hóp
þeirra flugvalla, sem reglulegt
millilandaflug verður um. Flugið
milli Færeyja og tslands verður
um Egilsstaði.
Að öðru leyti er sumaráætlun
Flugleiða ósköp lltið breytt, frá
þvi sem hún var i fyrrasumar. Þó
eru færri ferðir farnar á
Norður-Atlantshafsleiðinni, milli
Bandarikjanna og Luxemborgar
um ísland. A þeirri leið verða not-
aðar þotur Loftleiöa, DC 8-63, en
annað flug til Evrópulanda verð-
ur með Boeing 727 þotum Flugfé-
lagsins, nema Færeyjaflugið,
sem verður með Fokker Friend-
ship. Þær vélar verða einnig not-
aðar til að fljúga með ferða-
mannahópa til Grænlands, alls 59
ferðir.
Til Bandaríkjanna verða 18
ferðir á viku, og fimmtán til
Luxemborg. Til Kaupmanna-
hafnar verða 12 ferðir á viku og
tvær að auki fyrir SAS. ósló fær
fjórar ferðir, Stokkhólmur tvær,
Frankfurt eina, London og Glas-
gow fimm, Færeyjar fjórar. —
SHH
Taka Arcturusar
árangursrík
Taka vestur-þýzka togarans
Arcturusar hefur orðið af-
drifarfk. Nú er islenzki flotinn
á veiðum á svæðinu fyrir Suð-
vesturland i friði fyrir Þjóð-
verjum, þar sem áður voru
allt að 30 þýzkir togarar.
Auðunn Auðunsson skip-
stjórisagðiVIsiþessarfréttir i
gær. Hann taldi, að Þjóðverjar
hefðu orðið skelkaðir við töku
togarans, og sýndi þetta, að
ekki stoðaði annað en að sýna
sem mesta hörku I viðskiptum
við þá. —HH
Sœmilegt veður
um póskana
Sæmilegasta veður ætti að verf
um páskana eftir öllu að dæma.
Mikið frost veröur til að byrja
með, en eftir þeim upplýsingum,
sem við fengum hjá Páli Berg-
þórssyni veðurfræðingi í morgun,
er svo að sjá sem heldur mildara
loft sé smám saman að þokast
nær okkur.
Næstu dagana er þó búizt við
stilltu veðri, norðanátt og élja-
gangi á Austurlandi, en sæmileg-
asta veðri hér á þessum hluta
landsins.
1 morgun var frostið hvorki
meira né minna en 21 stig á Sand-
búðum, og er það mest á landinu.
16 stig voru i Skagafirði, en viða
er frostið 8-10 stig á landinu. 1
Reykjavfk var 10 stiga frost
klukkan 9 i morgun.
Þykir frost þetta nokkuð mikið
miðað við árstima, og þá sérstak-
lega, þar sem enginn is er i nánd.
—EA
„Tiu þúsund krónurnar verða
borgaðar eftir helgi, þar sem
allir bankar voru lokaðir i nótt.”
Þessi tilkynning frá launaskrif-
stofu Sigölduvirkjunar blasti við
starfsmönnunum er þeir komu i
kaffiklukkan hálftiu i gærmorg-
un og hugðust taka við launum
sinum. Hleypti þessi tilkynning
illu blóði i starfsmennina og
gerðu þeir skyndiverkfall.
„Launagreiðslunum er
þannig háttað, að við fáum tiu
þúsund greiddar i peningum en
hitt i ávisun. Avisanirnar voru
A meðan okkur tslendinga
dreymir um að komast i sólina á
Spáni i páskafríinu — og margir
láta verða af þvi — kemur hópur
Spánverja til tslands til að kom-
ast i kulda og snjó til tilbreyting-
ar.
Flugfélagsvél, sem í gær flutti
hóp íslendinga til Mallorca, á að
leggja af stað heim i dag með við-
komu i Barcelona, þar sem
til reiðu i gærmorgun, en
peningana vantaði og þá átti
ekki að borga okkur fyrr en eftir
páska,” sagði einn flokksstjór-
anna, sem vinna við Sigöldu, i
viðtali við Visi i morgun.
„Tiu þúsund krónur eru.f sjálfu
sér ekki stór upphæð, en þegar
margfaldað er með tölu starfs-
mannanna, eða 300, er upphæðin
orðin að þrem milljónum,”
benti flokksstjórinn á. Og hann
sagði ennfremur frá þvi, að
ýmsar skekkjur hefðu reynzt
vera i launaútreikningunum,
spánskir bankastarfsmenn munu
fylla vélina.
Spánverjarnir munu fara i
stuttar skoðunarferðir um
Reykjavik og nágrenni, en tæpast
verður hægt að fljúga með þá til
Grænlands, eins og þeir höfðu
óskað eftir. Héðan heldur hópur-
inn utan aftur að kvöldi annars i
páskum.
sem að visu væri mjög algengt á
þessum vinnustað: „Verkstjór-
arnir höfðu skyndilega lækkað
þannig i launum, að þeir voru
komnir á sömu laun og þeirra
undirmenn. Sömu sögu var að
segja af öllum flokksstjórunum
nema þeim nýjustu,” sagði
flokksstjórinn, sem Visir ræddi
við.
Og hann hélt áfram: „Rétt
fyrir hádegi i gær kom sáttatil-
laga frá launastjóranum, en hún
var felld. Onnur kom um kaffi-
leytið og var á þá leið, að við
sýndum þolinmæði til hádegis i
Nú hafa allmargar steikur á .
matseðlum veitingahúsanna
komizt yfir tvö þúsund krónur I
verði og sumar upp I allt að tvö
þúsund og fimm hundruð krónur.
Veitingahúsunum hefur nefnilega
verið heimilað að hækka verðið á
mat 25 prósent.
„Ég tók I handlegginn á henni
og sagði, að þau yrðu að koma
með mér inn, en hún þverneitaði
og gaf mér þetta rokna högg á
ennið”, sagði Lea Kristjáns-
dóttir, starfsstúlka Hagkaups I
Kjörgarði, sem varð fyrir bar-
smið „viðskiptavina” á laugar-
daginn var.
„Hún hlýtur að hafa verið
með karlmannsúr á handleggn-
um eða eitthvað þess háttar”,
sagði Lea. „Að minnsta kosti
var þetta mjög þungt högg og ég
blés upp undan þvi í öllum regn-
bogans litum. Gleraugun hrutu
af mér i götuna, og mér varð
það fyrst fyrir að bjarga þeim.
Þá tók konan til fótanna og
hvarf niður Laugaveginn”.
Fólk, sem var að verzla gerði
Leu viðvart um það, að hjú þessi
væru að laumast út með fulla
vasa af óborguðum varningi.
Lea læsti kassanum i flýti, stökk
út á eftir hjúunum og náði þeim
dag. Fyrir vikið átti að reikna
okkur öllum laun fram til há-
degis i dag, en flestir okkar voru
að fara i páskafri i morgun.
Þessi tillaga var samþykkt af
okkar hálfu, en enginn fór samt
til starfa að nýju þó að vinnu-
tima okkar ætti ekki að ljúka
fyrr en klukkan sjö.”
Flokksstjórinn gat þess i
viðtalinu við Visi, að það hefðu
nær allir Islendingarnir tekið
þátt i skyndiverkfallinu. Júgó-
slavarnir hafi hinsvegar engan
Örlitil huggun fyrir þá mörgu,
sem stynja þungan undan verðinu
á matnum, sem þeir eru að kaupa
handa fjölskyldunni fyrir pásk-
ana. Þeir geta reynt að reikna
það út, hvað steikin hefði kostað á
veitingahúsi . . .
utan við dyrnar
„Hann stóð eftir, alveg eins og
rola”, hélt Lea áfram lýsingu
sinni á viðureigninni við parið.
„Hann tindi i mig það, sem hann
var með i vösunum, og ég gat
litið annað gert en að taka við
þvi. Enda var mér mikið i mun
að komast sem fyrst aftur að
kassanum, þvi okkur hefur ver-
iöstranglega bannað að fara frá
þeim”.
Atvik þetta var ekki kært,
enda eru verzlunarmenn orðnir
langþreyttir á að kæra þessi
hjú, sem ganga um ruplandi og
nú berjandi. Lea lýsti þeim
þannig, að konan væri mjög
dökkhærð, með topp, kringluleit
og heldur feitlagin, mjög mörk-
uð af óreglu. Hann væri hár og
grannur, fjarska rolulegur, og
þennan dag var hann allur
plástraður á hnakkanum,
„hvort sem hún hefur barið
hann eða eitthvað annað gerzt! ”
—SHH
-ÞJM
SEINT KOMA SUMIR...
Nú ætti ekki að verða vand-
kvæðum bundið að flytja Messi-
as i Háskólabíói. Allir eru nú
komnir til landsins, sem hugð-
ust koma. Að visu seinkaði
tveimur söngvurum, þeim Jan-
et Price sópransöngkonu og
Glyn Davenport bassasöngvara
um einn dag. Þau voru þó á
æfingu I morgun og verða aftur I
dag.
Messias verður fluttur á
morgun, föstudaginn langa og
laugardaginn. Nokkrir miðar
eru enn til. Stjórnandi er Ingólf-
ur Guðbrandsson. —EA
þátt tekið i þvi.
—ÞJM
ísland vann
Fœreyjar 9:1
í gœrkvöldi
— seinni umferð
á morgun
ísland vann Færeyjar 9-1 i
landskeppni i skált, sem hófst i
gær.
Friðrik gerði á 1. borði jafn-
tefli við Hanus Joensen. Is-
lendingar sigruðu á öllum öðr-
um borðum, nema hvað
Magnús Sólmundarson gerði
jafntefli á 3. borði.
Seinni umferð landskeppn-
innar verður á morgun.
—HH
Ólafur B. Thors, forseti borg-
arstjórnar Reykjavikur, leik-
ur hér fram drottningarridd-
ara fyrir Friðrik Ólafsson.
Yið í hitann til þeirra —
þeir koma í kuldann hér
Steikin orðin dýrari
—ÞJM
Þjófurinn barði
afgreiðslustúlkuna
— en félagi hennar skilaði mestu þýfinu