Vísir - 19.04.1975, Blaðsíða 5

Vísir - 19.04.1975, Blaðsíða 5
5 Vísir. Laugardagur 19. apríl 1975. ERLEND MYNDSJÁ Umsjón Guðmundur Pétursson Síðasti söngur Joseph- ine Boker Söngkonan fræga, Josephine Baker, hefur sjaldan komiö fram opinberiega seinni árin. Hún hafði helgaö sig barna- hópnum, munaöarleysingjun- um, sem hún haföi gengiö i móö- urstað. Þaö var rétt aöeins, þegar þrengdist i búi hjá þessari barn- elsku söngstjörnu, að hún lét til ieiöast og efndi til söngskemmt- ana til þess aö afla fjár til fram- færslu þeirra. Eina slíka söngskemmtun hélt hún i Paris I siðustu viku. — Það var i hinzta sinn, sem hin vinsæla söngkona kom fram. Hún hné niöur á sviöinu, þeg- ar hún haföi veriö þar aðeins tiu minútur. Var hún flutt i skynd- ingu á sjúkrahús. Tiu dögum siðar var hún öil. 4 ' m*'' A. Nýher- þota tsraelsmenn héldu þjóöhátiö- ardag sinn hátiðlegan meö sýn- ingu á nýrri herþotu, sem þeir hafa byrjaö framleiöslu sina á. Þetta er orustuþota, sem flutt getur sprengjur og heitir „Krir”, en hún sést hér á efri myndinni t.h. I flugtaki. Á neöri myndinni sést Yitzhak Rabin, forsætisráöherra, { ræöustól aö kynna vélina. — „Hún sameinar þá fegurö, sem viö höfum lært af Frökkum, vél- tæknina, sem viö fengum frá Bandarikjunum, og þaö bezta, sem israelskir tæknimenn gátu lagt fram,” sagöi ráöherra. Vélin fer meö tvöföldum hraöa hijóösins og getur barizt I 50,000 feta hæö. FORSETA FRAKKLANDS VEL TEKIÐ í ALSÍR Valery Giscard d’Estaing, Frakklandsforseti, var á dögunum I opinberri heimsókn i Alsir, þeirri fyrstu sem þjóöhöföingi Frakk- lands tekur sér á hendur þangaö, siöan Alsir hlaut sjálfstæöi, en landiö var áöur nýlenda Frakka, og reyndar eins og eitt héraö Frakklands. Myndin hér viö hliöina var tekin meöan heimsóknin stóö yfir. Eins og sést á henni var Frakklandsforseta vel tekiö af fyrrverandi frönskum landnemum I Alsir, sem umkringdu hann, þegar hann haföi móttöku inni i franska sendiráöinu i Alsirborg.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.