Vísir - 31.10.1975, Page 10

Vísir - 31.10.1975, Page 10
10 VÍSIR. Föstudagur 31. október 1975 I>auu 3. scptember árið 1971 var sautján mánaða gömul stúlka, Angela Gallagher, skotin til bana af levniskyttu irska lýðveldishersins. Myndin er frá útför hennar, sem fór fram að kaþólskum sið. Faðir liennar bar kistu hennar út. stæði þjóðar „sinnar”. Þeir njóta ekki stuðnings kaþólska minnihlutans á Norður irlandi — að minnsta kosti ekki i venjulegri siðgæðislegri merk- ingu þess orðs. Þeir fá fjárhags- legan stuðning úr hverfum kaþólskra og þá venjulega með kúgunum og hótunum. Annað- hvort verður búðareigandinn að greiða þeim ákveðna prósent- tölu af ágóða sinum, eða búð hans er brennd niður. Þeir sem lesið hafa rómantiskar frásagn- ir um frelsisbaráttu ira áður fyrr styðja hryðjuverkamenn- ina i anda, en þeir njóta einskis stuðnings alls almennings, eða aðal baráttuhópsins fyrir mann- réttindum, sósialdemókrötum. Batnandi lifskjör Samtök minnihlutahópanna, mannréttindasamtök og sósial- demókratar, hafa i sameiningu náð fram betri kjörum fyrir kaþólska i Ulsterhéraðinu. Til dæmis leiddi könnun, er gerð var af kaþólskum stúdentum við háskólann i Coleraine, það i ljós, að Ulsterhérað hefði byggt fleiri hús á siðasta áratug en nokkurt annað land i Vestur-Evrópu. Og Þeir, sem að baki blóðbaðinu standa ,.Ef skotlirið liefst skyndilega, skuluð þér læsa dyrunum að her- bergi þvi, er þér eruð staddur i. Leggist á gólfið eins langt Irá gluggum og mögulegt er. reynið að skýla yður með einliverju (s.s. stólum eða borði og liggið KYItlt. Iteyniö EKKI undir nokkrum kringumstæðum að berjast við árásar- mennina. Iteynið ekki að yíirgefa berbergið, nema þér séuð þess fullviss, að lögreglan liafi náð yfirböndinni.” Þannig hljóðar tilkynning i skrifstofubyggingu i London. En annars staðar eru varúð- arráðstafanir gegn þeirri miklu öldu hermdarverka, er nú geng- ur yfir, ekki eins áberandi. Far- angurshólf á stórum járnbraut- arstöðvum eru oft lokuð al- menningi, svo tilræðismenn geti ekki komið þar fyrir sprengjum sinum. Oryggisverðir fylgjast með öllum er koma inn i stórar skrifstofubyggingar, Fólk er lætur frá sér pakka á almanna- færi, er litið grunsamlegum augum — og fólk þvi beðið um að hafa pakka sina og pinkla hjá sér. Þessar ráðstafanir hafa svo sannarlega ekki verið gerðar að ástæðulausu. Frá þvi i febrúar árið 1972, hafa meira en sextiu manns látið lifið i Bretlandi, af völdum fleiri en 160 sprengjutil- ræða. Þótt flestar sprenging- arnar hafi orðið innan borgar- takmarka Lundúna, hafa þó verstu slysin orðið utan höfuð- borgarsvæðisins. 1 nóvember i fyrra létust tuttugu og einn maður i tveimur sprengingum, er urðu á einu kvöldi i tveimur samkomuhúsum i Birmingham. Tólf manns biðu bana, er lang- ferðabill er flutti starfsmenn hersins og fjölskyldur þeirra, var sprengdur i loft upp i febrú- ar 1974. Fimm manns létust og 68 slösuðust, er sprengjur sprungu i tveimur krám i bæn- um Guildford i októbermánuði sama ár. Á þessu ári hafa sex manns látið lifið og fleiri en þrjátiu særst i sprengingum á fjölförn- um stöðum á höfuðborgarsvæð- inu — og siðustu tilræðin voru núna rétt nýlega. Sprengjurnar eru einfaldar að gerð — en þær eru kraftmiklar. Þær eru venjulega látnar undir stóla i krám, i dyrum á verslun- um, fyrir utan glugga á veit- ingahúsum og á öðrum stöðum, þar sem umferð er mikil. Þær eru gjarnan settar við glugga — svo glerbrot þeytist um allt, eða þá að þær innihalda þunga málmnagla, sem geta haft svip- uð áhrif og sprengikúlur. En i öllum tilfellum eru sprengjurnar látnar þar, sem þær geta unnið saklausu fólki sem mest tjón — og i nær öllum tilfellum núna þessa dagana, er ekkert tilkynnt um sprengjurn- Mik Magnússon skrifar ERLEND VIÐHORF ar fyrirfram. „Provisional” armur irska lýðveldishersins og útsendarar hans hafa flutt óeirðirnar á N- írlandi yfir til Bretlands. Hverjir standa á bak viö þetta? Þeir sem eru ábyrgir fyrir þessum hryðjuverkum eru ein- kennilegt sambland af venju- legum glæpamönnum, nauðgur- um, þjófum, fjárkúgurum o.s.frv., sem hafa fengið póli- tiskt markmið og eru nægilega afvegaleiddir, til að geta þóst vera að „berjast” fyrir sjálf- það sem meira er, könnunin færði sönnur á, að ekkert trúar- bragðamisrétti hefði rikt i hús- næðismálum frá 1964 — fimm árum áöuren núverandi ágrein- ingur reis. Þetta er aðeins eitt dæmi um batnandi kjör kaþólska minnihlutans á Norður-lrlandi. Að visu eru lifs- kjör enn fremur slæm en fara ört batnandi. En Provisional armur irska lýðveldishersins vill ekkert af þessum framförum vita. Það sem þeir vilja er sameinað Ir- land undir sósialiskri stjórn — og þeir eru reiðubúnir að drepa og limlesta til að ná markmiði sinu. Yfir 1300 inanns bafa látiö lifið' Frá þvi ógnarherferð þeirra hófst i ágústmánuði árið 1969, hafa meira en 1300 manns látið lifið og nær jafnmargir slasast — og nokkrir örkumlast, og i hvaða tilgangi? — Engum. Þeir kalla sig „her”, en á hverjum bitna aðgerðir þeirra vanalega? — Saklausum borg- urum, ferðamönnum og ung- börnum. „Ilvaðan fá þeir pen- inga? Sprengjur og vopn kosta sitt — og hvaðan fær lýðveldisher- inn fjármagn? Eins og áður var bent á, er mikiil hluti þess kúg- aður út úr kaþólikkum sjálfum. Afgangurinn kemur frá Bandarikjunum og frá irskum innflytjendum i Bretlandi. Árlega renna milljónir dollara frá Bandarikjunum i sjóði IRA. Mikill hluti þeirra kemur frá New York og Chicago — með þegjandi samþykki Daly, borg- arstjóra þeirrar siöarnefndu. Það fjármagn sem fengið er frá Bretlandi kemur frá þeim armi IRA, sem enn er leyfður og þekktur er undir nafninu Sinn Fein. Hann á fimm útibú i Lond- on, tvö i Manchester, eitt i Liverpool, Huddersfield, Coventry, Northampton, Southampton, Bristol, Notting- ham og Leeds og loks fjögur i Birmingham. 15 þúsund stuðnings- menn IRA Lögreglan áætlar fjölda stuðningsmanna IRA i Bret- landi vera um 15.000 — þótt fé sé fengið frá langtum stærri hluta almennings, en hinna eiginlegu meðlima. Fé er safnað á tvennan hátt. I fyrsta lagi samskot i „irskum” samkomuhúsum. Þannig hús eru til i hverri breskri iðnaðar- borg, og þangað leita irar mjög eftir félagsskap. Ef einhver vill ekkert láta af hendi rakna i samskotabaukinn, getur hann eins vel hypjað sig. Hin fjáröflunarleiðin er ágóði af sölu tveggja blaða er styðja málstað ira: „Republican News” og „An Phoblacht” sem kemur út á gelisku. Blöð þessi eru prentuð i Dyfl- inni og flogið yfir til Englands. Allir þeir peningar, sem inn koma, eru sendir aftur til aðal- stöðvanna i Kevin Street i Dublin — og siðan dreift. Fréttaflutningur að skapi IRA Meðfylgjandi úrklippa úr einu þessara blaða gefur gott dæmi um þann fréttaflutning, sem IRA telur sér hagkvæmastan: „Miðvikudagur, 6. nóv., Cross- maglen. Tveir breskir hermenn voru skotnir til bana og einn særðist þegar virkur hópur (úr Provisional armi IRA) réðst á fótgönguliðssveit á bæjartoginu, Oglaigh nah Eireann.” Þetta eru hryðjuverkamenn þeir, sem nú vaða uppi i Bret- landi. Þeir virku tilheyra IRA, en hinir óvirku stuðningsmenn þeirra — sem þótt einkennilegt megi virðast, fá enn að ganga frjálsir i Bretiandi — tilheyra Sinn Fein. Þótt „vopnahlé” sé talið rikja nú sem stendur milli IRA og breska hersins, þá er það ein- ungis fyrirsláttur. t»etta eru morð Þvi er almennt trúað, að hermdarverkamennirnir noti vopnahléð til að endurskipu- leggja lið sitt og vigbúast að nyju. Þegar þeir svo hefja „virkar aðgerðir” á ný, má við þvi búast að þeir lýsi ábyrgðinni fyrir hryðjuverkunum i Bret- landi núna, á hendur sér. Aðgerðir þessara manna i Bretlandi og á N-lrlandi geta ekki talist neitt annað en morð af fyrstu gráðu. Hafið það i huga, er þið lesið greinar er styðja málstað þeirra i blöðum sósialista. Drengur er særöist i sprengjuárás i verslunarmiðstöö i Belfast haustið 1971. Mun liann nokkurn tima geta gleymt skelfingunni? Ekki er vitaö um nafn þessprar stúlku en hún særöist f sprengingu, er varð á skrif- stol'u rafveitunnar í Belfast þ. 2. ágúst 1971. Einn maður beiö bana og 35 særöust. Stúlkan niun bera ör þetta til æviloka.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.