Vísir - 31.10.1975, Side 24

Vísir - 31.10.1975, Side 24
ÍSIR Föstudagur 31. október 1975 Nýtt skákfélag stofnað í Rvík Búiö er að stofna nýtt skák- félag i borginni. Hefur þaö hlotið nafnið „Skákféiagið Mjölnir”. 1 röðum hins nýja skák- félags eru margir kunnir skákmenn. Má nefna Ingvar Asmundsson, Magnús Sól- mundarson, Sævar Bjarnason og skákkonuna Guðlaugu Þor- steinsdóttur, auk fjölmargra annarra. Þegar eru hafnar æfingar og skipulag starfseminnar er i fullum gangi. Takmark félagsins er að stuðla að betra og gróskufyllra skáklifi i borginni og jafnframt á öllu landinu með samvinnu við önnur skákfélög og skemmti- legri keppni við þau. Tannfé fékk félagið frá Guðmundi Arasyni, fyrrv. for- seta Skáksambands tslands og var það verðlaunagripur og tiu töfl. Formaður hins nýja skák- félags er Svavar Guðni Svavarsson. -E.K.G. Hlutkesti r x r reð ur- slitum í Járnsíðu Hlutkesti réð úrslitum i stjórna rkjöri á aðalfundi Járnsiðu hf., sem haldinn var siðdegis i gær. t -ijórn voru kjörnir, Björn Þórhallsson, Ingimundur Sigfússon, Jónas Kristjánsson, Pétur Pétursson og Þórir Jónsson. Varamenn voru einnig kjörnir með hlut- kesti i þessari röð: Hörður Einarsson, Guðmundur Guðmundsson og Sveinn R. Eyjólfsson. Núverandi meirihlutaaðilar i Reykjaprenti hf., eru þvi enn i minnihluta i stjórn Járnsiðu hf., en þeir ráða50% hlutafjárins. Jarnsiða hf. á húsnæði það sem ritstjórnarskrifstofur Visis hafa verið i, en Reykjaprent hf. á allar innréttingar. Fram- kvæmdastjóri Járnsiðu hf., Sveinn R. Eyjólfsson, hefur nú með bréfi tilkynnt Reykja- prenti hf„ að Járnsiða hf. hafi leigt öðrum aðilum húsnæðið frá 14. mai 1976— Þ.P. 4 bílar í einum árekstri Fjórir bilar lentu i einum og sama árekstrinum á Húsavik i gærkvöldi. Orsökin var mikil hálka. Areksturinn varð á Garðarsbraut unt klukkan hálf tiu i gærkvöldi. Fólksbill kom akandi eftir götunni og ætlaði siðan að beygja upp að ollusölu. Hann hægði á ferðinni og það var nóg til þess að jeppi sem ók á eftir honum stöðvaðist ekki nógu fljótt og skall aftan á hinn. Siðan kom annar bill aftan á jeppann og loks sá siðasti aftan á þann. Aðeins einn bil) skemmdist talsvert, það var sá sem lenti aftan á jeppanum. Hinir sluppu þokkalega og engin slys urðu á mönnum. Mjög mittíl hálka var á götunum. ' -EA. „Hœttulegast ef börn þamba eitraða gosið" Fullorðnir átta sig strax á beisku komist í nokkrar gos- drykkjarflöskur bragðinu — grunur um að vítissódi hafi ,,Við vitum ekki hvort yfirleitt nokkrar flöskur aðrar eru mengaðar þessu. En ef svo kynni að vera, þá viljum við forðast, að innihald þeirra geti valdið skaða", sagði Sigurður Waage, framkvæmdastjóri Sanitas, i viðtali við Visi I morg- un. I morgun var ekki búið að ákveða hvort öll framleiðsla Sanitas yrði innkölluð vegna eiturefna sem fundust i þremur gosdrykkjarflöskum fyrir nokkrum dögum. Þrátt fyrir itarlega rannsókn i gær, á flöskum i verslunum, og flöskum á lager Sanitas, hafa fleiri flöskur með þessum eitur- efnum ekki fundist. Grunur um að vitissódi hafi komist i flöskur „Við vitum ekki nákvæmlega hvaða efni var i flöskunum þremur. Við rannsókn hjá borg- arlækni hefur komið i ljós að þetta er einhvers konar lútefni. Okkur þykir liklegasta skýr- ingin sú, að hjá einhverjum neytanda hafi efni á borð við vítissóda hellst ofan i flöskurn- ar. Þetta hafi svo harðnað við raka. Lútefnin, sem við hreins- um flöskurnar með, hafa ekki náð að leysa efnið upp. Hinsveg- ar eru sýrur f öllum gosdrykkj- um, sem hafa getað leyst efnið upp”, sagði Sigurður Waage. Þótt öll vinna lægi niðri i Sanitas i morgun, voru þessar starfsstúlkur ióða önn viðað þrífa. Ljósm.: Jim. Mesta hættan ef börn drykkju eitraða gosið Sigurður sagði að eitraði gos- drykkurinn i flöskunum þremur væri beiskur á bragðið. Fólk finnur þvi strax, ef eiturefnið er i flöskunum. Mesta hættan er, ef börn fara að þamba úr flöskum með eiturefninu i, án þess að gera sér grein fyrir bragðinu. öll framleiðsla Sanitas lá niðri i morgun. Starfsmenn heil- brigðiseftirlitsins voru væntan- legir i verksmiðjuna til enn frekari rannsókna á vörum og tækjum, áður en endanieg á- kvörðun yrði tekin um hvað gert skyldi. T.d. er ekki ákveðið hvort hellt verður úr öllum flöskunum á lagernum. En það sem hefur farið i verslanir hefur verið innkallað, samkvæmt auglýsingu frá borgarlækni. Gosdrykkjartegundir þær sem Sanitas framleiðir, og hafa nú verið innkallaðar, eru Pepsi Cola, Seven up, Mirinda, Póló og sykuriaust appelsin. —ÓH Hafin er heita- vatnsborun fyrir Akureyri Nú er byrjað að bora með höggbor að Syðra-Laugaiandi i Eyjafirði eftir beitu vatni fyrir Akureyrarbæ. Svo sem skýrt hefur verið frá hér i biaðinu er siðan fyrirhugaöaðflytja Jötun, stærsta bor Orkutofnunarinnar norður til frekari borana. Jarðhitasvæðiðað Laugalandi var eftir rannsóknir i sumar tal- iö liklegasta svæðið i nágrenni Akureyrar til að gefa af sér pægilegt magn af heitu vatni til hitavæðingarinnar. t blaðinu ís- lendingi á Akureyri er þess getið að vesturislenska konan Kristin Kristjánsson, gædd dulrænum hæfileikum, hafi haft orð á þvl er hún dvaldi þarna fyrir ailmörgum árum,'að þarna væri mikið heitt vatn i jörðu, og er það einmitt á þeim stað, þar sem nú er farið að bora. -EB. Tveir nýir frœðslustjórar Menntamálaráðuneytið hef- ur sett Svein Kjartansson, skólastjóra, fræðslustjóra i Nói-ðurlandsumdæmi vestra. Þá hefur Valgarð Haraldsson, námsstjóri, verið settur fræðslustjóri i Norðurlands- umdæmi eystra. — Báðir eru settir um eins árs skeið frá og með fyrsta nóvember. —AF— Líðan stúlk- unnar óbreytt Stúlkan, sem varð fyrir bil á Nesvegi i gærmorgun, eins og Vísir sagði frá, reyndist lífs- hættulega slösuð. í morgun var liðan hennar óbreytt, samkvæmt þeim upp- lýsingum, sem fengust á Borgarspitalanum, þar sem stúlkan liggur. Stúlkan, sem er 12 ára gömul, var á reiðhjóli og varð fýrir jeppa. Hún hlaut alvar- leg höfuðmeiðsl. -EA. Ribli og Liberzon hafa forystu Áttunda umferð svæðamóts- ins var tefld I gærkvöldi. Frið- rik Ólafsson gerði þá jafntefli við Hamann eftir 25 leiki, en Björn Þorsteinsson tapaði sinni skák fyrir Jansa. Röð efstu manna eftir þessa umferð er þannig: Efstir og jafnir eru Ribli og Liberzon með scx Vinninga. í þriðja sæti er Friðrik ólafsson, þá kemur Parma — og Hamann er siðan i fimmta sæti. Niunda umferðin verður tefld i kvöld. „Höfum ekki hótað stöðvun, húsin komast einfaldlega ekki í gang" Frystihúseigendur rœða við forsœtisráðherra í dag „Það hefur ekki verið hótað stöðvun á rekstri frystihúsanua. En sökum þess að flotinn stoppaði er ha>tt við að mörg húsin komist einfaldlega ekki i gang að nýju. Þau hafa mörg ekki hráefni vegna róðra- stöðvunarinnar.” Þannig komst Einar Kristins- son i hraðfrystihúsinu Sjö- stjörnunni að orði, er Visir spurði hann i morgun um rekstrarstöðvun frystihúsa á Suð-Vesturlandi, Samstarfsnefnd sem frysti- húsin hafa skipað gengur i dag á fund forsætisráðherra. Einar Kristinsson er spurður hvor‘ þeirhyggistbenda á ráðstafanii sem þurfi að gripa til. ,,Að svo komnu máli getum við ekkert tjáð okkur um það. En frystihúsin hafa á þessu ári ekki haft rekstrargrundvöll. Það hefur ekki verið nægjan- lega mikill þorskur i aflanum, en meira af ódýrari fisktegund- um. Þvi hafa frystihúsin verið rekin með tapi sem hefur aukist er liðið hefur á árið.”

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.