Vísir - 14.11.1975, Side 7
7
VISIR Föstudagur 14. nóvember 1975
LÖND ímorgun útlöndí morgun útlönd í morgun útlönd
Umsjón: /ÓH
Varar við gjald
þroti Portúgal
Costa Gomes, forseti Portú-
gal, aðvaraði þjóð sina i gær-
kvöldi við þvi að innan tiðar
gæti landið staðið á barmi
gjaldþrots.
Byggingaverkamenn sem
halda Azevedo forsætisráðherra
og fleirum innilokuðum I em-
bættisbústað ráðherrans hvika
hvergi frá kröfum sinum. Ef
gengið yrði að þeim, þýddi það
samtals 68 milljarða króna út-
gjaldaaukningu.
Viðræður áttu sér stað i gær
milli Costa Gomes, og fulltrúa
verkamanna um lausn deilunn-
ar, en án árangurs. Verka-
mennirnir hófu að byggja götu-
vfgi I miðborg Lissabon. Herja-
hreyfingin gerir ekkert i mál-
inu, og öryggissveitirnar
Copcon segja að málið sé þeim
óskylt.
Atburðir þessir fylgja i kjölfar
mikils dróa i Portúgal sem
hefur gætt allt siðan Azevedo
tók við embætti forsætisráð-
herra fyrir sjö vikum.
Þessar vígreifu valkyrjur eru i liði MPLA, sem er vinstri sinnuð hreyfing og hefur höfuðborgina Luanda
á valdi sinu.
Lundúna-
blöð
koma
ekki út
Dagblöð i London komu ekki
út i dag, vegna verkfalls tækni-
manna i prentsmiðjum.
Mennirnir eru i verkfalli
vegna brottreksturs 96 manna
úr prentsmiðju blaðsins Daily
Express. Blaðstjórnin sakaði
mennina um að hafa unnið
skemmdarverk og brotið starfs-
samninga.
Tæknimennirnir sem eru i
verkfalli krefjast þess að hinir
brottreknu verði ráðnir aftur.
Undirrót þessa eru launadeil-
ur.
Er lausn
New York
týnd
kvittun?
Er lausnina á fjárhagsvand-
ræðum New York að finna djúpl
grafna i skjalabunkum frá árinu
1815?
Árið 1812 lánaði New York
rikinu eina milljón dollara. 1815
skrifaði borgarstjórinn bréf til
rikisins til að minna á skuldina.
Engin kvittun hefur fundist fyr-
ir þvi að skuldin hafi verið
greidd.
Lánið var veitt með 6 prósent
vöxtum. Ef það ætti að endur-
greiðast i dag, næmi upphæðin
11 milljörðum dollara — nóg til
að greiða skuldirnar, og vel það.
Hjá fjármálaráðuneytinu leit-
uðu embættismenn með logandi
ljósi að kvittuninni i gærdag.
Sá sem uppgötvaði þetta er
einn af þeim 300 þúsund starfs-
mönnum borgarinnar sem á á
hættu að missa atvinnuna.
SPÁ FALU
Þjóðfrelsishreyfingin fyrir
frelsun Angóla, FNLA, spáir þvi
að höfuðborgin Luanda, sem
andstæðingarnir -MPLA hafa á
valdi sfnu, falii i hendur henni
Isabel Peron Argentinuforseti
lætur ekki undan þrýstingi um að
segja af sér embætti.
i ellefu daga hefur hún dvalið á
sjúkrahúsl Hún fór þaðan i gær
til forsetahailarinnar undir
sterkri lögregluvernd.
Heimildir segja að leiðtogar
Rikisstjóri New York rikis
Hugh Carey og fleiri leiðtogar
rikisins og New York borgar fara
LUANDA
,,líkt og Saigon eða Pnom
Pehn”.
FNLA ræðst á leiðtoga
MPLA, Agostinho Noeto, fyrir
að halda að þótt hreyfing hans
allra flokka á þjóðþinginu hafi
krafist þess að Peron fari i fri eða
i óopinbera heimsókn til útlanda
fyrir næsta miðvikudag.
Fréttir herma að stjórnmála-
leiðtogar hafi samþykkt að stöðva
alla gagnrýni á rikisstjórnina
fram til miðvikudags. Þetta á að
til Washington i dag til viðræðna
við fjármálaráðuneytið um áætl-
un til að bjarga New York
hafi höfuðborgina á valdi sinu,
hafi hún þar með öll völd i land-
inu.
FNLA og þriðja þjóðfrelsis-
hreyfingin, Unita, hafa samein-
ast um að berjast gegn MPLA,
og hafa lýst yfir stofnun rikis i
Angóla.
gefa ráðherrum tóm til að sann-
færa Peron um að hún eigi að fara
frá. Ef þeim tekst það ekki ætla
andstæðingar stjórnarinnar
að krefjast læknisrannsóknar a
Peron til að ganga úr skugga um
hvort heilsa hennar leyfi henni að
gegna forsetaembætti.
William Simon fjármála-
ráðherra tekur ekki þátt i við-
ræðunum. En i viðtali i New York
Daily News sagði hann að sér
hefði snúist hugur og hann væri
ekki á móti þvi að borgin fengi að-
stoð.
Peron enn þrjósk
RÆTT UM NEW YORK
Jerúsalem:
RtYNA AO BJARGA
Læknar i Jerúsalem börðust i
morgun við að halda lifi i þeim
sem enn eru i Hfshættu eftir
sprenginguna sem varð i mið-
borginni i gær.
Sex fórust, og 42 særðust.
Sprengjan sprakk i gær um það
leyti sem verslanir voru að loka,
og götur voru krökkar af fólki að
fara i bió. Sprengingin varð að-
eins 50metrum frá hfæðilegustu
sprengingu sem orðið hefur i
Þtim sm
Jerúsalem. bað var þegar is-
skápur hlaðinn dýnamiti
sprakk, og 15 létu lifið.
Skæruliðasamtökin A1 Fatah
hafa lýst sprengingunni nú á
LIFÐU AF
hendur sér. Ar er nú liðið siðan
Yasser Arafat, leiðtogi samtak-
anna, hélt ræðu á allsherjar-
þingi Sameinuðu þjóðanna, við
geysigóðar undirtektir margra.
Stóraukin
bílasala í
Bandaríkjum
Stærstu bilaframleiðendur
Bandarikjanna tilkynntu i gær
að bilasala fyrstu tiu daga
þessa mánaðar hefði aukist
gifurlega.
Meðalaukningin miðað við
sama tima i fyrra er 40 til 50
prósent. General Motors seldi
111 þúsund bila, á móti 71 þús-
und á sama tima i fyrra.
American Mótors juku söluna
um 100 prósent, Ford 22 pró-
sent, og Chryseler 46 prósent.
Þetta þykir sýna að
bandarikjamenn eru að ná sér
upp úr efnahagslegum öldudal
og að 76 árgerðirnar njóta
mikilla vinsælda.
32 lœknar
annast Franco
32 læknar annast nú Franco
hershöfðingja, og reyna að
fresta dauðadaga hans.
Pedro Cuadrado erkibiskup
kom til Madrid i gær. Hann er
einn af þremur i ráði sem tek-
ur við völdum eftir dauða
Francos og þar til Juan Carlos
tekur við.
Lífskjör
Moskvubúa
batna
Smásöluverslun er sögð
hafa aukist i Moskvu um 26
prósent siðustu fimm árin. Er
það talið sýna glögglega
hversu lifskjör ibúanna hafa
batnað.
Sovéska fréttastofan APN
gefur upp að þetta sé aukning-
in ikrónu — eða rúblna — tölu.
Ekkert er um það sagt hver —
eða hvort — verðbólgan hafi
verið þennan tima.
Fegurðar-
drottningu
vísað frá
Grátur og gnfstran tanna
upphófst I London i gær, þegar
þátttakanda Suður-Afriku i
Miss World fegurðarsam-
keppninni var vfsað frá
keppni.
Hinni ljóshærðu Veru Johns
var vfsað burt vegna þess að
hún teldist ekki fullgildur Suð-
ur-Afrikubúi. Hún hefur búið
þar i 12 mánuði.
Ungfrú Kúba á yfir höfði sér
það sama. Hún kemur nefni-
lega ekki frá Kúbu heldur er
hún fulltrúi landflótta Kúbu-
manna I Flórida.
Úganda
segir Ijót
orð enn í
bók Hills
Úgandaútvarpið ásakar
Breta um að standa ekki við
gerða samninga sem leiddu til
þess að breski kennarinn
Dennis Hills var ekki tekinn af
lifi eins og til stóð á sinum
tima.
Einn aðalgrundvöilur þess
að Hills var látinn laus var sá
að hann tók orð sin til baka i
fyrirhugaðri bók. Nú segir
Úgandaútvarpið að i bókinni
sem væntanleg er á markað
siðár i þessum mánuði, sé
ýmislegt ljótt sagt um landið.