Vísir - 14.11.1975, Síða 14
14
Föstudagur 14. nóvember 1975 VISIR
LÍF OG UST UM HELGINA
Myndir eftir Ken Russeli hafa verib nokkuö tiöar á hvfta tjaldínu
i Tónabió. i hitteðfyrra var sýnd myndin Lif og iosti um Thaikov-
sky, um daginn Tommy og nú eru hafnar sýningar á Astföngnum
konum. Fyrr á þessu ári geröi Russell kvikmynd um Franz
Liszt, en hún heitir Lisztomania. Þar leikur Russell sjálfur nokk-
uð stórt hlutverk, en sá er leikur Liszt er Roger Daltrey, sá hinn
sami og lék Tommy.
Ástfangnar,
byssuglaðar
og naktar
konur í bíó
Siöan um siðustu helgi hafa
nær öll kvikmyndahúsin skipt
um kvikmyndir, svo nóg ætti að
vera að gera fyrir kvikmynda-
unnendur um helgina. Senniiega
veita mesta athygli myndirnar i
Stjörnubió, Emmanuelle, og
myndin i Tónabiói, Women in
love. Nýja bió er einnig með
athyglisverða kvikmynd.
Háskólabió hefur um skeið
sýnt myndina SPYS sem er
einskonar framhald af MASH.
Hún fjallar um tvo njósnara
sem CIA reynir að losna við en
þeir taka að starfa upp á eigin
spýtur. Myndin er sæmileg.
Laugarásbió hefur i dag
sýningar á karatemynd frá
Austurlöndum Karatebræðurnir
og er vafalaust mikið um áflog i
þeirri mynd og hátt stunið.
Kvikmyndahúsið heldur jafn-
framtáfram sýningum á Barns-
ráninu með Michael Caine i
aðalhlutverki, en sú mynd er
njósnamynd og hefur hlotið
nokkuð góða dóma.
Nýja bió hóf i fyrradag
sýningar á franskri gaman-
mynd, Ævintýri meistara
Jakobs og er sú mynd spreng-
hlægileg að þvi er segir i blaða-
auglýsingu. Að sögn er geysileg
aðsókn að myndinni.
Stjörnubió sýnir sennilega
enn um langa hrið myndina
Emmanuelle,frönsku stúlkuna,
sem bæði konur og karlar leita
ásta hjá. Eins og fram hefur
komið annars staðar er þessi
mynd ekki fyrir þá sem vilja
sjá klám, heldur fyrir þá sem
vilja sjá fallega mynd.
Austurbæjarbió endursýnir
Magnum force með Clint East-
wood i aðalhlutverki en þessi
mynd var sýnd áður i fyrra.
Hún er sögð hörkuspennandi og
ruddaleg. Eastwood er þó einnig
þekktur sem leikstjóri og eru
myndir hans venjulega algerar
andstæður þeirra mynda sem
hann leikur i sjálfur.
Bæjarbióhefur fengið til sýn-
ingar Sviðsijós Chaplins sem
var sýnd um daginn i Hafnar-
biói. Það er mynd sem enginn
ætti að láta fram hjá sér fara.
Auk þess sýnir kvikmyndahúsið
Zachariah, rafmagnsvetrann,
sem sýndur var i Laugarásbiói
við fremur litinn orðstir. Ekki
var ljóst, þegar þessar linur
voru ritaðar hvort hún yrði sýnd
fram yfir helgi.
Tónabió sýnir Ástfangnar
konur, gerða af Ken Russell,
þess sama og gerði myndina um
Tomrriy. í myndinni leika
margir þekktir leikarar, s.s.
Alan Bates, Oliver Reed, Jennie
Linden og Glenda Jackson sem
hlaut óskarsverðlaun fyrir sinn
leik. Myndin fjallar aðallega um
tvær systur sem búa i nöturleg-
um námabæ fyrr á timum og
greint er frá ástamálum þeirra.
Hafnarbió sýnir skotglaðar
stúlkur sem er að sögn fróðra
manna nokkuð spennandi
mynd. Hún fjallar um stúlkur á
ónafngreindri eyju, sem drepa
auðugan mann. Ein vill fé hans
til að fjármagna byltingu, önnur
til að verða sjálf rik og sú þriðja
drap manninn til að hefna sin á
honum. Myndin gengur siðan út
á samskipti þessara stúlkna, en
þær eru af þremur kynþáttum,
hvit, gul og svört.
— RJ
Kammermúsík lífgar
upp ó skammdegið...
Kammermúsikkiúbburinn
hefur nýtt starfsár sitt með
flutningi fiautusónata J.S.
Bachs á sunnudagskvöld kl. 9 i
Bústaðakirkju. Fiytjendur
verða Manuela Wiesler flautu-
leikari, Helga Ingólfsdóttir,
semballeikari og Pétur Þor-
valdsson sellóleikari. t fréttatil-
kynningu klúbbsins segir m.a.:
Flautusónötur Bachs eru tald-
ar meðal merkustu tónverka,
sem samin hafa verið fyrir
flautu. Nokkur óvissa rikir um
það hversu margar Bach samdi.
Þær hafa oft verið taldar sex.
Kammermúsikklúbburinn beit-
ir sér nú fyrir þvi að þær verði
allar fluttar hér, likt og hann
hefur gert um Branderborgar-
konsertog sellósvitur Bachs. Er
ráðgert að þær fjórar flautu-
sónötur sem eftir eru, verði
fluttar siðar á vetrinum. Eftir
nýár er ennfremur gert ráð fyr-
ir tónleikum sem helgaðir verða
kammertónlist eftir Brahms.
Við spurðum Guðmund Vil-
hjálmsson, form. Kammer-
klúbbsins, hve lengi klúbburinn
hefði starfað. Sagði hann að
Kammermúsikklúbburinn hefði
verið stofnaður 1957 og haft að
leiðarljósi að flytja kammer-
músik sem litið væri flutt i þessu
formi og auka jafnframt fjöl-
breytni i tónlistarlifi borgarinn-
ar. Sagði hann jafnframt að þeir
erlendu listamenn sem leikið
hafa á tónleikum þeirra, hafi
lýst undrun sinni á að grund-
völlur skyldi vera fyrir að reka
klúbb sem þennan hér i fámenn-
inu, þar sem slikar tilraunir i
stórborgum erlendis færu yfir-
leitt út um þúfur.
Stofnendur Kammermúsik-
klúbbsins eru auk Guðmundar
Vilhjálmssonar, þeir Magnús
Magnússon, Haukur Gröndal og
Ingólfur Asmundsson. Nutu þeir
aðstoðar þeirra Árna Kristjáns-
sonar og Björns Ölafssonar.
Hljómsveitin Dögg
kveður um helgina
BÖLL
Hótel Saga: A föstudagskvöld er
lokað vegna einkasamkvæma.
Hljómsveit Ragnars Bjarnason-
ar og Þuriður Sigurðardóttir
skemmta laugardag og sunnu-
dag og heldur Ferðamiðstöðin
skemmtikvöld fyrir alla sunnu-
dagskvöldið.
ÞAR
DUNAR
DANS!
Hótei Borg: Hljómsveit Arna
isleifs og Linda Walker
skemmta yfir helgina.
Tónabær. Júdas leikur föstu-
dagskvöld og Dögg leikur laug-
ardagskvöld og er það kveðju-
dansleikur hljómsveitarinnar.
Klúbburinn: Hljómsv. Guö-
mundar Sigurjónssonar og
Kaktus leika föstudag. Kaktus
og Exsperiment laugardag.
Dögg og Borgis sunnudag.
Sigtún: Pónik og Einar leika
föstudag og laugardag. A
sunnudagskvöld leika Drekar
fyrir gömlu dönsunum.
Glæsibær: Ásar leika öll kvöld.
Skiphóll: Hljómsv. Birgis
Gunnlaugssonar skemmtir.
Leikhúskjallarinn: Skuggar
leika föstudag og laugardag.
Lindarbær: Gömlu dansarnir.
Hljómsv. Rúts Kr. Hannessonar
og Jakob Jónsson.
Sesar og óðai: Diskótek.
Sveitaböll:
Ungó, Keflavik Haukar leika á
föstudagskvöld.
Festi, Grindavik. Paradis
á laugardag.
Hlégarður. Haukar og Kabarett
skemmta laugardag.
Borgarnesbió. Mexikó leikur á
laugardag.
Margt misjafnt skrif-
að um Hákarlasól....
Indriði G. Þorsteinsson segir 1
Visi m.a. um Hákarlasól:
„Þannig fer fyrir spámönnum, og
kannski sjáum við ekki listina
hreyfast i Hákarlasól E.E. Hall-
dórssonar vegna deyföar til höf-
uðsins”
blaðinu: „Oftar en ekki er þetta
vaðall þar sem sum skeyti hittu i
mark en önnur hurfu út i buskann
ásamt, að sjálfsögðu, þeim phall-
omanisku skirskotunum sem eng-
in leikrit virðast geta án verið á
þessu margþvælda kvennaári.”
Jónsson, Dagblaðinu, hafa orðið:
„Ég verð að kannast við það hisp-
urslaust, að ég skil ekki leikrit
Erlings Halldórssonar, Hákarla-
sól. Og það sem verra er: mér var
einhvern veginn ógerningur að fá
neinn verulegan áhuga á þvi hvað
höfundur vildi sagt hafa með
leiknum.”
Emil H. Eyjólfsson I Morgun- Að lokum skulum við láta Ólaf
Kristnihald undir Jökli
frumsýnt ó Akureyri í kvöld
Leikfélag Akureyrar
hefur nú sýningar á
Kristnihaldi undir Jökli
eftir Halldór Laxness
i sviðssetningu Sveins Einarsson-
ar, þjóðleikhússtjóra. Leikstjórar
eru þeir Sveinn Einarsson, Ey-
vindur Erlendsson og Gisli Hall-
dórsson sem jafnframt leikur
gestaleik á sýningunni i hlutverki
Jóns Primus. Leikmynd gerði
Steinþór Sigurðsson. Frumsýn-
ingin verður i kvöld kl. 8.30 og
næstu sýninar á laugardags og
sunnudagskvöld á sama tima.
Næsta verkefni Leikfélags Ak-
ureyrar er barnaleikritið Rauð-
hetta og hefjast sýningar á þvi
um áramótin.
LIIKHÚSIN UM HUGINA
Þjóðleikhúsið: Stóra sviöið. Car-
men, föstudag kl. 8. Sporvagninn
Girnd, laugardag kl. 8 Carmen,
sunnudag kl. 8.
Litla sviðið. Barnaleikritið Milli
himinsogjarðarkl. 3ogHákarla-
sól kl. 8.30.
Iðnó: Föstudag. Saumastofan kl.
8.30. Gul kort gilda. Laugardag,
Fjölskyldan kl. 8.30, fáar sýning-
ar eftir. Sunnudagskvöld, Skjald-
hamrar kl. 8.30.
Leikfélag Kópavogs: Bör
Börsson, laugardag kl. 3 og
sunnudagskvöld kl. 8.30.
Leikfélag Hafnarfjaröar :
Barnaleikritið Halló Krakkar
verður sýnt i Bæjarbiói kl. 2 á
laugardag og i Fellaskóla kl. 2 á
sunnudag.
Leikfélag Akureyrar: frumsýnir
Kristnihald undir Jökli i kvöld kl.
8.30 og verða sýningar á sama
tima laugardags- og sunnudags-
kvöld.