Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1938, Side 20

Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1938, Side 20
412 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS Guðm. G. Hagalín Viðureign við Franzmenn ú var alt tíðindalaust af ' Hjalta, nema hvað hann fór að læra frönsku hjá Magmisi Þorsteinssyni, síðar presti á Mos- felli, en þennan vetur las Magnús heima. Þótti Hjalta mjög- gaman að frönskunni. Á vertíðinni kom inn til Eyja frönsk skúta. Hún var hriplek, og sigldu skipverjar henni í land. Skipsmenn höfðust við í Eyjum mánaðartíma, og komst Hjalti í kunningsskap við skipstjórann og var með honum daglega, þegar ekki gaf á sjó. Æfði þetta Hjalta mjög í frönsk- unni. Svo vildi það til, sem hjer greinir: Á sumardaginn fyrsta var á- gætt veður, og reru allir bátar úr Eyjum, sem annars stunduðu sjó um vorið. Vertíð var lokið, og menn búnir að , grípa til smærri bátanna. Afli var sæmi- legur, eftir því sem gerðist við vorróðra, en annars hafði lítið aflast seinni hluta vertíðarinn- ar, og því var róðrum á stóru skipunum hætt óvenju snemma. Menn komu yfirleitt að landi um nónbil. Þá var þeim sagt það, að franskur kútter hefði komið undir Eyna og skotið út báti. Menn hefðu farið í land, beint upp í fjöll, þar sem fje Eyja- skeggja hafðist við, og gert það skiljanlegt, að þeir vildu fá keypta kind. En þeir, sem þeir áttu tal við, neituðu að selja. Fransmennirnir fóru svo um borð í skip sitt og sigldu á brott. Þeir fjelagarnir, Hjalti, Á- gúst og Stefán fóru nú austur á svokallaðan Skans, sem hlaðinn hafði verið eftir Tyrkjaránið mikla í Vestmannaeyjum. Þeir sáu þá, að franska skútan hjelt sig í nánd við Elliðaey. Stefán var nú þegar í stað sendur eftir sjónauka vestur í svokallaða Brydestofu, en þar var altaf hafð Hjalti Jónsson. ur ágætur sjónauki, sem Eyja- skeggjar alment höfðu aðgang að, og var svipast með honum eftir skipum, sem á sjó voru, og ennfremur var hann notaður, þeg ar skygnst var eftir fje í fjöll- um og Úteyjum. Stefán var ekki lengi að sækja sjónaukann, og sáu þeir það þeg ar í stað, fjelagarnir að menn voru uppi á Elliðaey, og voru þeir að elta fje. Þeir fjelagar skiptu sjer nú. Stefán og Ágúst skyldu safna liði, en Hjalti fara til sýslu- manns, Jóns Magnússonar, og til kynna honum, hvað fram færi í Elliðaey. Hjalti hitti sýslumann og tjáði honum þegar, hvað væri um að vera. Sýslumaður bað Hjalta fara og athuga, hvem- ig þessu væri varið. Mætti sögu '(Elcl- 'alta skrdð hans sjdlfs hann taka franska skip- ið með valdi og fara með það til Eyja, ef það kæmi í ljós, að Fransmennirnir hefðu drepið kindur eða skemt mannvirki í Elliðaey — en þau voru reyndar ekki önnur en kofi einn ómerki- legur, sem fuglatekjumenn höfð- ust við í, þegar þeir voru að fuglaveiðum í eyjunni. — Má jeg hafa byssu með? — Já, sagði sýslumaður. — Má jeg skjóta, ef mjer finnst ástæða til? Sýslumaður hugsaði sig svo- lítið um, og Hjalti bætti við: — Ja, jeg á við, ef við eigum líf og limi að verja. — Já, sagði sýslumaður, og það mjög ákveðið. — En ekki nema borin sjeu á ykkur vopn að fyrrabragði, og þess verðið þjer að gæta, eins og unt er, að þjer skjótið ekki nema í útlimi. Hjalti beið nú ekki boðanna, en kvaddi sýslumann og hentist út. Hann þaut þangað, sem hin stóru skipin voru í hrófum, og var það jafnsnemma, að hann kom, og að tuttugu og fjprir vaskir menn voru safnaðir sam- an um stærsta skipið, Gideon. Formaður skipsins, Hannes Jóns- son hafnsögumaður, var þama ekki, en aftur á móti Jón hrepp- stjóri í Dölum, sem stjóma skyldi förinni, þó að svo færi raunar, að annar segði fyrir um öll stór- ræði.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.