Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1938, Síða 22

Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1938, Síða 22
414 friði, en Fransmennirnir láta af hendi tvær tunnur af kexi, tvær af kartöflum og tíu færi. En skipseigandi sagði þvert nei og sat hinn fastasti við sinn keip. Hjalti hafði horfið frá því, að láta Fransmann þann, sem grip- ið hafði hnífinn, fara upp á skip ið og tala við fjelaga sína. Hon- um datt í hug, að þar sem hann hefði sýnt hina fylstu ófyrir- leitni, þá væri síst á það að ætla, hvað hann kynni að leggja til mála við hinn drukna skipseig- anda, sem líklegur var til þess að þiggja hin verstu ráð. Hjalti af- rjeð því að fara yfir í Gideon, sækja þangað annan Fransmann og bæta við sig liði. Og alt í einu vatt Hjalti sjer út að öldustokknum og ofan í bátinn. Svo var ýtt frá í snatri og róið að Gideon. Þar valdi Hjalti til viðbótar fjóra röska menn og Fransmann, sem var við aldur, stillilegur og auðsæilega mjög kvíðandi um það, hvernig fara mundi. Því næst var aftur róið að skútunni frönsku. Hjalti fór upp á skipið og hleypti upp með sjer Fransmannin- um, sem hann hafði sótt. Hjalti greip þegar í stað brenni- rengluna, sem þeir skip- stjóii og skipseigandi höfðu lát- ið liggja þarna á sama stað. Munu þeir hafa varið tímanum, sem Hjalti var í burtu, til orða- kasts sín á milli. Hjalti sagði nú skipseiganda það afdráttarlaust, að hann mundi taka skipið með valdi og fara með það til hafnar, ef ekki kæmu einhverjar bætur fyrir þann ójöfnuð og þá tilraun til sauðaþjófnaðar, sem Frans- mennirnir höfðu sýnt. Það var nú minni móðurinn en áður á skips- eiganda, og vjek hann sjer til skipstjórans, sem stóð á tali við Fransmann þann, sem Hjalti hafði sótt og hleypt upp á skipið. Sá Hjalti það útundan sjer, að hásetinn talaði við skip- stjóra hljóðskraf með miklu handapati og ranghvolfdi í sjer augunum til þess að gera ræðu sína áhrifameiri. Þegar skipseig- andi kom til skipstjóra, vjek há- setinn frá, en ekki fór hann til hásetaklefa. Ekki voru aðrir LESBÓK MORGUNBLAÐSINS menn á þiljum en þessir, en öðru hvoru skaut höfðum upp úr há- setaklefa og káetu. Var auðsjeð, að hásetar vildu halda sjer sem Jcngst frá þeim Jeik, sem fram f.ór á þiljunum. Hjalti gek\ nú út að öldu- stokknum og sagði mönnum sín- um að fara yfir í Gideon og biðja Jón hreppstjóra að koma á skip- inu, því Hjalti þóttist nú sjá, að draga mundi til endanlegrar á- kvörðunar á annan hvorn veginn. Var Hjalti staðráðinn í því að taka skipið með valdi, ef skips- eigandi ljeti ekki eitthvað af hendi sem bætur fyrir þjófnað- artilraunina og þá fyrirhöfn, sem þeir Eyjaskeggjar höfðu af þessu haft. — Ætlar þú að verða einn eft- ir um borð? spurði Ágúst Gísla- son. — Það er öllu óhætt, sagði Hjalti. — Þeir eru nú held jcg að spekjast, og ólíklegt þykir mjer, að það verði ofan á, að sigla með mig, en skilja fimm af skipshöfninni eftir. Jú, þeim sýndist þetta líka, mönnum Hjalta, og svo fóru þeir á ný yfir að Gideon, sem beið við Elliðaey. Rjett eftir að þeir voru farnir, gekk skipseigandi til ká- etu, og kom hann ekki upp eftir það, meðan Hjalti var á skips- fjöl. Skipstjóri lofaði svo því, að láta það sem bætur, sem áður var orðið umtalað milli þeirra Hjalta, en sagðist svo vænta þess, að Hjalti stæði við það lof orð, að sleppa skipinu. Jú, Hjalti sagði, að ekki skyldi hann bregðast. Gideon og skipsbáturinn lögðu nú báðir að hlið skútunnar, og stukku þegar upp tíu Vestmanna evingar. Hjalti sagði við skip- stjóra, að nú kæmi til að standa við það, sem samið hefði verið um þeirra á milli. Skipstjórinn var heldur tuskumenni, og skalf hann og nötraði og sagði, að sjer þætti vont að missa brauðið. — Það er ekkert undanfæri, sagði Hjalti. — Þið verðið bara að gjalda gerða ykkar. Skipstjóri sagði ekki neitt, en skalf eins og áður og skotraði augunum til hinna ungu og þrótt miklu Vestmannaeyinga, sem voru auðsýnilega til alls búnir, því þeir voru að smáhreyfa hend urnar, eins og þá langaði til að taka á einhverju, og litu títt til Hjalta. Hjalti skipaði nú Fransmann- inum, sem hann hafði slept upp, að opna lestina, fara niöur og rjetta það upp á þilfarið, sem Hjalti segði honum. Sá franski, sem verið hafði votur í fætur, var kominn á sokkaleistana, en hann skaust ofan 1, eftir skipun Hjalta, svo fljótt og fimlega, að furðu gegndi um þó ekki yngri mann. Það var eins og æðsti for- ingi í sjóliði Frakka væri að skipa honum fyrir verkum. Rjetti hann upp tunnur þær, sem um hafði verið talað milli Hjalta og skipstjóra, og hurfu þær í bátinn. En enn þá barmaði skip- stjóri sjer yfir missi kexins, og hyggur Hjalti, að skipseigandi hafi lagt svo fyrir, að hann skyldi ekkert af kexinu láta. Þá komu upp fjórar hankir af fær- um og hurfu yfir öldustokk skút- unnar og ofan í Gideon. Síðan sagði Hjalti við menn sína: — Þið hafið ekki annað að gera en taka færin, sem liggja þarna á vaðbeygjunum og skjóta þeim ofan í bátinn. Þeir voru fljótir til að gera það, sem fyrir þá var lagt. Því næst kvaddi Hjalti, og svo var farið af skipsfjöl, föngunum hleypt upp, fangalínu skipsbáts- ins fleygt yfir öldustokkinn og haldið heim á leið. Það var fljótt að fjölga á þilj- um skútunnar frönsku, þegar Vestmannaeyingarnar voru farn- ir. Voru forsegl dregin upp, og siglt af stað. Þegar þeir Hjalti höfðu stutt farið, mættu þeir fullmönnuðu skipi úr Eyjum. Þar var Jón Magnússon innanborðs, klæddur sínum einkennisbúningi. Hafði honum þótt draga í tímann fyrir þeim Hjalta og þótt vissara að vita, hvað liði. Hann jiafði fim- tán menn með sjer. Bæði skipin hjeldu nú til Eyja, og sagði Hjalti sýslumanni frá öllu, sem fram hafði farið. Var sýslumaður hinn ánægðasti með

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.