Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1938, Page 24

Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1938, Page 24
416 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS Eyjólfi Lands-höfðingja LLIR íslendingar, sem komnir eru til vits og ára, kannast við Eyjólf Guðmundsson í Hvammi í Landssveit, sem fyrir löngu hlaut viðurnefnið „Landshöfðnigi“ Hann ei x amlega áttræður að aldri, fæddur 3. des. 1857. Hjer um daginn heimsótti jeg Eyjólf austur í Hvammi og spjallaði við hann um stund. Hann kom á móti mjer, þegar bíllinn rann í hlaðið, glaðlegur, ljettur í spori af áttræðum manni að vera. Hann er maður afburða þreklegur að vallarsýn, þjettvax- inn allur og vöðvamikill. Ber svipurinn og fram- ganga mannsins merki skapfestu og stillingar, sem af ber. Þegar hann fer að tala um sín hugðarefni, þá birtir einkennilega yfir andliti hans. — Jeg veit, sagði Eyjólfur, þegar við vorum komnir í hina björtu og rúmgóðu skrifstofu hans, að þú ert . kominn hingað til þess að skrifa eitthvað um mig. En jeg skal segja þjer nokkuð. Jeg vil helst að sem minst sje um mig talað. Því mjer þykir illt að geta ekki haldið áfram. Þegar hann nefndi að „halda áfram“, átti hann auðsjáanlega við, að halda áfram, að vera stjórnandi og leiðbeinandi í málefnum sveitarinnar. Því það mun óhætt að fullyrða, að enginn einn maður í Lands sveit á meiri þátt í því en Eyjólfur, hvernig sveit- in sú er nú setin og hvernig mönnum búnast þar. ★ Eyjólfur Guömunds8on í Hvammi á Landi. Við fórum að tala um sand- græðsluna í Landssveit. Menn, sem ekki hafa verið í Rangárvallasýslu, og ekki hafa sjeð viðurstygð eyðileggingarinn- ar þar af sandágangi, eiga erfitt með að gera sjer grein fyrir ógn um og skelfingum, sem bændur hafa þar átt yfir höfði sjer, þeg- ar heilar jarðir gátu farið í flag á fám dögum. — Jeg var einu sinni á ferð hjerna fyrir austan Skarðsfjall, sagði Eyjólfur. — Það var um hásumar í heiðríku veðri. Jeg var að gamni mínu lengi að at- huga, hvort nokkuð vottaði fyrir því, hvar sólin væri á loftinu. En það voru engin tiltök. Svo svart- ur var sandbylurinn. . En, — ef það á að fara að dreifa mjer eitthvað við þessa sandgræðslu hjer, þá verður að geta um marga fleiri, sem þar koma við sögu. — Þú byrjaðir þó á barátt- unni gegn sandgræðslunni. — Það kann að vera. Þ. e. a. s. jeg var um fermingu, er jeg eitt sinn fór framhjá Reykjum á Skeiðum og sá, hvernig alt var þar komið í auðn umhverfis tún ið. En túnið sjálft hjelt sjer, og sá jeg ekki betur en það væri vallargarðurinn, sem skýldi því. Þannig sýndist mjer að hlaða mætti fyrir sandinn. En þegar jeg fór að tala um þetta hjer, var hlegið að mjer, og það mikið. Að jeg skyldi halda, að hægt væri að hlaða fyr ir sandinn, sem flýgi yfir hæstu fjöll. Þetta var talin hin aumasta vitleysa. Við fórum samt að reyna að hlaða í skörð rokbarðanna. Og þegar þetta bar sýnilegan árang- ur, voru það margir, sem þótt- ust hafa byrjað á því á undan mjer og vildu hafa heiðurinn af því. Þeim var það velkomið. En hver sem upphafsmaðurinn var, þá er eitt víst, að við, sem unnum að því fyrst að hlaða grjótgarða fyrir fokskörð og stinga niður rokbörð, við vorum hafðir að háði og spotti, fyrir að leggja á okkur þessa erfiðu og fatafreku vinnu. Svo kom hjer Sæmundur Eyj-

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.