Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1938, Síða 27

Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1938, Síða 27
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 419 Á heimili Sveins Björnssonar sendiherra 1. des. síðastliðinn er fullveldi Islands varð 20 ára. — Talið frá vinstri: Sveinn B'jörnsson, Stauning, for- sætisráðherra, frú Georgía Björnsson, frú Elna Muneh og P. Munch utan- ríkismálaráðheiTa Dana. risu upp frá undirlaginu, og það svo hátt, að á köflum steyptust þær fram yfir sig og niður á flatirnar. Þar sem við höfðum verið fyrir stundu síðan að taka saman hey, þar skall ein torfan yfir. — Stóðst nokkur bygging þessi ósköp? — öll torfhús í sveitinni eyði- lögðust, en timburhús stóðu. Þau voru fá. Kirkjan á Skarði stóð, en skekktist á grunni, og Ijósa- hjálmarnir brotnuðu og það, sem lauslegt var þar inni. ★ Jeg var nýlega búinn að byggja hjer timburhús og hlaða und ir það grunn, hjelt Eyjólfur á- fram. Torfveggir stóðu því til skjóls á tvo vegu. Torfið og grjótið fór alt í hrúgu, og steinarnir, sem neðstir voru, lentu ofarlega í byngnum. En hússkrokkurinn skoppaði of- an í hrúgaldinu. Jeg man eftir því einn morg- un, þegar einna verst var, og alt fólkið hljóp út, nema ein gömul kona og jeg. Gamla konan komst ekki svo glatt niður stigann, og jeg tafðist við það að bjarga barni, sem var uppi á lofti. Jeg þreif barnið í fangið. Ekki var stætt á gólfinu. Jeg kastaði mjer upp í rúmflet, sem þar var. Átti jeg fult í fangi með að verja barnið áföllum, að það hentist ekki út í vegginn, eða upp í súð- ina. Eftir viku hafði okkur tekist með ljelegum verkfærum að rjetta húsið og koma því á grunn að nýju, nema hvað grindin hafði skekst— gengið úr fölsum, svo ekki var hægt að laga það, nema rífa húsið að miklu leyti. Slíkt kom ekki til mála. En svo kom eitt sinn mikill kippur frá vestri. Það var þá, sem bæirnir hrundu sem flestir í ölfusinu. Þá small grindin í fölsin aftur, og húsið rjettist úr geiflunum. Og þannig stendur það enn í dag. — Voruð þið ekki lengi að ná ykkur eftir alt jarðskjálftatjón- ið? — O-nei. Mikið samskotafje kom til styrktar mönnum við byggíngarnar, og handverks- menn úr Reykjavík, til að hjálpa til. Tíðin var góð, og menn komu sjer upp bráðabirgðaskýlum fyr- ir veturinn. Verst, að sú vinna, sem fór í það um haustið, varð ekki til frambúðar. Því að alt varð að reisa frá grunni, er vor- aði. Þó eitthvað lítið hengi uppi af bæjarhúsum, var ekkert gagn í því. Eins og í Skarfanesi. Þar var eitt bæjarþil uppi standandi, er gömul kona frá Yrjum kom hlaupandi þangað og varð að orði, er hún sá þilið: ,,Guði sje lof, að guð er hjer, því ekki var hann í Yrjabaðstofunni". En sem sagt. Þetta var ekki eins mikið áfall fyrir okkur og harðindin 1882, þegar bústofninn kolfjell svo að segja. ★ að myndi verða Iangt sam- tal, ef hinn áttræði bændahöfðingi ætti þar að segja alla sína merkilegu sögu. Mjer er sem jeg sjái hann 25 ára gamlan koma alla leið sunnan úr Bjóluhverfi og upp í Hvamm með heytugguna handa einu kúnni sem uppi stóð ,,í flag- inu“, eða þegar hann tvítugur í fyrsta sinn sá reiknað á rúm- fjöl, eða þegar hann var kos- inn oddviti og hann gerðist, með þeirri reynslu-þekkingu sem hann. hafði, foringi sveitar sinnar og hóf það starf sitt að gera Hvamm að höfuðbóli. Eitt sinn fór hann að vetrar- lagi í frosti með lest yfir Þjórsá á Nautavaði s^okölluðu. Er skamt var komið út í ána var að snarast af einum baggahestin- um. Fátæk ekkja átti það sem á hestinum var. Eyjólfur fór af baki í ánni og lagaði á hestin- um, en misti af reiðhesti sínum og varð að Vaða ána í frostinu. ,,Það bjargaði lífi mínu, að jeg var á stígvjelaskóm“, sagði hann, „annars hefði jeg ekki getað fótað mig á flughálu grjótinu í ánni“. Það eru víst ekki margir, sem vaðið hafa Þjórsá, hvorki fyr nje síðar, enda mun það á fárra manna færi að feta í fótspor Eyjólfs í Hvammi. En vel væri það, ef verk hans og áhrif fengju að „halda á~ fram“, eins og hann komst að orði, að gera gagn, sveitungum hans og þjóð, með því að þau geymdust sem glegst í endur- minning manna. V. St.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.