Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1939, Page 6

Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1939, Page 6
398 LESBÓK MORGTTNBLAÐSINS okkur til þess að fá að fylgja okk- ur um bæinn. Var þar bæði fót- göngulið, eins og á Austurlönd- um, en auk þess fjöldi stríðsvagna með herfilegustu bikkjum fyrir og svo loks „vjelahernaður“ í mynd og líking bílskrjóða. Allir vildu fá að teyma okkur eða aka okkur um þessa merkilegu staði. Prófessor Laserson var um stund dálítið veikur fyrir þeim. Hann talaði líka ýmisleg mál, sem þeir skildu. En tíminn A’ar til allrar lukku of naumur, og við ákváð- um, að taka borgina „á löpp“, og gengum liátíðlega inn um bið aldna hlið. * Það voru mikil viðbrigði að koma inn fyrir þennan feikna borgarmúr. Þar tók við gamallegur og á- kaflega fátæklegur borgarhluti. Húsin voru ræfilsleg og alt skitið og krókótt. Torg var þar, með brunni að mig minnir. Þetta var hverfi Múhameðsmanna, og minar- rettur sáust þar á stöku stað sperra sig upp úr kösinni. Þetta hefir víst samt verið einhver að- algata, því að allstaðar voru búð- ir með ómerkilegum varningi. En þegar við höfðum gengið um stund fóru göturnar heldur en ekki að þrengjast og verða skugga legar. Ekki var þó fólkið síður skuggalegt. Karlar og kerlingar sátu þar eða rjátluðu um og gutu augunum illilega til okkar. Krakk arnir báðu varla einu sinni um aura, svo illur bifur stóð hjer af okkur. Og þegar gatan fór sí- versnandi töldum við ráðlegast að snúa við, og vita hvort við kæm- umst ekki til baka. Skal jeg ekki segja, hvort við fórum sömu göt- ur aftur, en eftir góða stund könn uðumst við við umhverfið, og kom- umst þá von bráðar að borgar- hliðinu mikla. Svona var hún þá þessi Rhodos, þar sem skrumarinn þóttist hafa gert hið mikla heljarstökk. Hún var miklu líkari því, að þar ætti að liggja í kör eilíflega. En þá var að prófa aðra átt Gengum við þá norður með múrn- um, og þar komum við í miklu skárri borgarhluta, nokkumveg- Borgarhliðið á Rhodos. inn að Evrópusið. Fórum við þar gegnum borgarmúrinn, landmegin, yfir afarbreitt borgarsíki, innan um hrúgur af fornum fallbyssu- kúlum úr steini, og komum þá á mikið ávaxtatorg. Þar ruku farþegamir í það að kaupa ávexti, því að heldur þótti nísku kenna um þá hluti á skip- inu. Og þarna var nóg hægt að fá! Þvílík lifandi undur. Ef þær hrúgur væru komnar hjer á Lækj- artorg. Og fyrir það verð. Jeg er aldrei mjög ginkeyptur fyrir á- vöxtum, en til þess að vera ekki út úr öllu tók jeg sem svaraði einni krónu og bað um vínber. Jeg fjekk svo stóran poka, að jeg var ekki búinn úr honum þegar jeg kom til Ítalíu. Jeg get hugs- að mjer þröngina hjer, ef þetta byðist. Eftir þetta löbbuðum við klyfj- uð ávöxtum áleiðis til skipsins, því að nú leið að brottfarartíma. Kastalinn gnæfði með turnum sín- um og tindum lijer rjett fyrir of- an. Hann sýnist vera alveg eins og nýr, enda kvað ítalska yfir- stjórnin hjer hafa þar aðsetur sitt og skrifstofur. Alt er hjer stórt og mikilfenglegt, sem er frá liðna tímanum. En alt heldur vesaldar- legt af því, sem við sáum, frá nú- tímanum — nema ávaxtahrúg- urnar. ★ Og svo var haldið af stað. Nú var hjer komið annað stórskip á lægið. „Theophile Gautier" stóð á því. Bærinn er langfallegastur að sjá hjeðan utan að. Óhreinindin sjást ekki og húsakösin leynist, karlarnir og kerlingarnar eru í hvarfi. En hjeðan sjást múrarnir með skörðum sínum og turnum, ljósleit hús og háir, grannir mina- rettar. Bak við er skógur og síð- an hæðir — alt „makalaust pent“. Þegar Galílea skríður norður með og kemst fyrir hafnargarðinn mikla með mjóa vitanum, kemur í ljós önnur höfn, miklu fallegri en hin. Hún er víst ný og þar eru stórhýsi í landi, hlaðin úr mis- litum steinum í fallegum litaflöt- um. Fyrir höfninni eru langir hafnargarðar og sín súlan á hvor- um garðenda. Uppi á annari er varginjan rómverska, en á hinni er hjörtur með miklum hornum, bæði logagylt. Það er ítalskt — gæti næstum því staðið við Pia- zettuna í Feneyjum. En fallegust er snjóhvít bað- strönd, sem er hjer á nyrsta odda evjarinnar og sjórinn þar fram undan. Hann er í öllum litum frá ljósgulu niður í purpurarautt, í undarlegum surrealistiskum rönd- um. Það er haldið vestur með. Knidos-nesið kemur brátt í ljós, suðvesturangi Litlu-Asíu. En síð- an er opið Eyjahafið fram und- an — Arkípelagus — og Grikk- land á morgun. Mjer datt í hug vísan, sem Þor- steinn bróðir minn orti á sínum ungdómsárum um Alexander mikla, og fleyg er orðin: Arkipela- yfir gus öðling sigla náði, svo á omní- einum bus ók á Persaláði. Um kvöldið þegar dimt var orðið söfnuðust menn saman á þil- farinu og horfðu á Bíó. Veðrið var unaðslegt. Á Ijereftinu var nýmóðins reyfari. En ef litið var út af borðstokknum sást bjarm- inn af tunglinu á glitrandi bláum haffletinum, en dularfullar kletta- eyjar svifu framhjá, eyjar Odys- sevskviðu. En það er önnur saga.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.