Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1939, Qupperneq 16

Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1939, Qupperneq 16
408 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS SkemtiferSafólkiS á Lœkjartorgi, er það kom úr Geysisförinni. Myndin tekin í vestur, eftir Austurstraeti. Lengst til vinstri á myndinni er Geir Zoega. Nr. 8 frá vinstri er Mrs. Burns, og þar næst Mr. Burns, en Anthony Trollope er sjötti maður frá hægri, hvítskeggjaður maður á gráum hesti. Hann var þyngstur allra í förinni, og hefir því sennilega verið valinn handa honum stólpagripur sá, er hann lýsir og honum fjell ekki við. ólga í hvernum oftar en einu sinni, að skálin tæmdist. Kemst höf. að þeirri niðurstöðu, að enda þótt hverirnir þarua hafi þótt merkilegir, er menn fundu þá fvrst, þá sjeu hverir Nýja Sjá- lands snögt um tilkomumeiri. En þar hafði hann verið. Nú sjeu Haukadalshverirnir orðnir ,,annars flokks“ hverir í heiminum. Aðal skemtunin var að láta Strokk gjósa. En Strokks-gosi lýs- ir Trollope á þessa leið: „Geysir annar“ hefir fengið nafnið Strokk ur. Strokkur er ljótur og illa út- lítandi, en hlýðinn hver. Hann hefir enga hveraskál með sjóðandi vatni eins og Geysir I., er ekki annað en sjö feta víð hola, og er hægt að ganga alveg út á barm- inn og heyra krauma og sjóða eins og í katli niðri í hvernum. T „katli“ þessum er leðja og óþverri. En vatnið í Stóra Geysi er blátært. Þessi Geysir „annar“ gýs ef hann fær sinn ákveðna skamt af fæðu. Vaninn er að flytja vagnhlass af torfi og mold að hvernum og ryðja því öllu ofan í hann í einu, hvort. sem hvernum líkar þessi inngjöf betur eða ver. Nú sýður og vellur í honum hálf- an tíma, þangað til hann kastar öllu upp úr sjer með gauragangi og spýtir um leið ríkulega sjóð- andi kolmórauðu vatni í alt að 60 feta hæð. Er áliðið var næsta dags var lagt af stað til Þingvalla, og komið þangað kl. 3 um nótt. Þá voru tjöldin og annar farangur ekki kominn þangað, svo alt ferða- fólkið fjekk að sofa í kirkjunni. Segir Trollope frá ókyrð, sem hafi orðið þar um nóttina, er gestirnir voru smeikir um að hefði getað reitt prestinn til reiði. En það var ekki. Presthjónin voru hin alúð- legustu við þessa gesti staðarins alt til skilnaðarstundar. Þannig var háttað gisting í kirkjunni, að kvenfólkið svaf inni í kór, en karlmennirnir á kirkju- gólfinu, eins og sjest á meðfylgj- andi mvnd. En konurnar urðu gáskafullar í kórnum, og komust ekki út og inn um kirkjuna, nema að fara alt torleiðið yfir bekkina. Kirkjuklukkum var líka hringt, þrátt fyrir ströng fvrirmæli um að raska ekki svefnfriði. Daginn eftir voru Þingvellir skoðaðir að nýju, og um nóttina farið til Reykjavíkur. Þangað var komið kl. 6 að morgni og þá tekin ljósmynd af öllum hópnum í Lækj artorgi, og þótti vel takast af svo mörgum mönnum á hestbaki. Síðan hjelt þessi frðamannahóp- ur út í skip sit.t og heim til Eng- lands. Hermir ferðasaga Trollopes lítið um það, sem gerðist í heim- ferðinni. Oorsteinn Erlingsson FRAMH. AF BLS. 403. Daginn sem við fórum færði sr. Kjartan honum þessi erindi, þar sem hann þakkaði Þorsteini kom una og veruna með þessum orð- um: Af visku, kærleik, von og trú, jeg veit mig oft svo nauða snauð- an. Vikan þessi varð mjer drjúg, að viða í þetta sultarbú. Okkar á milli er einhver brú, sem endist spái’ jeg fram í rauðan dauðann. Mér fanst mig vanta björg í bú og blómin kala, sem jeg reyni að yija. Til mín erindi áttir þú, alt er í blóma hjá mjer nú, sumarvonir, sólskinstrú sendirðu öllum er þig vilja skilja. „Jeg er að vona, að kvæði Þor- steins eigi eftir að senda mörg- um yl og sólskinstrú í framtíð- inni“, segir Guðrún. Að svo mæltu hvarf jeg á brott úr þessu húsi endurminn- inganna, út í götuysinn og dag- lega lífið. V. St.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.