Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1939, Síða 21
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
413
kongsins Kaupmannahöfn, jafn-
vel svo að hann hafi verið þrot-
inn að heilsu þegar hann kom
heim og verið orðinn geðbilaður
að einhverju leyti, en foreldrar
hans höfðu bæði orðið þunglynd
og geðtrufluð átímabili æfi sinn-
ar, svo að ekki átti hann langt
að sækja þetta. Honum hefir
líka eflaust, verið þungt í skapi
út af afskiftum foreldra sinna
og þá einkum móður sinnar, af
ástamálum sínum. Jeg hefi áður
getið þess, að honum var meinað
að eiga Guðrúnu er hann
elskaði með öllum funa fyrstu
æskuástarinnar og svo var hon-
um aftur synjað um að mega
eiga Þórunni, sem hann líka
elskaði og var orðin vanfær af
hans völdum. Það bættist svo
enn ofan á, að móðir hans, Val-
gerður biskupsfrú, varmeð fyrir-
ætlanir um að láta Jón eiga ein-
hverja hefðarmey, sem hann
hvorki vildi sjá nje sinna. Þetta
alt lagðist svo þungt á viðkvæm-
an hug hans, að á hann sótti
þunglyndi og hugarvíl, sem náði
svo föstum tökum á honum, að
hann sá ekki aðra úrkosti, en að
gera enda á lfi sínu.
Það var 4. febrúar 1719, að
þessi gáfaði og glæsilegi ungi
maður rjeði sjer þannig bana, að
hann tók inn eitur og andaðist
í kjallarabaðstofunni á Hólum.
Sagan segir, að eitrið, sem hafi
verið skeiðvatn, hafi ekki verk-
að snögt á Jón, svo að hann hafi
sjeð sig um hönd eftir að hann
var búinn að taka það inn, og
þá hafi hann beðið um að fá að
drekka nýmjólk úr þrílitri kú,
sem var í fjósinu á staðnum, því
að það var gömul trú að mjólk
úr slíkum kúm hefði mótverk-
andi áhrif á eitur. Jón fekk ný-
mjólk að drekka, en það hjálp-
aði honum ekki, eitrið hafði þeg-
ar gripið hann heljartökum, og
dó hann svo drotni sínum.
Þeirri ótrúlegu sögu komu
illgjarnar tungur á loft eftir
dauða Jóns, að móðir hans hafi
orðið þess valdandi, að hann
fengi ekki að drekka mjólk úr
þrílitu kúnni. Biskupsfrúin hafði
átt að tefja fyrir því, að lyklarn-
ir að fjósinu fyndust ekki fyr en
seint og síðar meri og svo þegar
mjólkin kom, átti hún að hafa
skift um fötu og látið Jón son
sinn drekka venjulega kúamjólk
af því að hún hafi heldur viljað
að hann dæi, en ætti Þórunni,
sem henni þótti ekki nógu tigin
og göfug til þess að verða
tengdadóttir sín.
★
Þannig urðu það óblíð örlög
þessa glæsilega læknis og lista-
manns, að deyja aðeins 23 ára
gamall, saddur lífdaga. Steini
biskupi fjell afarþungt fráfall
sonar síns, enda var hann öllum
harmdauði, sem honum höfðu
kynst.
Til er prýðileg olíumynd af
Jóni Bergmann, sem máluð hef-
ir verið á Hafnarárum hans og
sjer þar á, að hann hefir verið
glæsilegt snyrtimenni. Hann er
þar með vel greidda hrokkna
hárkollu að þeirra tíma sið, með
hvítt hálsbindi, í rauðum skar-
latskyrtli og ljósblárri silki-
skykkju. Allur svipur hans og
yfirbragð ber órækan vott hins
siðfágaða hefðarmanns. Mynd
þessi hekk tvær aldir í dóm-
kirkjunni á Hólum, við hliðina
a olíumynd af föður hans, Steini
biskupi, en nú er hún komin
hingað suður og er á Þjóðminja-
safninu.
Þess skal að lokum getið, að
Jóni Bergmann var fleira til lista
lagt, en læknishæfileikarnir. —
Hann var ágætt skáld og eru
mörg falleg kvæði til eftir hann,
svo sem mansöngur o. fl.*)
*) Not.: Præ. Sighv. Blanda III. o. fl.
« fl.
Skák.
Alþjóðaskákþingið í Argentínu.
Hvítt: Einar Þorvaldsson (ísland)
Svart: Holowach (Kanada).
1. d4, Rf6; 2. Rf3, dð; 3. c4, e6;
4. Bg5, Be7; 5. Rc3, 0—0; 6. e3,
Rbd7; 7. cxd, (Einar ljek þetta
afbrigði á móti Argentínumann-
inum Pleci og Iranum Nash og
báðum með góðum árangri. Stað-
an verður einföld, en mjög erfið
og vandasöm á svart) 7...exd;
8. Dc2, He8; 9. Bd3, Rf8; 10. h3,
c6; 11. 0—0, Re4; 12. Bf4, Bd6?;
(Tapar peði. Betra var 12.....
Rd6; eða jafnvel f5, sem er þó
enganveginn fallegur leikur) 13.
RxR, BxB; 14. pxB, pxR; 15.
Bxe4, Be6; (Ef 15....Dd6; get-
ur hvítt að vísu ekki valdað peð-
ið á f4, án þess að gefa annað
peð, en hins vegar getur hvítt þá
leikið 16. f5, og biskupinn á c8
er mjög illa settur) 16. Hfel, Bd5;
17. g3, BxB; 18. HxB, Dd7; 19.
Kg2, Dd5; 20. He5!, HxH; (Ef
20 ....Dd7; þá 21. De4, og hvítt
nær annað hvort uppskiftum á
þungu mönnunum eða sjöundu lín-
unni) 21. dxll!, (Hvítt liefir nú
5 peð á móti 3 kongsmegin og
nær þar af leiðandi sóknarstöðu)
21 ....Hd8; 22. Db3, Dd7; 23.
Hel, Re6; 24. Dc3, c5; 25. De4,
Db5;
26. f5!, Rd4; 27. e6!, pxp; 28.
RxR, pxR; (HxR virðist ekki
betra) 29. Dxp+!, Kh8; 30. f6!,
g6; 31. f7 (Fljótvirkara var 31.
De7, Hg8; 32. f7, og ef svart
bjargar hróknum, þá annaðhvort
f8D+, eða Df6 mát) 31..........
Kg7; 32. De8, Dd5+; 33. Kgl,
Dd6; 34. He7, Dxll; 35. DxD,
Hf8; 36. De5+, og svart gaf
nokkrum leikjum seinna.