Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1940, Blaðsíða 5

Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1940, Blaðsíða 5
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 397 á. Voru þar og góðar fyrirmynd- irnar að fara eftir, þar sem voru embættismenn eins og Miiller amt- maður og hinir raunverulegu valdamenn í landinu, einokunar- kaupmennirnir. Þá bætti það ekki um siðfágun og göfgi hugsunarkáttarins hvern- ig lög voru og refsingar um þess- ar mundir. Rjettaróvissan var af- armikil, því að eftir ýmsu var dæmt, Jónsbók, alþingissamþykt- um eða konungsbrjefum eða jafnvel geðþótta, og var livað eft- ir annað reynt að fá einhvern botn í þetta, án þess að úr yrði. En refsingarnar vantaði ekki. Menn voru hýddir svo að næst gekk lífi þeirra fyrir litlar sakir, brennimerktir fyrir hnupl og drepnir fyrir meiri sakir. Á hverju alþingi voru menn höggn- ir og konum drekt meðan höfð- mgjarnir sátu að veislum sínum, en sumar sakirnar voru ekki meiri eftir vorra tíma rjettarregl- um en svo, að ekki væri dæmt fyr- ir þær til smásektar. Má jeg svo ekki eyða fleiri orð- um að' þessu efni. En ekki er furða þó að nokkrum rosalit slái á þann fjallstind, sem í slíkum óveðraham stendur. M SyseB’PCmtgtat < «»5951* M WúiísW wt Wb á 5 . ; 2tarn íöm Srfng. ; SSklefcía ^döifttatttðKni r . €S?*í$oftt»6hjift/ JpM*s* fotK - . VJPAtrN.. ' * paríutftt gjjfjk 6ttjíui«9< i ít&ecnfn tt( { m TitilblaSiS á fyrstu útgáfu Vidalinspostillu. n. Ef hann hefði glatast kirkjunni að var í raun og veru mikið ólán, að Jón Vídalín skyldi vera uppi á þessum tímum. Þéir sýnast engu hafa bætt við hann. En á hinn bóginn var ýmislegt það í fari hans, sem vel var til þess fallið að kippa undan hon- um fótunum í þessum voðaflaumi. Hann var hvorki líkur fyrirrenn- urum sínum, prúðmenninu Þórði Þorlákssyni og „konunginum“ Brynjólfi Sveinssyni R., nje eftir- manni sínum, hinum járnharða Jóni Árnasyni. Vídalín hefði ein- mitt þurft að vera uppi á kyrrlát- um tímum, og hættulitlum. Þá hefði margt hið varasamara í fari hans fengið að sofa í friði, en skapstærð hans og átök hefðu valdið því umróti, sem á hefði borið. Það er varla hætta á öðru en að hann hefði komið róti á hvern lygnan poll. Þessi fjalls- tindur er svo mikill og svo merki- lega mótaður, að hann hefði not- ið sín betur við heiðríkt loft en vaðandi í rosaskýjum. Ef skipa á Jóni Vídalín í einhverja hinna fjögurra „skapgerða“, þá er varla vafi á því, hvar honum er búið sæti. Hann er „kólerískur", skapstór, að eðlisfari. í herþjónustu. Þetta kemur þegar fram á fyrri árum hans. Þegar hann hefir lok- ið guðfræðinámi sínu í Kaup- mannahöfn, hlaðinn lofi bæði hjer heima og þar, kemur alt í einu óvæntur hlykkur á leið hans. Jón Halldórsson segir um þetta í Biskupasögum sínum: „Stór höfuð eru oft stórhuga og standa til að brjótast fram sem fljótast sjer til upphefðar; svo og þar hann var bæði skarp- ur og stórhugaður, þeinkti hann Sjer mundi besta beinleiði til frama og frægðar, að gefa sig í stríðsmannsstjett og soldáts þjónustu, hvað hann og gerði á sama ári fyrir umtölur nokkra hans kunningja af undir officer- um, sem í orði ljetust strax eða snarlega vilja gefa sig frá því standi, en stoða hann og promo- vera til sama embættis í sinn stað, en varð þó ekkert af, svo þessi fyrirtekt varð honum til stærstu ánauða, en móður hans og náung- um hjer í landi til mesta angurs, svo honum varð ekkert úr þeim fögru fyrirheitum. Þjenti hann um 2 ár fyrir sljettan stríðsmann í lágasta tilstandi, þar til land- fógetinn Christoffer Heidemann leysti hann, eftir innilegri bón móður hans fyrir 24 rdr. eður 30 rdr. frá því standi“. Svona er lífið og saga mann- anna stundum. Hjer lá við að kirkja íslands misti einn af bestu

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.