Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1940, Blaðsíða 32
424
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
Verðlaunamyndagáta Lesbókar
Það er orðin hefð að hafa verðlaunamyndagátu í Jóla-Lesbókinni, lesendum til dægrastyttingar um
jólin. Þessi gáta er með lengra móti. Hvað ráðningunni viðvíkur á hún það sammerkt við ýmsar fyrri, að þar
er ekki gerður greinarmunur á i og y. Þýðing myndanna 1 gátunni getur táknað i, þó í ráðningunni eigi að
vera y. — Þrenn verðlaun verða veitt, kr. 15.00, 10.00 og 5.00, fyrir rjettar ráðningar, sem komnar eru til
afgreiðslu blaðsins, í lokuðu umslagi, fyrir 4. janúar og kulu umslögin merkt: „Myndagáta". Dregið verður
um það hverjir fái verðlaun af þeim, sem rjettar ráðningar senda.
— Mjer finst þú vera heldur
þungur í dag.
— Já, ætli það sje ekki af því
að jeg er með blývatnsbakstra ?
★
— Það er altaf tap á versluninni,
hvern einasta dag.
— Á hverju lifir þú þát
— Á sunnudögum, því þá er lokað.
★
Borgari einn fjekk brjef frá skatta-
nefndinni, þar sem var sagt, að nefnd-
ina „vantaði tekjur konunnar".
— Mig líka, svaraði maðurinn.
★
Hann kom út úr spitajanum og
mætti kunningja sínum.
— Hvernig líður honum bróður
þínum, heldur þú, að hann komi bráð-
um af spítalanumT
— Nei, mjer líst ekki þesslega á
hann.
— Sástu þess merki að honum
hefði versnað T
— Nei, en jeg sá hjúkrunarkonuna
hansl
★
— Mamma, þú sagðir, að litla syst-
ir hefði augun þín og nefið hans
pabba. En hefir þú ekki tekið eftir
því, að nú er hún líka búin að fá tönn-
ina hans afaT