Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1940, Blaðsíða 6

Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1940, Blaðsíða 6
398 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS sonum sínum. Hver áhrif hefði það haft á íslenska kristni, ef Jón Vídalín hefði haldið áfram „paa floden med Convojerne“, eins og Árni Magnússon segir um hann í brjefi frá 1690, í stað þess að setj- ast á biskupsstól í Skálholti og verða mesti ræðuskörungur kirkj- unnarf Eða þá ef Hajlgrímur Pjetursson hefði orðið vel metinn kljensmiður í Kaupmannahöfn? Passíusálmarnir og Vídalínspost- illa, þessir tveir lýsandi vitar, hefðu þá aldrei orðið tendraðir. Og hve mörg eru þau ljós, sem aldrei hafa tendruð verið vegna einhverra álíka atvika? Um þess háttar er jafnan gagnslaust að spyrja, en sundlað getur mann við hugboðið eitt saman. Keji)tur laus. Jón Vídalín slapp úr gini Ijóns- ins. En skuggi hefir þetta jafnan þótt á æfiferli hans. Jón Halldórs- son er aldrei væginn í garð Vída- líns þótt vel væri oftast með þeim, og því lætur hann ekki hjá líða að geta þessa. En ekki dett- ur síra Jóhanni Þórðarsyni pró- fasti í hug að víkja að því einu orði í líkprjedikun sinni. Hann segir, að eftir guðfræðiprófið 1689 hafi Vídalín framhaldið „þessum sínum stúderingum með loflegri kostgæfni og framför alt til Annum Kristi 1691, en hans aldurs 26., þá reisti hann þaðan hingað“. Hefir hann líklega fóðr- að þetta með því, að Vídalín hafi stundað vísindi í frístundum. Á það bendir t. d. það, sem Árni Magnússon ritar Þormóði Torfa- syni 4. mars 1690: „Inga sögu, Innocenti III bannsbrjef ifir Sverri et si quæ similia1) skal jeg með fyrstu afskrifa láta, þá Jón Þorkelsson aftur kemur; hann ..... kommer hiem til S. Michels- dag“. Hjer var um gönuhlaup að ræða, sem ekki þótti sæma minn- ingu hins mikla kirkjuhöfðingja. Er ekki ólíklegt að margt hafi valdið því, að Jón fór í þetta flan. Það var bágt útlit um lífvænlegt starf hjer heima, en dæmin til þess á hinn bóginn, að sumir *) og ef um fleira er að ræða af líku tagi. fengu fljótan frama í herþjón- ustu. Jón hefir verið ákafamaður í æsku ekki síður en þegar hann eltist og mikill hrókur alls fagn aðar í fjelagslífi ungra manna ytra. Má mikið vera, ef þessi ráð hafa ekki verið ráðin við skál. Að minsta kosti eru efndirnar því ekki ólíkar. En þrátt fyrir alt þetta verður að leita upptaka þess og framkvæmd í skapferli Jóns. Margt í biskupsstjórn hans ber þess drjúgan keim. m. Harðorð brjefaviðskifti U ramaferill Jóns Vídalíns hjer •*- á landi er mjög hraður Hann hefst í lægingu, eins og vænta mátti eftir það, sem nú var frá sagt.'Kom Jón árið 1691 hingað til landsins „fátæklega til fara. Um haustið tók M. Þórður (biskup Þorláksson) hann af meðaumkvan og eftir bón náunga hans“. En árið 1692 verður hann kennari í Skálholtsskóla og 1693 dómkirkjuprestur, og „komst þeg- ar í mikið gengi og kærleika, helst eftir það biskupinn veiktist og rjenaði fvrir honum ein og önn- ur veraldarhvggja, svo hann var í biskupsins nafni sendur til að visitera hjer og hvar í stiptinu", segir Jón Halldórsson. Þá verður hann skamma hríð prestur í Görð- um og árið 1697 er hann skipaður biskup í Skálholti. Hann fer á 6 árum alla leið frá því að vera gustukamaður á staðnum upp í það að setjast á sjálfan biskups- stólinn. Þá var hann 31 árs að aldri. óvarkár fjármálamaður. Eins og nærri má geta verður ekki unt að rekja hjer biskups- sögu Jóns Vídalíns. Verður að nægja að drepa fingri niður á einstaka atriði, er varpa Ijósi á einkenni í fari hans. Mun það þá koma í ljós, að það, sem dró hann til þess að leita frama í herþjón- ustu, hjelt að sumu leyti áfram að móta persónu hans og athafnir. Vídalín komst brátt f góð efni. En fjármálastjórn hans var mjög sjerstæð. Hann gat ekki lagt sig ' niður við neina smásmuglega bók- færslu, heldur Ijet vaða á súðum. Varð honum hált á því oft og ein- att, en þó sjerstaklega ekkiu hans eftir hans dag. Hann pantaði fisk af Guðmundi ríka í Brokey, og skrifar honum: „Jeg set yður í sjálfdæmi um verðið á fiskinum, annars bið jeg að fá kynni hið mesta sem missa kunnið, en and- virðið skal koma með mönnunum, sem fiskinn sækja“. Þá er og sagt í brjefum Vídalíns um það, að hann tók bæði skólasveina og aðra unglinga til sín án þess að hirða um borgun. Er þetta næsta ólíkt embættisbræðrum hans öðrum um þessar mundir. Þar voru allir reikningar nákvæmir og klögumál ekki fá um smámuni eina. Þetta er bæði kostur og galli á Vídalín, má segja. En hitt er eng- inn efi, að hjer er á ferð hinn „flotti“ herra, sem leggur sig ekki niður við það, að reikna í aurum Hann vill heldur tapa en vera smásálarlegur. Glæsimenska her- foringjastjettarinnar höfðar ein- mitt til manna af þessu skapferli. Það er eins og Vídalín sje altaf inni í glæsilegum samkvæmissal, prúðbúinn í hefðarmannahóp, þar sem ekki þarf að hirða um fje. ..Einn lítil- látur herra“. En þá er þó tvenns að minnast. Annað er hjálpsemi hans við fá- tæka, sem var einstök. En hitt er látleysi hans, t. d. í klæðaburði. Hann segir í brjefi til Rabensr „Eitt er víst, að jeg og kona mín klæðumst slíkum vaðmálsfötum, bæði heima fyrir og á ferðalögum og notum sjaldan annað, og svo alt heimili okkar. Erum við ef til vill af öðrum löstuð fyrir þetta“. í líkræðunni segir svo: „1 sinni daglegri umgengni var hann einn lítillátur herra og hógvær, gest- risinn og stórgóðgerðasamur . . . en þó sjerdeilis við fátæka og nauðstadda guðs vesalinga". f svipuðum anda er biskups- stjórn hans. Hann lítuð svo á, að

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.