Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1940, Page 22
414
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
Gamlar myndir
og minningar
Frú Ingibjörg Jensdóttir segir frá
Frú Ingibjörg Jensdóttir L stofu sinni á Laufásveg 38.
(Myndin er tekin á áttrseÖisafmœli hennar, þann 25. september 1940).
EINSTÆÐU húsi við
Laufásveg býr áttræð
kona, sem hefir frá
mörgu að segja. Þó
aldurinn sje þetta hár,
finst henni sjálfri, að árin öll
hafi verið ótrúlega fljót að líða.
En þegar menn heyra að hún
hafi á unga aldri annast um
Björn Gunnlaugsson, og dvalið
langdvölum á heimili Jóns for-
seta í Kaupmannahöfn, þá finst
okkur, sem yngri erum, að æfi
hennar sje orðin ennþá lengri.
Því hverjum dettur í hug, að
samtíðarfólk Björns Gunnlaugs-
sonar sje hjer enn á meðal vor,
og geti sagt frá háttum og dag-
Legu lífi þessa manns, er vann
sitt mikla æfistarf fyrri hluta
19. aldarinnar?
Og þeir eru nú orðnir fáir eft-
ir, sem geta sagt frá því að hafa
stigið fæti sínum á heimili Jóns
Sigurðssonar við östervold í
Höfn og lýst þar heimilisháttum
af eigin reynd. En þar var frú
Ingibjörg Jensdóttir, rektors Sig
urðssonar, heilan vetur, þegar
hún var 17 ára gömul.
★
Um leið og maður kemur
inn í stofu frú Ingibjargar Jens-
dóttur, leynir það sjer ekki, að
hjer er heimili mikilla og hjart-
fólginna endurminninga. Vegg-
irnir eru þaktir myndum, stór-
um og smáum, af ungum og
gömlum, lifandi og dánum ást-
vinum. *
Hún tók mjer með hinni
mestu alúð, en ljet svo um mælt
að hún vissi ekki til, að hún
hefði frá nokkru að segja, sem
í frásögur væri færandi, allra
síst til að skrifa um það í blöð.
En brátt vorúm við niður-
sokkin í að skoða gamlar
myndir.
Bónorð.
DETTA er hún Ragnheiður
Bjarnadóttir frá Sviðholti,
amma mín. Hún var fædd árið
Ragnheiður Bjarn’dóttir frá Sviðholti
fyrri kona Björns Gunnlaugssonar.
1787, árinu eldri en hann afi.
Hann var tvígiftur, afi minn
Björn Gunnlaugsson og átti 1
bæði skiftin ekkjur.
Ragnheiður amma mín hefir
verið 38—40 ára, þegar þessi
mynd var teiknuð af henni. En
myndina teiknaði Norðmaður-
inn Rudolf Keyser, er hjer var
árin 1825—’27. Hann var við ís-
lenskunám á Bessastöðum og
mikið á vegum Sveinbjarnar Eg-
ilssonar. Hann teiknaði myndir
af ýmsu fólki hjer, m. a. af
Sveinbirni Egilssyni og konu
hans.
Ragnheiður var fyrst gift Jóni
Jónssyni kennara á Bessastöð-
um, en hann fórst með póstskip-
inu Dorotheu, undir Saxhóls-
bjargi á Snæfellsnesi 1817. —
Seinna giftist Ragnheiður Birni
Gunnlaugssyni afa mínum. Það
var árið 1825, og var móðir mín
Ólöf dóttir þeirra.