Lesbók Morgunblaðsins - 19.03.1944, Síða 6
310
LESBÓK MORG UN’BLAÐSINS
KARLAKÓRINN ÞRYMUR
Á HÚSAVÍK 10 ÁRA
Afmælissöngferð kórsins
I»AÐ VAR í Ilúsavík, blíðviðiis-
haustið 19:?3. Einn daginn veittist
Sigurðnr S. JJjarklind, þáverandi
kaupfjelagsstj., snö»»le»a að presti
staðarins með áskorun um að taka
að sjer stjórn karlakórs, sein vildi
verða til op væri að fa’ðast. Prest-
ur þessi, hrekklaus maður og ótor-
trygginn. enda nýkominn frá Ame-
ríku, vissi varla hverju svara skyldi.
ITonum var ljóst, eins og vitað er.
að kaupfjelagsstjórar hafa yfirleitt
líf og limi manna í hendi sjer. Og
þótt þetta verði furðu fáum að
grandi. er vissara að styggja þá
ekki. Hinsvegar hafði prestur aldrei
lært á neitt hljóðfæri og lítið feng-
ist við kórstjórn, sízt karlakórs-
stjórn. En nóturnar þekkti hann
vel flestar.
Og kórinn tók til að æfa, —
að vísu ekki beinlínis söngstjóra-
laus — en nafnlaus, fjelaus og
stjómlagalaus.
Þetta var upphftf þeirrar 10 ára
starfsemi, sem karlakórinn .,Þrym-
ur“ í TTúsavík er að ljúka við þessa
síðnstu mislyndu haustdaga.
Nafn sitt öðlaðist hann á sínum
tíma þannig, að stjórn „Söngfjelags
ins Heklu“ festi í gáleysi nafn þess
karlakórs, sem áður hafði starfað
í núsavík undir stjórn Stefáns heit-
ins GKiðjohnsen. Var ekkert um
þetta fengist. Og síðar. þegar til
tals kom að taka upp nafnið.
..Karlakór Húsavfkur", kom í liós,
að vinsældir gamla ,.Þryms“ stóðu
. svo djúpum rótum í huerum Húsvík-
inera, að menn vildu halda nafninu.
En hvað þýðir þetta nafn? Hvert
er ætterni þess — þryma, þröm,
þremjar? Oftastnær er merking
þess „gnýr“ ; sbr. visu Egils: „Nú
hefir þrym-Rögnir þegna“. Hins-
vegar er nafn Þryms jötuns útlagt:
„hinn þÖgli“. Þessar andstæðu
merkingar minna á orðið „liljóð“,
sem merkir bæði þögn og hið gagn-
stæða. Hvað, sein þetta er, þá er
engutn efa bundið, að gömlu söng-
mennirnir. sem vÖldu kór sínum
þetta nafn, vildu með því kenna
hann við ymjandi, rymjandi, þrymj-
andi, hlymjandi háreysti, — þrum-
ur og Þórdunur. —
II.
I blöðum hafa þegar birst stuttar,
vingjarnlegar frjettir um 10 ára
afmæli kórsins, sem fram fór í
samkomuhúsi Húsavíkur aðfara-
kvöhl hins 25. október, s.l., við borð
hald ræður, söng og dans. Var
]>etta mesta meðlætisstund fyrir
söngstjórann, sjera Friðrik A. Frið-
riksson, því að söngfjelagarnir not-
uðu tækifærið til að færa honum
höfðinglegar gjafir með allskonar
góðyrðum. Sii heppni var yfir hófi
þessu, að þar var staddur Sigurður
Birkis, söngmálastjóri, en hann hef-
ir tvívegis verið leiðbeinandi kórs-
ins, og orðið af honum ástsæll
mjög.
Síðan kórinn öðlaðist nafn og
lög, hefir stjómarnefndin alltaf ver-
ið endurkosin: formaður, Friðþjófur
Pálsson, símstjóóri, ritari, Sigurður
Kristjánsson, verzlnnarmaður, giald
keri, Birgir Steingrímsson, verzlun-
armaður. Allt eru þetta vaskir menn
(og batnandi) og viðmótsgóðir,
fjölhæfir, fjelagslyndir og söng-
glaðir. (Svipað má svo sem segja
um varastjórnina og endurskoð-
enduma). í nefndu hófi rakti ritar-
inn nokkur æfiatriði afmælisbarns-
ins, og komu þar fram póstar, sem
varpa nokkru ljósi yfir kórstörf yf-
ir höfuð, þar á meðal þessir:
„Eftir því sem næst verður kom-
ist hefir kórinn liaft 425 samæfingar
og 175 raddæfingar, á þessum 10
árum. Með því að reikna hverja
æfingu 2 klst., verða þetta 1200
kl.st. á mann, — auk þess tíma,
sem farið hefir í söngfarir, sam-
söngva, söng á samkomum o. fl„
lágt reiknað 300 klst. á mann. En
þetta svarar til þess, að hver kór-
maður ynni 8 klst. á dag í hálft
ár, helga daga sem virka. Sje þetta
margfaldað með 30, meðaltölu kór-
manna, er starf þetta orðið 35 ára
vinna eins manns, sem yrði að
vinna 'alla helgidaga líka. Auk þess
hafa ýmsir kórmenn unnið auka-
störf fyrir kórinn, og þá fyrst og
fremst söngstjórinn. Mun lágt ■ á-
ætlað að hann hafi eytt ársvinnu
í þarfir hans.
„Nú mætti spyrja. Borgar þetta
sig? ITvað er í aðra hönd fyrir
þessa óskapa tímaeyðslu? Því er
vandsvarað. En þetta má taka fram:
Kórinn hefir haldið 33 sjálfstæðar
söngsamkomnr hjer í Húsavfk;
sungið á samkomum fyrir ýms fje-
lög, nál. 30 sinnum; tekið þátt i
4 söngmótum „Heklu“, sambands
Norðlenskra karlakóra; farið fi
söngferðir (Akurevri, Rkútustaðir,
Einarsstaðir í Revkiadal. Grenjaðar
staður. Hólmavað, Hallbjarnarstað-
ir á Tjörnesi); sungið 8 sinnum úti